Settur dómsmálaráðherra gerir margar athugasemdir við störf dómnefndar

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, settur dóms­mála­ráð­herra, gerir marg­vís­legar athuga­semdir við störf nefndar sem metur hæfi umsækj­enda um starf dóm­ara.

Í bréfi frá settum dóms­mála­ráð­herra, Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, til dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda um stöðu dóm­ara, er kallað efir frek­ari skýr­ingu á starfi og mati nefndar. Í bréf­inu segir að það sé mat setts dóms­mála­ráð­herra að skýr­ingar nefnd­ar­innar, á því að engar upp­lýs­ingar fylgi umsækj­endum og hvers vegna þeim sé raðað með þeim hætti sem nefndin gerir, séu „óljósar“.

Eins og kunn­gjört var í dag á vef Kjarnans þá hefur dóm­nefndin lagt það til að fimm karlar og þrjár konur verði skip­aðar dóm­arar. Í mati nefnd­ar­innar kemur fram að þeir átta sem dóm­nefnd mat hæf­asta eru Arnar Þór Jóns­son, lektor við laga­­deild Há­­skól­ans í Reykja­vík, Ásgerður Ragn­ars­dóttir hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur, Ást­ráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur, Berg­þóra Ing­ólfs­dóttir hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur, Daði Krist­jáns­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara, Helgi Sig­urðs­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur Kaup­þings, Ingiríður Lúð­víks­dótt­ir, settur hér­aðs­dóm­ari, og Pétur Dam Leifs­son, dós­ent við laga­­deild Há­­skóla Íslands.

Sigríður Á. Andersen er van­hæf í mál­inu, en á dög­unum féll dómur í Hæsta­rétti þar sem fram kom að hún hefði sem dóm­ar­mála­ráð­herra brotið gegn stjórn­sýslu­lögum við skipta dóm­ara í Lands­rétt, en vikið var frá skipan 15 dóm­ara við rétt­inn í fjórum til­vikum.

Í bréfi sett dóms­mála­ráð­herra er kallað eftir skýr­ingum á starfi nefnd­ar­innar, og þær meðal ann­ars settar fram í tíu liðum. Í bréf­inu kemur einnig fram að 23 umsækj­endur um dóm­ara­störfin hafi komið and­mælum til nefnd­ar­innar.

„Í svari starfs­manns nefnd­ar­innar kom fram að dóm­nefndin hefði ekki sett hæfn­is­matið fram í valtöflu og hún hefði ekki sett fram tölu­leg við­mið um mat á því hvernig umsækj­endur upp­fylltu hverja ein­staka kröfu. Þá var rakið að þrjú atriði hefðu mest vægi við gerð umsagn­ar­innar, þ.e. reynsla af dóm­störfum, reynsla af lög­manns­störfum og reynsla af stjórn­sýslu­störfum. Einnig var vísað til þess að dóm­nefndin byggði á inn­sendum gögnum, opin­berum gögnum um starfs­feril umsækj­enda, ummælum umsagn­ar­að­ila en ekki síst því sem fram kom í við­tölum við umsækj­endur. Var einnig áréttað í tölvu­bréf­inu að umsögnin hefði verið reist á nið­ur­stöðum mats á „heild­stæðu mati sam­kvæmt mál­efna­legum sjón­ar­miðum.“ Að mati setts ráð­herra eru skýr­ingar nefnd­ar­innar óljósar og gefa í raun litlar sem engar upp­lýs­ingar um það hvernig mati nefnd­ar­innar var háttað. Lestur umsagn­ar­innar einn og sér hefur ekki dugað settum ráð­herra, enda er erfitt fyrir hann að kanna rétt­mæti hennar þar sem hann hefur ekki upp­lýs­ingar um inn­byrðis vægi þeirra þátta sem nefndin lagði mat á,“ segir m.a. í bréf­inu. 

Í tíu liðum eru settar fram athuga­semdir við störf nefnd­ar­inar, og er kallað eftir skýr­ingum í þeim. Margar athuga­semd­irnar fela í sér gagn­rýndi á störf nefnd­ar­innar.

Þessar athuga­semdir eru eft­ir­far­andi.

„Í fyrsta lagi telur settur ráð­herra það sæta nokk­urri furðu að dóm­nefndin hafi ekki not­ast við stiga­töflu, a.m.k. til hlið­sjónar, í mati sínu, enda er umsækj­endum gaum­gæfi­lega raðað í hæf­is­röð í hverjum mats­flokki. Einnig má nefna að mat nefnd­ar­innar í síð­ustu umsögn hennar, dags. 19. maí 2017, virð­ist að stærstum hluta hafa ráð­ist af upp­röðun umsækj­enda í stiga­töflu sem nefndin útbjó. Vinnu­brögð nefnd­ar­innar að þessu leyti virð­ast því vera í ósam­ræmi við fyrri fram­kvæmd hennar.

Í öðru lagi er í þætt­inum um reynslu af dóm­ara­störfum umsækj­anda raðað efst sem hefur átta ára reynslu sem settur dóm­ari, en umsækj­anda raðað skör lægra sem var skip­aður hér­aðs­dóm­ari í um tutt­ugu ár.

Í þriðja lagi fæst illa séð hvernig það getur stað­ist að lög­manni með yfir þriggja ára­tuga reynslu sé raðað í 8.-10. sæti í mats­þætt­inum um lög­manns­störf.

Í fjórða lagi virð­ist einn umsækj­andi, sem er með umtals­verða reynslu sem sak­sókn­ari, fá þá reynslu metna í tvígang, ef svo má að orði kom­ast, að minnsta kosti að ein­hverju leyti. Annars vegar er sú reynsla metin honum til tekna í þætt­inum um reynslu af lög­manns­störfum (sem ætti lík­lega að nefu­ast reynsla af mál­flutn­ingi og öðrum lög­manns­störfum, sbr.T, tölu­lið 4. gr. reglna nr. 620/2010) og hins vegar í þætt­inum um reynslu af stjórn­sýslu­störfum. Með þessu móti vigtar reynsla af sak­sókn­ara-störfum í reynd þyngra en jafu­löng reynsla af lög­manns­störfum. Fær settur ráð­herra ekki séð að slíkt sé málefu­alegt, sér­stak­lega í ljósi þess að reynsla af lög­mennsku tekur yfir­leitt til fleiri og fjöl­breytt­ari rétt­ar­sviða en störf sak­sókn­ara, sem eru á mjög afmörk­uðu sviði.

Í fimmta lagi er erfitt að átta sig á mati nefnd­ar­innar á sér­stakri starfs­hæfni. Hér má nefna sem dæmi að í síð­ustu umsögn dóm­nefnd­ar­innar, dags. 19. maí 2017, var sér­stök starfs­hæfni metin í þremur aðskildum mats­þáttum, þ.e. stjórnun þing­halda, samn­ingu dóma og þekk­ingu á rétt­ar­fari. Í mati dóm­nefudar­innar nú er þessum þremur þáttum blandað saman án þess að les­and­inn geti áttað sig á því hvaða þáttur vigtaði þyngst og hvers vegna. Verður í því sam­bandi ekki síst að horfa til þess að sam­kvæmt dómum Hæsta­réttar í málum nr. 591 og 592/2017 er ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að nefndin leggi sér­stakt efn­is­legt mat á hæfni umsækj­enda til að semja dóma.

Í sjötta lagi má nefna að dóm­nefndin virð­ist hafa lagt tals­verða áherslu á við­töl við umsækj­endur, en þrátt fyrir það er í umsögn­inni ekki að finna sér­stakt mat á þessum þætti og er settur ráð­herra t.d. engu nær um það hvaða umsækj­andi stóð sig best í við­töl­unum og hvers vegna eða hversu mikið vægi þessi þáttur hafði á mat dóm­nefudar­innar. Hér verður ekki síst að hafa í huga að frammi­staða í við­tölum er ekki á meðal þeirra þátta sem fram koma í 4. gr. reglna nr. 62012010. Settur ráð­herra telur þó að það leiði af eðli máls að slíkt geti haft þýð­ingu í heild­ar­mat­inu, en það verði þá að vera ljóst af umsögn­inni hvernig umsækj­endur stóðu sig, hvert vægi við­tal­anna var og hvers vegna mik­il­vægt var að leggja sér­staka áherslu á þennan þátt í þetta skipti, enda virð­ist nefndin ekki hafa lagt áherslu á við­tölin í fyrri umsögnum sínum.

Í sjö­unda lagi er undir lokin á umsögn­inni til­tekið hverja dóm­nefndin metur hæf­asta, án þess að það sé rök­stutt sér­stak­lega á grund­velli heild­ar­mats hvers vegna þessir umsækj­endur en ekki aðrir eru metnir hæf­astir. Hér verður að taka fram að dóm­nefu­din sjálf hefur sagt að nið­ur­staða hennar hafi grund­vall­ast á "heild­stæðu mati" og að það hafi ekki grund­vall­ast á hlut­lægum sam­an­burði með stiga­töflu, eins og áður virð­ist hafa tíðkast hjá nefu­dinni. Hlýtur því að þurfa að gera þá kröfu að dóm­nefu­din fram­kvæmi þetta heild­stæða mat í umsögn sinni og rök­styðji nið­ur­stöðu sína að loknu því mati með allít­ar­legum hætti.

Í átt­unda lagi vekur það athygli setts ráð­herra að víða í umsögn­inni kemur fram að ekki hafi verið tilefui til þess að gera upp á milli ein­stakra umsækj­enda í til­teknum mats­þáttum. Þrátt fyrir að nefu­din sé þannig ekki afger­andi varð­andi inn­byrðis mat í ein­stökum mats­þáttum er hún afger­andi í loka­nið­ur­stöðu sinni um það að ein­ungis átta umsækj­endur, en ekki fleiri, séu hæf­astir að mati nefudar­innar.

Í níunda lagi setur dóm­nefu­din fram álit sitt á því hvaða umsækj­endur eru taldir hæf­astir til þess að verða skip­aðir í emb­ætti við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, hver er tal­inn hæf­astur til að verða skip­aður í emb­ætti með starfs­stöð við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur (sem þó sinnir störfum við alla hér­aðs­dóm­stól­ana) og loks hver er met­inn hæf­astur til þess að verða skip­aður í emb­ætti dóm­ara með starfs­stöð við Hér­aðs­dóm Vest­fjarða (sem þó sinnir störfum við alla hér­aðs­dóm­stól­ana). Ekki verður séð hvaða for­sendur lágu þarna að baki og er óskað skýr­inga á því.

Í tíunda lagi bár­ust nefnd­inni ábend­ingar og athuga­semdir frá 23 umsækj­endum. Margar þess­ara athuga­semda voru efn­is­miklar og var sumum þeirra skilað aðeins einum til tveimur dögum áður en nefndin gaf út umsögn sína 21. des­em­ber 2017. Þrátt fyrir minn­is­blað nefnd­ar­innar, dags. sama dag, telur settur ráð­herra að hinn skammi tími sem nefndin tók sér til að yfir­fara and­mælin bendi til þess að þau hafi ekki verið gaum­gæfð sem skildi, enda er í mörgum til­vikum í minn­is­blað­inu að finna mjög stutt­ara­lega afgreiðslu á and­mælum um að þau hafi ekki leitt til breyt­inga á mati nefnd­ar­innar.

Eðlilegt hefði verið, að mati ráð­herra, að nefndin hefði rök­stutt í minn­is­blað­inu hvers vegna efn­is­legar, og að því er virð­ist rétt­mætar ábend­ingar umsækj­enda í mörgum til­vikum leiddu ekki til breyt­inga á umsögn­inni. Þar sem rök­stuðn­ing skortir að miklu leyti fyrir nið­ur­stöðum nefudar­innar hefur settur ráð­herra ekki for­sendur til þess að taka afstöðu til efn­is­legs mats nefnd­ar­innar og leggja mat á hvort hann tekur undir mat hennar eða hvort tilefui sé til þess að gera til­lögu til Alþingis um skipun ann­arra umsækj­enda. Þá hefur nefndin ekki veitt grein­ar­góðar skýr­ingar á því hvernig mat­inu var háttað, eins og áður er rakið.

Nefndin virð­ist ekki hafa lagt for­svar­an­legt mat á ákveðna þætti, eins og t.d. reynslu af dóm­ara­störfum, og er erfitt fyrir settan ráð­herra að átta sig á því heild­stæða mati sem dóm­nefu­din seg­ist hafa fram­kvæmt. Umsögnin er enda rök­studd eins og um sé að ræða mjög hlut­lægan sam­an­burð á milli umsækj­enda í ein­stökum mats­þáttum, en nefndin seg­ist þrátt fyrir það ekki hafa raðað umsækj­endum á grund­velli stiga­töflu. Þá er ítrekað að settur ráð­herra hefur ekki upp­lýs­ingar um inn­byrðis vægi mats­þátta og á því í veru­legum erf­ið­leikum með að ganga úr skugga um að mat nefnd­ar­innar sé for­svar­an­legt. Þrátt fyrir fram­an­greint, og vegna þess hversu skammur tími er til stefnu þar til hinir nýju dóm­arar þurfa að taka til starfa, mun settur ráð­herra ekki óska eftir nýrri umsögn nefudar­innar.

Hann fer þess hins vegar á leit við nefnd­ina að hún útskýri betur með hvaða hætti matið var fram­kvæmt og hvers vegna umræddir átta umsækj­endur voru, á grund­velli heild­ar­mats, taldir hæf­ari en aðrir umsækj­endur. Þá er þess óskað að nefu­din skoði þau atriði sem nefud eru hér að framan og taki afstöðu til þess hvort athuga­semdir setts ráð­herra gefi tilefui til þess að breyta ein­stökum þáttum umsagn­ar­innar. Loks er óskað skýr­inga á því hvers vegna fleiri komu ekki til álita að mati nefudar­innar en þeir átta sem lagðir voru til. Í því sam­bandi yrði óskað sér­stakra skýr­inga á þeim skoð­ana­mun sem virð­ist hafa verið innan nefudar­innar, svo sem fram kemur í nið­ur­lagi umsagnar hennar, á því hvort "gera skyldi upp á milli hæfni þeirra tveggja sem til­nefud eru [í til­tekin emb­ætti sem sinna skulu eftir atvikum störfum við alla dóm­stól­ana] og fleiri umsækj­enda", og þá hvaða fleiri umsækj­endur hafi komið til greina að þessu leyti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár