Lagt til að fimm karlar og þrjár konur verði skipaðir héraðsdómarar

Dómnefnd hefur kom­ist að nið­ur­stöðu um hvaða átta umsækj­endur um hér­aðs­dóm­ara­stöður verði skip­aðir. Tilkynnt verður um hverjir það eru síðar í dag. Kjarninn birtir nöfn þeirra átta sem lagt er til að verði skip­aðir.

Guðlaugur Þór Þórðarson er settur dómsmálaráðherra í málinu.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er settur dóms­mála­ráð­herra í mál­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tilkynnt verður um skipan átta nýrra hér­aðs­dóm­ara síðar í dag. Alls sóttu 39 umsækj­endur um stöð­urnar. Kjarninn hefur umsögn dóm­nefndar undir höndum.

Þar kemur fram að þeir átta sem dóm­nefnd mat hæf­asta eru Arnar Þór Jónsson, lektor við laga­deild Há­skól­ans í Reykja­vík, Ásgerður Ragn­ars­dóttir hæsta­rétt­ar­lög­maður, Ástráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, Bergþóra Ing­ólfs­dóttir hæsta­rétt­ar­lög­maður, Daði Krist­jáns­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara, Helgi Sig­urðs­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur Kaup­þings, Ingiríður Lúð­víks­dóttir, settur hér­aðs­dóm­ari, og Pétur Dam Leifsson, dós­ent við laga­deild Há­skóla Íslands.

Alls verða því skip­aðir fimm karl­menn og þrjár konur ef farið verður eftir nið­ur­stöðu hæf­is­nefndar. Bergþóra verður skipuð í emb­ætti dóm­ara við Hér­aðs­dóm Vest­fjarða og Pétur Dam verður skip­aður í emb­ætti með starfs­stöð við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur en sinna störfum við alla hér­aðs­dóma. Hin sex verða skipuð í emb­ætti við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur.

Dómnefnd sendi umsækj­end­unum 39 umsögn sína, sem er 96 blað­síður, 13. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Þeir höfðu viku til að gera athuga­semdir og koma þeim til dóm­nefndar. Hún skil­aði síðan Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, settum dóms­mála­ráð­herra í mál­inu, umsögn­inni 22. des­em­ber. Tilkynnt verður um skipan dóm­ara á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins síðar í dag og umsögnin birt þar í heild sinni. Guð­laugur Þór var settur dóms­mála­ráð­herra í mál­inu eftir að Sig­ríður Á. And­er­sen vék sæti í því. Ástæða þess er sú að Ástráður Har­alds­son, einn þeirra sem verður í dag skip­aður, stefndi íslenska rík­inu vegna Lands­rétt­ar­máls­ins. Þar var hann ekki á meðal þeirra 15 sem Sigríður gerði til­lögu um að yrðu skip­aðir dóm­arar við þann rétt þrátt fyrir að dóm­nefnd hefði metið hann á meðal þeirra 15 hæf­ustu. Nið­ur­staða Hæsta­réttar í máli Ástráðs var sú að Sigríður hefði brotið gegn ákvæðum stjórn­sýslu­laga með ákvörðun sinni.

Dóm­ar­arnir átta áttu að hefja störf á þriðju­dag.

RÚV greindi frá því síð­degis í dag að Guð­laugur Þór hafi í dag sent dóm­nefnd­inni bréf þar sem óskað er eftir frek­ari rök­stuðn­ingi fyrir því að þessir átta til­teknu umsækj­endur telj­ist hæf­ari en hinir. Bréfið verður birt síðar í dag. Skipan dóm­ar­anna mun því að öllum lík­indum tefj­ast enn frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár