Vísindamenn hvetja til glimmer banns

Getur verið að glimmer sé stór­hættu­legt?

Nú þegar hátíð­irnar fara að nálg­ast verður hið skemmti­lega fyr­ir­bæri glimmer meira áber­andi. Þó glimmer virð­ist í fyrstu sak­laust hafa vís­inda­menn í Bret­landi áhyggjur af áhrifum þess á umhverfið. Flest glimmer í raun ekk­ert annað en plast­agnir sem einmitt á að banna þar í landi á næsta ári. Hópur vís­inda­manna hvetur því til þess að glimmer sem inni­heldur plast verði einnig bannað.

Plast­agnir eru eins og nafnið gefur til kynna, örsmátt plast sem mælist minna en fimm milli­metrar í lengd. Sýnt hefur verið fram á að plast­agnir geti haft víð­tæk áhrif í nátt­úr­unni, til dæmis éta ýmis sjáv­ar­dýr plastið sem getur síðan safn­ast upp í lík­ömum þeirra. Í til­felli nytja­dýra á borð við fiska getur plastið síðan endað í melt­inga­vegi okkar manna þar sem það er að hluta til tekið upp í blóð­rás­ina. Að svo stöddu er lítið vitað um það hvaða áhrif plast­agnir í blóð­rás hafa á heilsu okkar en nið­ur­stöður rann­sókna benda til þess að það gæti haft trufl­andi áhrif á hormón í lík­ömum manna og dýra.

Plast­agnir er meðal ann­ars að finna í fjölda snyrti­vara og eiga þær þaðan greiða leið í hafið í gegnum frá­rennsli heim­ila. Vegna umhverf­is­á­hrifa plast­agna hafa bæði Bretland og Banda­ríkin ákveðið bannað notkun plast­agna í snyrti­vörum og má ætla að fleiri lönd fylgi í kjöl­farið. Nú eru vís­inda­menn farnir að beina sjónum sínum að glimmer­inu sem lítil umræða hefur verið um hingað til.

Glimmer finnst líkt og plast­agnir í ýmsum snyrti­vörum og ratar því sömu­leiðis út í hafið þar sem að fiskar og önnur sjáv­ar­dýr geta inn­byrt það. Vegna þessa hvetja vís­inda­menn í Bret­landi til þess að glimmer sem inni­heldur plast sé bannað af sömu ástæðum og plast­agnir.

Aðdá­endur glimmers þurfa þó ekki að örvænta því til er umhverf­is­vænt glimmer sem brotnar hratt niður í nátt­úr­unni og má nefna að snyrti­vöru­fyr­ir­tækið Lush í Bret­landi hefur skipt út hefð­bundnu glimmeri fyrir umhverf­is­vænt í vörum sínum.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár