Sýklalyfjaónæmi: Hvað veldur því og hvernig getum við tekist á við það?

Nýlegar rann­sóknir benda til þess að sýkla­of­næmi sé mun algeng­ara en áður var talið. Ekki er þó öll von úti um að hægt verði að finna lyf gegn ofur­bakt­er­íum.

Sýkla­lyfja­ó­næmi er eig­in­leiki sem margar sýkj­andi bakt­er­íur hafa til­einkað sér. Í umhverfi þar sem mikið er um sýkla­lyf er stöðugt áreiti á örveruflór­una. Það getur orðið til þess að breyt­ingar verða á erfða­efni bakt­er­í­anna sem gerir þeim kleift að þola sýkla­lyfin, til dæmis með því að brjóta þau niður í efna­sam­bönd sem eru bakt­er­í­unum skað­laus.

Þessar aðstæður eru til dæmis til staðar í mat­væla­iðn­aði erlendis þar sem dýrum eru sífellt gefin sýkla­lyf þó engin sýk­ing sé til staðar. Að sama skapi geta þessar aðstæður mynd­ast í okkur sem ein­stak­lingum ef við notum sýkla­lyfin að óþörfu eða ekki rétt. Í slíkum til­fellum skiljum við eftir sýkla­lyf í lík­am­anum þegar enn eru sýkj­andi bakt­er­íur til staðar. Þessar bakt­er­íur reyna svo hvað þær geta til að lifa af í lágum styrk sýkla­lyfja og í sumum til­fellum tekst þeim það með því að þróa með sér ónæmi gegn lyf­inu.

Þegar bakt­ería hefur fengið eig­in­leik­ann til að sigr­ast á sýkla­lyfja­ó­næm­inu er það sú bakt­ería sem nær að fjölga sér og við­halda teg­und sinni.

Hversu útbreitt er sýklalyfjaónæmi?

Nýlegar rann­sóknir gefa til kynna að sýkla­lyfja­ó­næmi sé lík­lega mikið algeng­ara en talið var. Sér­stak­lega á þetta við í umhverfi þar sem dýr eru ræktuð til mann­eldis.

Á ráð­stefnu Banda­ríska örveru­fræði­fé­lags­ins sem haldin var í sumar kom fram að jafn­vel ónæmi gegn sjald­gæfum sýkla­lyfjum hefur auk­ist gríð­ar­lega. Þetta eru sýkla­lyf sem hingað til hafa ein­ungis verið notuð í ítr­ustu neyð, þegar önnur sýkla­lyf virka ekki.

[box]Áhrif á mann­fólk eru einnig þegar orðin mikil og sam­kvæmt Miðstöð sjúk­dóma­varna Banda­ríkj­anna (CDC) sýkj­ast í það minnsta tvær millj­ónir manna í Banda­ríkj­unum einum saman á ári af ónæmum bakt­er­íum og 23.000 lát­ast vegna þeirra.

Ljóst er að staðan er þegar orðin slæm og fer hún síst batn­andi.

Hvaða aðferðum er helst beitt til að snúa þessari þróun við?

Þó staðan í dag sé ansi ógn­vekj­andi er ekki öll von úti enn um að hægt verði að finna lyf gegn þessum ofur­bakt­er­íum.

Fjöl­margar nálg­anir hafa verið not­aðar til að finna ný lyf og mörg þeirra lyfja sem eru í far­vatn­inu eru þess eðlis að það er mun erf­ið­ara en áður fyrir bakt­er­í­urnar að þróa með sér ónæmi. Rann­sóknir þar sem verið er að nýta bakt­er­íu­sýkj­andi veirur er dæmi um slíkt. Bakt­er­íu­sýkj­andi veirur, svo­kall­aðir fagar, myndu ekki hafa áhrif á sjúk­ling­inn því þær sér­hæfa sig í að sýkja og drepa bakt­er­íur.

Því miður eru ekki líkur á því að hægt verði að snúa við þeirri þróun sem þegar hefur orðið. Með því að nota sýkla­lyf skyn­sam­lega getum við von­andi komið í veg fyrir frek­ari útbreiðslu ónæmis og þá sér­stak­lega á þeim lyfjum sem seinna koma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár