Undandreginn skattstofn mála sem hafa verið niðurfelld er 9,7 milljarðar

Alls hafa verið felld niður 62 skattsvika­mál vegna þess að rof varð á rann­sóknum þeirra. Fleiri mál verða lík­ast til felld niður, þrátt fyrir að rök­studdur grunur sé um stór­felld skatt­svik. Umfangs­mesta málið snýst um skatts­stofn upp á 2,2 millj­arða.

Flestir þeirra sem voru til rannsóknar, en sleppa nú við ákæru, færðu fjármagn sem átti að skattleggjast á Íslandi til annarra landa og gáfu ekki réttar upplýsingar um skattstofn þess til að reyna að komast hjá greiðslu lögboðina skatta.
Flestir þeirra sem voru til rann­sóknar, en sleppa nú við ákæru, færðu fjár­magn sem átti að skatt­leggj­ast á Íslandi til ann­arra landa og gáfu ekki réttar upp­lýs­ingar um skatt­stofn þess til að reyna að kom­ast hjá greiðslu lög­boð­ina skatta. Mynd: Úr safni

Und­an­dregin skatt­stofn þeirra 62 skattsvika­mála sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fellt niður er alls 9,7 millj­arðar króna. Um er að ræða 5,7 millj­arða króna í van­fram­taldar tekjur og fjóra millj­arða króna í van­fram­taldar fjár­magnstekjur.

[links]Umfangs­mesta málið snýst um van­fram­taldar tekjur og fjár­magnstekjur vegna greiðslna frá erlendu félagi, vaxta­greiðslna og hluta­bréfa­við­skipta upp á sam­tals um 2,2 millj­ónir króna. Annað stórt mál snýst um van­fram­taldar tekjur upp á 876 millj­ónir króna vegna kaupa á hluta­bréfum á lægra verði en gang­verði, óheim­ilar úthlut­unar úr lög­að­ila og van­fram­tal­inna stjórn­ar­launa.

Þetta kemur fram í yfir­liti yfir þau mál sem voru látin niður falla sem Kjarninn fékk frá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

Málin voru felld niður vegna þess að máls­með­ferð þeirra hjá ann­ars vegar skatt­yf­ir­völdum og hins vegar hér­aðs­sak­sókn­ara var ekki nægi­lega sam­tvinnuð í efni og tíma, aðal­lega vegna þess að þeim var slegið á frest vegna þess að beðið var nið­ur­stöðu máls sem var til með­ferðar hjá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu.

Það rof sem varð vegna þess að málin voru sett á bið varð á end­anum til þess að þau voru látin niður falla.

Líklegt að fleiri mál verði látin falla niður

Kjarninn greindi frá því í gær að málin, sem eru gegn ein­stak­lingum sem grun­aðir eru um að hafa framið skatt­svik, hefðu verið látin niður falla. Á meðal þeirra mála sem felld voru niður eru mál ein­stak­linga sem komu fyrir í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Búist er við því að enn fleiri mál tengd ætl­uðum skattsvikum verði felld niður á næst­unni, en sam­tals eru 152 slík mál til með­ferðar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Alls er skatt­stofn­inn í öllum þeim málum yfir 30 millj­arðar króna.

[adspot]Þegar er búið að end­ur­á­kvarða skatt­greiðslur á flesta þeirra sem undir eru í þeim rann­sóknum. En í þeim málum sem felld hafa verið niður mun ekki verða hægt að leggja sektir á þá sem þau snú­ast um. Sekt fyrir skatt­svik getur verið frá því að vera tvö­föld sú skatt­fjár­hæð sem skotið var undan og upp að tífaldri þeirra fjár­hæð. Því er ljóst að íslenska ríkið verður af miklum fjár­hæðum vegna þessa og þeir sem sviku stór­fellt undan skatti munu enn fremur ekki þurfa að sæta refs­ingu fyrir að hafa framið hegn­ing­ar­laga­brot.

Íslensku sjómennirnir sleppa

Engar upp­lýs­ingar fást hjá emb­ættum skatt­rann­sókn­ar­stjóra eða hér­aðs­sak­sókn­ara um hvaða ein­stak­lingar séu undir í þeim málum sem hafa verið látin niður falla. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru mál íslenskra sjó­manna sem störf­uðu hjá íslenskum útgerðum erlendis þó á meðal þeirra mála sem felld voru niður. Hin meintu brot mann­anna fólust í því að þeir greiddu ekki skatt af launum sínum á Íslandi á meðan að þeir unnu hjá íslenskum útgerðum í Afr­íku, þótt þeir hafi átt heim­il­is­festi hér. Alls eru 33 þeirra mála sem hafa verið látin niður falla vegna tekna sem urðu til vegna starfa erlendis. Um tugi millj­óna króna er um að ræða í van­fram­töldum tekjum í hverju til­felli fyrir sig. Sá ein­stak­lingur sem van­fram­taldi mest af tekjum vegna starfa erlendis var sam­tals með 114,5 millj­ónir króna í tekjur.

En stóru töl­urnar í mál­unum sem hafa verið látin niður falla eru í málum af öðrum toga. Líkt og áður sagði snú­ast tvö stærstu málin, sem sam­tals snú­ast um vantaldar tekjur upp á rúm­lega þrjá millj­arða króna, um ann­ars vegar greiðslur frá erlendu félagi, vaxta­tekjur og hluta­bréfa­við­skipti og hins vegar um van­fram­taldar tekjur vegna kaupa á hluta­bréfum á lægra verði en gang­verði, óheim­ilar úthlut­unar úr lög­að­ila og van­fram­tal­inna stjórn­ar­launa.

Þá eru stór mál sem snú­ast um tekjur vegna óheim­ilar úthlut­unar úr félögum og vegna fram­virkra samn­inga. Þar eru van­fram­taldar tekjur og fjár­magnstekjur upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna í ein­stökum málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár