Lofthrædda fjallageitin

Safnað fyrir útgáfu bókar á Karolina fund sem er inn­blásin af kvíða og fjallar um loft­hrædda geit.

Jóhanna Gunnþóra er höf­undur barna­bók­ar­innar Loft­hrædda fjalla­geitin. Hún útskrif­að­ist með B.A. úr heim­speki og við­skipta­fræði vorið 2017. Á tíma­bili glímdi Jóhanna við kvíða og er Loft­hrædda fjalla­geitin inn­blásin af þeirri til­finn­ingu. Hún hefur ástríðu fyrir mál­efnum tengdum til­finn­ingum og telur mik­il­vægt að tala opin­skátt um þær til þess að upp­ræta skömm­ina sem þeim getur fylgt. Jóhanna fékk Guðnýju Söru Birg­is­dóttur til liðs með sér til þess að teikna myndir í kringum sögu­þráð­inn en þær hafa verið bestu vin­konur í 17 ár. Guðný er að klára B.A. gráðu í mynd­list við Lista­há­skóla Íslands og notar vatns­lita­tækni við gerð mynd­anna.

Hvernig varð sagan um Loft­hræddu fjalla­geit­ina til?

„Sagan hefur verið í nokkurn tíma að taka á sig end­an­lega mynd. Ég hef lengi haft áhuga á því að skrifa og langað að elta þann draum. Ég hef leikið mér með alls konar stíla en mér hefur alltaf fund­ist barna­bækur heill­andi, enda kviknar lestr­ar­á­hug­inn oft þar. Sagan varð í raun til með einni skond­inni setn­ingu sem mér hafði dottið í hug: „Fjalla­geitin sem þjáð­ist af loft­hræðslu”. Titill bók­ar­innar breytt­ist svo í „Loft­hræddu fjalla­geit­ina”. Síðan hefur sagan þró­ast í miklu bita­stæð­ari sögu­þráð sem er inn­blás­inn af minni eigin reynslu af van­líðan, þá aðal­lega kvíða. Það ger­ist reyndar ekki fyrr en miklu seinna að þessi ein­falda setn­ing þró­ast yfir í barna­bók með mik­il­væg skila­boð.“

Hvaðan kom inn­blást­ur­inn fyrir sög­unni?

„Inn­blást­ur­inn fékk ég, eins og ég sagði hér að ofan, frá mér sjálfri. Til­finn­ingar geta verið flóknar og erf­iðar og ég átti um tíma erfitt með að tækla þær, ég höndl­aði ekki þegar erf­iðar til­finn­ingar komu upp heldur fór að spíra­l­ast með þeim. Þannig var ég farin ég að leyfa til­finn­ing­unum mínum að ráða ferð­inni, sem olli meiri kvíða. Nú hef ég unnið mikið í því að taka til­finn­ingum ekki svona alvar­lega. Ég tek eftir þeim þegar þær koma en reyni að ganga ekki inn í þær eða breyta af hvat­vísi út frá þeim. Það er alveg hægt að stoppa og anda. Mér finnst þetta hafa verið gríð­ar­lega frelsandi upp­götvun og mig lang­aði til að miðla þessu ein­hvern veg­inn áfram.

Setn­ing­una um loft­hræddu fjalla­geit­ina hafði ég skrifað niður hjá mér ein­hvern tíma og datt í hug að þetta gæti verið frá­bært tæki­færi til að skrifa barna­bók sem fjall­aði um þessa tog­streitu sem býr í mörgum. Það felst mót­sögn í þeirri setn­ingu að vera loft­hrædd fjalla­geit, það er skjön við það sem ætl­ast er til af henni úti í nátt­úr­unni. Eins leið mér með minn kvíða, ég var í tog­streitu við mig sjálfa því mér leið illa en fannst ég jafn­framt hafa allt til alls – góða vini og fjöl­skyldu, gekk vel í nám­inu og var (lík­am­lega) heil­brigð. Mér fannst ég ein­fald­lega ekki hafa rétt á því að líða illa. En við þurfum að læra að við stjórnum ekki öllu, síst til­finn­ingum okkar, og við getum lært að lifa með þeim og skilja þær betur án þess að þurfa að hrista þær af okkur eða bæla þær. Ég er sjálf mikil til­finn­inga­vera og hef verið frá því ég man eftir mér. Mér hefur liðið á skjön við þau sam­fé­lags­legu við­horf sem segja það eðli­legt að taka allt á hnef­anum sama hvað bjátar á, hvort sem það eru áföll eða almenn van­líðan. Það hefur verið ótrú­lega upp­lífg­andi að sætt­ast við mig sem til­finn­inga­veru og hætta að sjá það sem galla. Það er mitt sér­kenni og ég er mjög stolt af því og fyrir vikið hef ég eitt­hvað fram á að færa í and­legum mál­efnum. Um það snýst Loft­hrædda fjalla­geitin meðal ann­ars, að fagna fjöl­breyti­leik­anum.

Með því byrja nógu snemma að tala opin­skátt um til­finn­ingar tel ég að við getum spornað við því að margir lifi í tog­streitu við þær seinna meir. Þess vegna valdi ég að skrifa um þetta mál­efni í formi barna­bókar. Þar sem sagan er ætluð börnum er þetta auð­vitað skrifað út frá því, bókin er spenn­andi og skemmti­leg og fal­lega mynd­skreytt. Boð­skap­ur­inn leyn­ist svo þarna undir.“

Hver er boð­skap­ur­inn?

„Að við ættum að læra á til­finn­ingar okkar í stað þess að skamm­ast okkar fyrir þær eða finn­ast við þurfa að bæla þær. Jafn­framt vildi ég benda á kosti fjöl­breyti­leik­ans. við ættum að vera stolt af okkar sér­kennum því það er það sem gerir okkur frá­brugðin öðrum. Það þýðir líka að við höfum eitt­hvað fram á að færa sem aðrir hafa ekki og í því fel­ast mikil verð­mæti. Meg­in­skila­boð sög­unnar eru þau að van­líðan er til­finn­ing sem hægt er að yfir­stíga, hún varir ekki að eilífu. En til þess krefst hug­rekkis, að horfast í augu við vand­ann í stað þess að hlaupa frá honum.“

Hvers vegna völduð þið fjalla­geit fyrir aðal­per­sónu?

„Það er í raun ekki flókn­ara en svo að ég var að horfa á nátt­úru­lífs­þátt um fjalla­geitur. Fannst þetta alveg mögnuð dýr sem hoppa á milli hrika­legra brattra kletta­garða án þess að blása úr nös. Ég hugs­aði með mér hvernig það væri að vera loft­hrædd fjalla­geit, það hlyti að vera martröð!“

Hægt er að skoða verk­efnið nánar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár