Lyf gegn offitu

Í dag snýst lífs­bar­átta vest­rænna þjóða að miklu leyti um að halda aftur af mat­ar­lyst­inni og hemja átið svo ekki hljót­ist af skert lífs­gæði eða sjúk­dómar. En er það hægt með lyfja­gjöf?

Hér á árum áður sner­ist lífs­bar­áttan um að eiga nægan mat á borðum til að koma í veg fyrir nær­ing­ar­skort eða jafn­vel dauða. Í dag snýst lífs­bar­átta vest­rænna þjóða að miklu leyti um að halda aftur af mat­ar­lyst­inni og hemja átið svo ekki hljót­ist af skert lífs­gæði eða sjúk­dómar.

Sá vandi sem blasir við vegna offitu er mjög fjöl­breyttur og orsaka­þætt­irnir eru ekki síður fjöl­breyttir og flóknir. Það er því ekki að undra að lausn­irnar hafa verið margar og þrátt fyrir góðan árangur er enn leitað að end­ur­bættum leiðum til að draga úr offitu í hinum vest­ræna heimi.

Líkaminn stjórnar inn­töku nær­ing­ar­efna með flók­inni horm­óna­seytun, sem segir okkur hvenær við verðum svöng, hvenær við verðum södd og hvernig okkur líður eftir að hafa inn­byrt mat. Eitt af þeim horm­ónum sem stjórnar seddu­til­finn­ingu heitir GLP-1 og eru áhrif þess mest að því er talið er í und­ir­stúkunni.

Lyf sem heitir semiglutide hefur mjög svip­aða eig­in­leika og GLP-1. Semiglutide er lyf sem verið er að þróa gegn syk­ur­sýki en vegna GLP-1 skyld­leika þess þótti rann­sókn­ar­hópi við Uni­versity of Leeds til­valið að skoða hvort lyfið hefði áhrif á offitu.

Til að athuga áhrifin voru fengnir 28 sjálf­boða­liðar með mjög háan BMI stuðul, s.s í ofþyngd. Helm­ingur hóps­ins fékk semiglutide í 12 vikur, en á sama tíma fékk hinn helm­ing­ur­inn lyf­leysu. Eftir 12 vikna lyfja­gjöf var með­höndl­un­inni snúið svo lyf­leysu­hóp­ur­inn fékk semiglutide og öfugt, og aftur tók lyfja­gjöfin 12 vikur. Sjálf­boða­lið­arnir vissu aldrei hvort þeim var gefin lyf­leysa eða lyfið.

Í lok hvors 12 vikna tíma­bils voru hóp­arnir fengnir í rann­sókn þar sem þau fengu bæði hádegis og kvöld­mat. Fylgst var með vali sjálf­boða­lið­anna á fæðu, sem og magn­inu sem þau borð­uðu auk þess sem þátt­tak­endur svör­uðu spurn­inga­lista.

Í ljós kom að sjálf­boða­liðar sem fengu semiglutide misstu að með­al­tali 5 kíló á þeim 12 vikum sem með­höndlun stóð. Fæðuval þeirra hafði breyst svo þau völdu sér síður feitan mat auk þess sem þau borð­uðu að með­al­tali minna. Þegar efna­skipti sjálf­boða­lið­anna voru skoðuð kom ekki fram breyt­ing á þeim, sem þýðir að þyngd­ar­tapið má að öllum lík­indum ein­göngu rekja til breyt­inga á matar­æði.

Lyfja­gjöfin virt­ist draga úr teng­ingu sjálf­boða­lið­anna milli nær­ing­ar­inn­töku og vellíð­un­ar­til­finn­ing­unnar sem oft ýtir undir ofneyslu hjá fólki. Fáist svip­aðar nið­ur­stöður í stærri hóp sjálf­boða­liða má vænta þess að hægt verði að nota semiglutide til að draga úr offitu og fylgi­kvillum hennar hjá stórum hópi fólks. Rétt er þó að hafa í huga að offita er flók­inn vandi sem er til­kom­inn vegna alls kyns þátta og sömu úrræði henta alls ekki öllum.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár