Varpa nýju ljósi á erfðir húðlitar

Rann­sókn­ar­hópi hefur tek­ist að bera kennsl á nokkur svæði í erfða­efni þátt­tak­enda sem voru nátengd breyti­leika í húð­lit.

Mannfólk er gjarnt á að flokka bæði okkur og önnur dýr í mis­mun­andi hópa eftir útlitsein­kennum. Þetta birt­ist til dæmis í því hvernig við skil­greinum mis­mun­andi kyn­þætti eftir húð­lit. Þrátt fyrir þess­ari flokkun vitum í raun afar lítið um það af hverju húð­litur okkar stafar erfða­fræði­lega séð og það litla sem við vitum hefur fram að þessu að mestu komið frá rann­sóknum á Evr­ópu­búum.

Á dög­unum voru nið­ur­stöður rann­sóknar birtar sem stríða gegn því sem við höfum talið okkur vita um þróun húð­litar. Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn kann­aði tengslin á milli húð­litar og erfða í íbúum þriggja landa í Afríku, sem er sú heims­álfa þar sem mann­fólk er hvað fjöl­breytt­ast þegar kemur að erfðum og útliti.

Fleiri en 2.000 sjálf­boða­liðar úr 10 þjóð­hópum í Eþíópíu, Tanzaníu og Botswana tóku þátt í rann­sókn­inni. Vís­inda­menn­irnir mældu end­ur­varp ljóss á húð sjálf­boða­lið­anna sem gefur til kynna magn melan­íns í húð­inni. Einnig tóku þeir sýni af erfða­efni 1.570 sjálf­boða­lið­anna.

Rann­sókn­ar­hópnum tókst að bera kennsl á nokkur svæði í erfða­efni þátt­tak­enda sem voru nátengd breyti­leika í húð­lit. Þessi svæði voru í nágrenni við sex gen: SLC24A5, MFSD12, DDB1, TMEM138, OCA2 og HERC2 og áttu þessi gen þátt í 29% af breyti­leika í húð­lit í þeim þremur löndum sem þátt­tak­end­urnir voru frá.

Almennt hefur verið talið að þróun húð­litar hafi gengið þannig fyrir sig að mann­fólk, sem átti upp­runa sinn í Afríku, hafi í fyrstu verið dökkt á hör­und. Eftir því sem for­feður okkar flutt­ust frá heims­álf­unni tók húð­lit­ur­inn breyt­ingum eftir búsvæði og urðu sumir stofnar ljós­ari á hör­und en aðrir. Nið­ur­stöður þessar rann­sóknar benda þó til þess að þró­unin hafi verið önnur því sam­kvæmt grein­ingu á erfða­efni þátt­tak­enda í rann­sókn­inni eiga afbrigði fyrir bæði dökkri og ljósri húð upp­runa í Afríku fyrir hund­ruðum þús­unda ára. Í raun kom í ljós að sum eldri afbrigði gen­anna báru ábyrgð á ljósri húð en ekki dökkri.

Meðal gen­anna sem vís­inda­menn­irnir báru kennsl á var SLC24A5 genið en eitt afbrigði þess er meðal ann­ars þekkt fyrir að eiga hlut­verk í ljósum húð­lit þeirra sem rekja upp­runa sinn til Evrópu. Genið er talið hafa komið fram fyrir meira en 30.000 árum en sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar var það algengt í íbúum Eþíópíu og Tanzaníu sem gátu rakið ættir sínar til Suð­austur Asíu og Mið-Aust­ur­landa. Fram að þessu hefur þetta verið eitt þeirra gena sem talið hefur verið “Evrópskt” og tengt við ljósan húð­lit en er sam­kvæmt þessu einnig að finna í miklum mæli í íbúum Austur Afríku þó það hafi ekki sömu “lýsandi” áhrif og í þeim sem það bera í Evrópu.

Vís­inda­menn­irnir telja nið­ur­stöður þeirra benda til þess for­feður manna hafi haft ljósa húð undir feldi, líkt og er raunin með simpansa í dag. Með tím­anum hafi for­feð­urnir síðan tapað feld­inum og þróað með sér dekkri húð­lit sem varði þá betur fyrir sól­inni. Loks hafi flutn­ingur mann­kyns­ins um allan heim leitt til ljós­ari húð­litar hjá mann­fólki nær pól­unum þar sem hann hent­aði betur til nýmynd­unar á D-vítamíni á svæðum þar sem sól­ar­ljós gat verið af skornum skammti.

Ljóst er að enn frekar rann­sókna er þörf til að skýra þær flóknu erfðir sem liggja að baki húð­lit okkar. Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn vonar þó að í milli­tíð­inni muni nið­ur­stöður þeirra geta nýst til að sam­eina fólk því í raun sé húð­litur okkar afar slæm leið til að flokka mann­kynið. Erfða­fræði­lega séð séum við hreint ekki nógu ólík til að hægt sé að tala um kyn­þætti.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar birt­ust í tíma­rit­inu Science.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár