Loftslagsmaraþon í Reykjavík

Venju­legt fólk getur lagt sitt að mörkum í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar. Við getum t.d. passað að flokka ruslið okkar, nýta betur mat­inn okkar, minnka kjöt­neyslu og nota almenn­ings­sam­göngur meira svo dæmi séu nefnd.

Í umræð­unni um lofts­lags­mál ber oft á van­mætti almenn­ings gegn þeim breyt­ingum sem við mann­fólkið hrintum af stað fyrir margt löngu. Það er þó alls ekki svo að við sem ein­stak­lingar höfum engin tól til að sporna við hlýnun jarðar þó oft finn­ist okkur hindr­an­irnar óyf­ir­stíg­an­legar. Við getum t.d. passað að flokka ruslið okkar, nýta betur mat­inn okkar, minnka kjöt­neyslu og nota almenn­ings­sam­göngur meira svo dæmi séu nefnd.

Margir finna þó hjá sér þörf til að gera miklu meira og um leið hjálpa sam­borg­urum sínum að taka skref í átt að umhverf­is­vænni lífs­stíl. Það getur þó reynst erfitt að finna vett­vang fyrir slíkan boð­skap, annan en rök­ræður yfir kaffi­bolla eða á barnum, sem skila því miður mis­góðum árangri.

Verk­efnið Climathon eða lofts­lags­mara­þon, gæti þó vakið áhuga þeirra sem vilja leggja sitt af mörkum til að gera heim­inn að betri stað. Verk­efnið gengur útá sam­vinnu fólks úr mis­mun­andi hópum sam­fé­lags­ins sem leggja krafta sína saman til að finna lausnir við þeirri ógn sem lofts­lags­breyt­ingar eru.

Lofts­lags­mara­þonið er alþjóð­legt verk­efni runnð undan rifjum Climate-KIC, evr­ópskra sam­taka um lofts­lags­mál. Verk­efnið er nú haldið í þriðja sinn en í fyrsta skipti einnig á Íslandi. Mara­þonið stendur yfir í 24 klukku­stundir og fer sam­tímis fram í 237 borgum útum allan heim.

Verk­efnið hér í Reykja­vík er styrkt af Matís og Reykja­vík­ur­borg. Verk­efnið verður haldið í húsa­kynnum Matís að Vín­lands­leið 12 og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri mun hefja mara­þonið klukkan 13:00 þann 27. októ­ber næst­kom­andi. Frestur til að skrá sig til leiks er 15. októ­ber svo nú fer hver að verða síð­astur. Hægt er að skrá sig heima­síðu verk­efn­is­ins en upp­lýs­ingar er einnig að finna á facebook-síðu við­burð­ar­ins.

Þó hér sé um alþjóð­legt verk­efni að ræða standa ein­stak­lingar á Íslandi á bak við það að koma því á kopp­inn hér innan lands. Þetta verk­efni sýnir okkur hversu mik­ill dugn­aður býr í fólki sem raun­veru­lega vill breyta því hvernig við komum fram við nátt­úr­una, alveg á sama hátt og átakið Plast­laus Sept­em­ber gerði. Þessi verk­efnið eru því mik­ill inn­blástur og von­andi munum við sjá aukna umhverf­is­vit­und í kjöl­far þeirra.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár