Ofbeldi í æsku hefur áhrif á taugakerfið

Ný rann­sókn er lík­lega sú fyrsta til að sýna fram á hversu afger­andi áhrif ofbeldi getur haft á óþroskaðar sálir. Ofbeldi er ekki bara eitt­hvað sem börn gleyma eða þurfa að jafna sig á. Það getur breytt því hvernig efna­skipti eiga sér stað í heil­anum.

Þegar ein­stak­lingar verða fyrir ofbeldi á upp­vaxt­ar­árum sínum, hvort sem er and­legt, lík­am­legt eða kyn­ferð­is­legt, getur það haft ævi­langar afleið­ingar fyrir við­kom­andi. Vel er þekkt að ein­stak­lingar sem hafa þurft að takast á við slík áföll glíma oft við þung­lyndi á full­orð­ins árum og sjálfs­morð­s­tíðni meðal þeirra end­ur­speglar einnig þær alvar­legu afleið­ingar sem fólk horfir fram á.

Samkvæmt nýlega birtri rann­sókn sem unnin var við McGill háskóla í Kanada, eru þessi áföll ekki bara mæl­an­leg með þung­lynd­is­grein­ingum og sjálfs­morðum. Við getum einnig séð þessi áhrif á stórum og smáum breyt­ingum í tauga­kerf­inu.

Hópurinn við McGill háskóla vann út frá þeirri til­gátu að það að upp­lifa ofbeldi hefði áhrif á utan­gena­erfðir ein­stak­linga. Utan­gena­erfðir (epigenetics) eru breyt­ingar og merk­ingar á pökkun erfða­efn­is­ins sem hafa áhrif á hvernig gen eru tjáð.

Til að skoða þetta not­að­ist hóp­ur­inn við safn sýna úr heilum alls 78 ein­stak­linga. Þriðj­ungur sýn­anna komu frá heil­brigðum við­mið­un­ar­hóp, þriðj­ungur voru til­komin frá fólki sem hafði fallið fyrir eigin hendi en átti sér ekki sögu um ofbeldi í æsku. Síðasti þriðj­ungur sýn­anna til­heyrðu ein­stak­lingum sem einnig höfðu fallið fyrir eigin hendi og áttu sér sögu um ofbeldi í æsku.

Þegar erfða­efni mis­mun­andi hópa var borið saman kom í ljós að þeir ein­stak­lingar sem höfðu orðið fyrir ofbeldi sýndu breyt­ingar í tján­ingu gena sem koma við sögu í myndun og við­haldi mýelín-slíðra. Þegar vef­ur­inn sjálfur var svo skoð­aður með til­liti til mýelín-slíðra kom einnig í ljós að ein­stak­lingar sem orðið höfðu fyrir ofbeldi voru með mark­tækt minna slíður utan um tauga­frumur sínar ein þeir sem ekki höfðu orðið fyrir ofbeldi.

Mýelín-slíður eru sam­sett úr sér­stökum frumum sem vefja sig utan um langar tauga­frumur til að auka skil­virkni tauga­boða. Slíðrin búa til nokk­urs konar stak­steina fyrir tauga­boðin að hoppa á milli, svo í stað þess að taka langan tíma í að ferð­ast eftir löngum símum tauga­frumna, hoppa boðin yfir slíðrin og þannig ber­ast þau fyrr.

Þessi slíður taka að mynd­ast utan um frumur tauga­kerf­is­ins í kringum fæð­ingu ein­stak­lings og halda svo áfram að þroskast fram á full­orð­ins ár. Í tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dómum á borð við MS, þar sem sjúk­lingar missa hægt og bít­andi tauga­kerfið eru þessi mýa­lín-slíður gjörn á að eyð­ast.

Ofan­greind rann­sókn er lík­lega sú fyrsta til að sýna fram á hversu afger­andi og áþreif­an­leg áhrif ofbeldi getur haft á óþroskaðar sálir. Ofbeldi, af hvaða tagi sem það er, er ekki bara eitt­hvað sem börn gleyma eða þurfa að jafna sig á. Það getur raun­veru­lega breytt því hvernig efna­skipti eiga sér stað í heil­anum.

Þetta er kannski eitt­hvað sem ráða­menn lands­ins ættu að hafa í huga þegar lög um upp­reist æru koma til end­ur­skoð­unar.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár