Meirihluti fyrir frumvarpi um að veita stúlkunum ríkisborgararétt

Búið er að senda inn frum­varp til fram­lagn­ingar á Alþingi sem felur í sér að Haniye og Mary fái rík­is­borg­ar­ar­rétt. Þrír þing­flokkar standa að frum­varp­inu en aðrir þrír myndu að minnsta kosti að mestu styðja það ef kosið verður um frum­varpið.

Haniye ásamt föður sínum. Til stóð að vísa þeim úr landi á fimmtudag en því hefur verið frestað.
Haniye ásamt föður sínum. Til stóð að vísa þeim úr landi á fimmtu­dag en því hefur verið frestað. Mynd: Change.org

Þing­flokkar Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna og Pírata standa í heild að baki frum­varps sem felur í sér að komið yrði í veg fyrir að senda stúlk­urnar Haniye og Mary, ásamt fjöl­skyldum þeirra, úr landi. Frum­varpið hefur verið sent inn til Alþingis til fram­lagn­ingar og Sam­fylk­ingin hefur farið fram á að það verði for­gangs­mál sitt á kom­andi þingi, og fái þar með efn­is­lega með­ferð sem fyrst. Í því felst að stúlk­urnar og fjöl­skyldur þeirra fái íslenskan rík­is­borg­ara­rétt.

Heim­ildir Kjarnans herma að þing­flokkur Við­reisnar, og að minnsta kosti hluti þeirra fjög­urra þing­manna sem sitja á þingi fyrir Bjarta fram­tíð, muni styðja frum­varpið þótt að þeir standi ekki að fram­lagn­ingu þess, komi það til atkvæða­greiðslu.

Auk þess hefur Kjarninn heim­ildir fyrir því að þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins muni hafa algjör­lega frjálsar hendur til að styðja frum­varpið kjósi þeir svo, og þar sé mik­ill vilji til að grípa inn í þá atburða­rás að vísa stúlk­unum og fjöl­skyldum þeirra úr landi.

Þar með er meiri­hluti fyrir frum­varp­inu á þingi. Einungis þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins myndi standa heill gegn því, og standa þar með við bakið á dóms­mála­ráð­herra sem hefur lagst gegn sér­tækri lausn á máli stúlkn­anna.

Reyna að setja saman almenna lausn

Vegna þessa er búist við útspili frá rík­is­stjórn­inni sem geri það að verkum að frum­varpið þurfi ekki að ná fram að ganga. Það útspil á að snú­ast um almenn­ari nálgun á stöðu barna á meðal hæl­is­leit­enda en ná samt til þeirra Hanyie og Mary.

Sú leið er í sam­ræmi við útspil Bjartrar fram­tíðar í mál­inu. Þing­flokkur Bjartar fram­tíð­ar, sem situr í rík­is­stjórn, til­kynnti í gær að hann ætl­aði að leggja fram frum­varp um breyt­ingu á lögum um útlend­inga. Í til­kynn­ingu frá honum segir að breyt­ing­ar­til­lög­urnar muni „ snúa fyrst og fremst að stöðu barna og fólks í við­kvæmri stöðu, sem eins og fram hefur komið að und­an­förnu eru ákvæði sem þarf að skýra. Útlend­inga­lögin eru umfangs­mikil lög­gjöf og legið hefur fyrir frá sam­þykkt breyt­inga á þeim að lögin verða að vera lif­andi plagg, ekki síst gagn­vart þeim mála­flokkum sem eru í hraðri þró­un, líkt og mál­efni flótta­fólks og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.“

Búið að fresta brottvísun

Sig­ríð­­ur Andersen dóms­­­mála­ráð­herra sagði um helg­ina að ákvörðun um brott­vísun stúlkn­anna yrði ekki end­­­ur­­­skoð­uð. Það kæmi ekki til greina. Í sam­tali við RÚV sagði hún: „Nei, það kemur ekki til greina að end­­­ur­­­skoða mál sem dúkka hérna til­­­vilj­ana­­­kennt upp í umræð­unni. Það kemur ekki til greina af minni hálfu sem ráð­herra að taka fram fyrir hend­­­urnar á sjálf­­­stæðri stjórn­­­­­sýslu­­­stofnun eins og kæru­­­nefnd í málum sem hafa fengið tvö­­­falda máls­­­með­­­­­ferð hér á land­i.“

Í byrjun viku var svo greint frá því að Haniye og föður hennar hefði verið til­kynnt um að þeim yrði vísað úr landi á fimmtu­dag. Kjarninn greindi frá því í gær­kvöldi að Rík­is­lög­reglu­stjóri vilji láta fresta þeirri ákvörðun vegna form­galla á birt­ing­ar­vott­orði.

Sigríður sagði svo við

mbl.is

í dag að brott­vísun þeirra verði lík­lega frestað fram eftir sept­em­ber­mán­uði. Hún sagði þar einnig að það væri örugg­lega „

eitt­hvað sem er ástæða til að skerpa á varð­andi þessi mál al­mennt í fram­tíð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár