Húðfruma verður taugafruma

Rann­sókn­ar­hópur hefur búið til verk­færi sem umbreytir húð­frumu í hreyfi­tauga­frumu án þess að leiða frumur í stofn­frumu­fasa.

Sjúk­dómar sem herja á tauga­kerfið eru oft lítt skil­greindir og erf­iðir til rann­sókna vegna þess hve erfitt er að taka sýni úr tauga­kerfi lif­andi ein­stak­linga. Það gefur auga leið að til að skoða tauga­frumur sem hafa misst hæfni sína er ekki hægt að pilla burt aðra sem virkar í sjúk­lingnum. Tauga­frum­urnar eru nefni­lega mik­il­vægar fyrir ein­stak­ling­inn meðan hann lifir og end­ur­nýja sig yfir­leitt ekki.

Rann­sókn­ar­hópur við Washington Uni­versity in St. Louis hefur nú búið til verk­færi sem gætu verið mik­il­væg lóð á vog­ar­skálar slíkra rann­sókna. Verk­færið felst í leið til að umbreyta húð­frumu í hreyfi­tauga­frumur og það án þess að leiða frum­urnar í stofn­frumu­fasa.

Allar frumur lík­am­ans geyma sama erfða­efnið og hafa eig­in­leik­ann til að nota það allt saman. Það sem skil­greinir þær í mis­mun­andi frumu­gerðir er fyrst og fremst stjórnun á því hvaða hlutar erfða­efn­is­ins eru tjáðir hverju sinni.

Í tauga­kerf­inu eru það m.a. litlar kjarn­sýru­sam­eindir sem heita miR-9 og miR-124 sem gegna gríð­ar­stóru hlut­verki við að stjórna tján­ingu gena. Þessar sam­eindir sem flokk­ast undir svokölluð microRNA hafa áhrif á pökkun erfða­efn­is­ins í fru­munum.

Þegar miR-9 og miR-124 eru til staðar í frumu er opið fyrir tján­ingu á genum sem tengj­ast tauga­kerf­inu. En það sá rann­sókn­ar­hóp­ur­inn ger­ast í húð­frumum sem fengnar voru sem sýni af heil­brigðum ein­stak­lingum.

Þegar rann­sókn­ar­hóp­ur­inn bætti svo við prótínum, sem heita ISL1 og LHX3 tóku húð­frum­urnar að þroskast í átt að hreyfi­tauga­frumu­gerð. ISL1 og LHX3 eru svo­kall­aðir umrit­un­ar­þættir sem þýðir að nær­vera þeirra hvetur til tján­ingar á ákveðnum genum í erfða­meng­inu, sem miR-9 og miR-124 hafa í þessu til­felli haldið ópökk­uðu í fru­munum.

Þegar við horfum á manns­lík­amann finnst okkur kannski frá­leitt að breyta frumum í húð­inni yfir í tauga­frumu en reyndin er sú að tauga­kerfið og húðin er upp­runnið af sama meiði í fóst­ur­þroska. Það er m.a. þess vegna tókst hópnum að leiða húð­frum­urnar í átt að myndun tauga­frumna, án þess að gera þær fyrst að vefja­sér­hæfðum stofn­frumum.

Í rann­sókn­inni sem hér er rædd var not­ast við húð­frumur úr heil­brigðum ein­stak­lingum, en það má leiða að því líkur að væri not­ast við frumur úr ein­stak­lingum sem þjást af ein­hvers konar tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dómi mætti sjá ákveð­inn mun í t.d. gena­tján­ingu sam­an­borið við frumur úr heil­brigðum ein­stak­ling. Þannig væri t.d. mögu­leiki að skil­greina hvað það er sem fer úrskeiðis þegar um tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dóm er að ræða.

Fréttin birt­ist upp­runa­lega á hvat­inn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár