Mjólkurmolar í kaffið

Rann­sókn­ar­hópur hefur hannað mjólk­ur­mola sem sparar rusl og inni­heldur fljót­andi mjólk inni í syk­ur­krist­alla­hylki.

Kaffi er upp­á­halds­drykkur margra, enda fjöldi fólks sem telur dag­inn ekki haf­inn fyrr en búið er að dreypa á fyrsta kaffi­boll­anum. Notkun á mjólk og stundum sykri er vel þekkt og mætti jafn­vel full­yrða að a.m.k. helm­ingur þeirra sem drekka kaffi velja að drekka það með slettu af mjólk.

Þessi mjólk­ur­sletta getur valdið nokkrum vand­ræðum þegar kaffi er drukkið við ákveðnar aðstæður, t.d. í flug­vélum eða á ráð­stefnum. Við slíkar aðstæður þykir oft ekki fýsi­legt að vera með stóra mjólk­ur­fernu. En til að gera mjólk­ur­drykkju­fólki til hæfis eru oft til staðar pínu­litlar umbúðir sem inni­halda akkúrat það sem sam­svarar einni slettu af mjólk.

Það gefur auga leið að litlu fern­urnar skilja eftir sig gommu af rusli, aðal­lega plasti, sem gott er að forð­ast. Til að leysa þetta vanda­mál hefur rann­sókn­ar­hópur við Martin-Luther-Uni­versität Halle-Wittenberg hannað nokk­urs konar mjólk­ur­mola, mola sem inni­halda fljót­andi mjólk inní syk­ur­krist­alla­hylki.

Mjólk­ur­mol­arnir verða til þegar mjólk­inni og súkrósa eða gervi­sykrinum eryt­hritol er blandað saman og síðan kælt á ákveð­inn hátt í sér­stökum formum. Við kæl­ing­una mynda syk­ur­sam­eind­irnar krist­alla sem rað­ast upp utan um mjólk­ina. Inní hylk­inu er því fljót­andi mjólk sem bland­ast við kaffið þegar syk­ur­inn hefur bráðnað saman við það.

Samkvæmt rann­sóknum hóps­ins geta mol­arnir enst í allt að 3 vikur, svo það er til­valið fyrir flug­fé­lög eða hótel að nýta þennan kost til að minnka sorpið. Því miður er staðan ennþá þannig að þeir hafa engan áhuga á því að drekka sykrað kaffi geta ekki nýtt þessi hylki. En við treystum á að lausn við því verði fundin fyrr en varir. Á sama tíma er einnig unnið að því að skoða hvort hylkin upp­fylli allar þær kröfur sem við gerum til mat­væla, en fyrr er ekki hægt að selja mjólk­ur­mol­ana sem mat­vöru.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár