Búist við verðhækkunum á áli

Heims­mark­aðs­verð á áli hefur ekki verið hærra síðan í nóv­em­ber 2014, en sam­kvæmt hag­fræði­deild Lands­bank­ans má búast við enn frek­ari verð­hækk­unum á næstu miss­erum.

Minna framboð og meiri eftirspurn af áli hefur leitt til verðhækkana.
Minna fram­boð og meiri eft­ir­spurn af áli hefur leitt til verð­hækk­ana. Mynd: EPA

Heims­mark­aðs­verð á áli náði 2.040 Banda­ríkja­dölum á tonnið í síð­ustu viku, en það hefur ekki verið hærra síðan í nóv­em­ber árið 2014. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu hag­fræði­deildar Lands­bank­ans fyrr í dag, en deildin spáir einnig frek­ari verð­hækk­unum.

Verð á áli hefur verið í nokk­urri lægð síð­ustu árin, ásamt verði á gulli, kopar, olíu og öðrum hrá­vörum. Hins vegar hefur nokkur við­snún­ingur verið á mark­aðnum und­an­farna mán­uði, þar sem hrá­vöru­verð hefur farið nokkuð hækk­andi aftur. Verð­hækk­un­ina má útskýra auk­inni eft­ir­spurn margra landa, en efna­hags­horfur eru til­tölu­lega góðar á alþjóða­vísu þessa stund­ina.

Það sem af er ári hefur mark­aðs­verð áls hækkað um 20%, en sam­kvæmt Lands­bank­anum er það mesta hækkun allra helstu hrá­vara á þessu tíma­bili.

Verð­hækkun áls var sér­stak­lega snörp í síð­ustu viku, en á fimm dögum hækk­aði virði málms­ins um 8%. Að mati hag­fræði­deildar Lands­bank­ans er verð­hækk­unin til­komin vegna umhverf­isátaks Kín­verskra stjórn­valda, en þau hafi látið loka fjölda ólög­legra fram­leiðslu­ein­inga þar í landi til þess að draga úr meng­andi álf­ram­leiðslu.

Meiri­hluti álf­ram­leiðslu fer fram í Kína, eða um 60%. Samkvæmt til­kynn­ing­unni eru enn frek­ari verk­smiðju­lok­anir boð­aðar, en þær ættu að hafa telj­andi áhrif á fram­boð á heims­vísu svo búast mætti við frek­ari verð­hækk­ana á áli á næst­unni. Einnig virð­ist eft­ir­spurn vera að taka við sér á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár