Sprenging í fjölgun erlendra ríkisborgara

Greina má stefnu­breyt­ingu í fjölda aðfluttra umfram brott­fluttra erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi, en fjöldi þeirra á vor­mán­uðum 2017 er sá lang­mesti í sjö ár.

Aðfluttir umfram brott­fluttra á Íslandi voru 3.400 á öðrum árs­fjórð­ungi í ár, en þeir hafa ekki verið fleiri í sjö ár sam­kvæmt nýbirtum tölum Hagstofu. Mest er fjölg­unin meðal erlendra rík­is­borg­ara, en einnig virð­ast fleiri Íslend­ingar snúa aftur heim eftir að hafa flutt út vegna krepp­unnar. Miðað við þróun síð­ustu ára má búast við tæp­lega þrefalt fleiri aðfluttum umfram brott­fluttra á þessu ári.

Erlendir ríkisborgarar drifkrafturinn

Ef miðað er við annan árs­fjórð­ung 2016 hefur aðfluttum umfram brott­fluttra á Íslandi fjölgað um 128%. Aukning aðfluttra er aðal­lega til­komin vegna spreng­ingar í fjölgun erlendra rík­is­borg­ara, en þeim fjölg­aði um 3.130 í vor, miðað við 1.330 í fyrra­vor. Samhliða því jókst fjölgun aðfluttra Íslend­inga einnig nokkuð, eða um 270 í vor miðað við 150 í fyrra­vor. Fjölg­unin ár er sú hrað­asta sem átt hefur sér stað á síð­ustu sjö árum, eins og sjá má á mynd hér að neðan.

Breyting á þróuninni

Fólks­flutn­ingar á Íslandi eru árs­tíða­bundnir, en iðu­lega flytj­ast fleiri hingað að á vorin á meðan fleiri flytja frá landi að hausti til. Tölur frá öðrum árs­fjórð­ungi eru því oft ekki í sam­ræmi við árs­tölur um fólks­flutn­inga, en gætu hins vegar gefið ágæta mynd af því sem koma skal ef skoðuð er þróun milli ára.

[adspot]

Und­an­farin sex ár hefur að með­al­tali 41,5% aðfluttra komið til lands­ins á fyrri hluta árs­ins á meðan 39,8% brott­fluttra hafa farið burt á fyrri hluta árs­ins. Ef tölur fyrsta og ann­ars árs­fjórð­ungs eru umreikn­aðar út frá því með­al­tali má búast við að 862 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar muni snúa aftur heim en flytji af landi brott og 10.237 erlendir rík­is­borg­arar sömu­leiðis.

Samtals myndi aðfluttum því fjölga um 11.099, en til sam­an­burðar fjölg­aði þeim um 3.910 í fyrra. Gangi því útreikn­ing­arnir eftir má því búast við að aðfluttum umfram brott­fluttra muni nær þre­fald­ast á einu ári.

Íslendingar komi aftur heim

[links]Fólks­flutn­ingar til og frá Íslandi hafa verið meira og minna í takti við hag­sveiflu lands­ins. Eftir fjár­málakrepp­una fór fólk að flytja úr landi í meira mæli, en á tíma­bil­inu 2009-2015 var árlegur fjöldi brott­fluttra umfram aðfluttra rúm­lega 1.200 að með­al­tali. Síðustu ár hefur þeim svo fækkað aftur, en í fyrra fluttu tæp­lega 200 fleiri Íslend­ingar af landi brott en aftur heim.

Útlit er fyrir að brott­fluttum Íslend­ingum muni fækka enn frekar sam­hliða fjölgun aðfluttra ef litið er á nýbirtar árs­fjórð­ungs­tölur Hagstofu. Að því gefnu að árs­tíð­ar­mynstur fólks­flutn­inga hald­ist óbreytt milli ára má gera ráð fyrir að aðfluttir Íslend­ingar verði fleiri en brott­fluttir í ár, í fyrsta skiptið síðan árið 2005. Fjölgun aðfluttra Íslend­inga umfram brott­fluttra má að ein­hverju leyti skýra með því að margir þeirra séu nú að snúa aftur heim eftir að hafa flutt út í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar árið 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár