Færri Íslendingar flutt af landi brott í faraldri

Sam­setn­ing brott­fluttra og aðfluttra hefur breyst tölu­vert í kór­ónu­veiru­far­aldri. Í fyrra fluttu 506 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar til lands­ins en frá því og hefur fjöld­inn ekki verið meiri síðan 1987.

Stór hluti fólksfjölgunar hér á landi er tilkominn vegna fólksflutninga.
Stór hluti fólks­fjölg­unar hér á landi er til­kom­inn vegna fólks­flutn­inga. Mynd: Bára Huld Beck

Hlutfall íslenskra rík­is­borg­ara af þeim sem flytj­ast hingað til lands hefur verið mun hærra und­an­farin miss­eri heldur en fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur. Á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs var 37 pró­sent af mann­fjölda­aukn­ingu sem rekja má til búferla­flutn­inga til­komin vegna íslenskra rík­is­borg­ara sem fluttu til lands­ins. Þetta hlut­fall var átta pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2019. Fjallað er um sam­setn­ingu brott­fluttra og aðfluttra í nýrri Hagsjá Lands­bank­ans.

Á öðrum árs­fjórð­ungi fluttu alls 2.490 ein­stak­lingar til lands­ins sem er tæp­lega helm­ings aukn­ing frá sama árs­fjórð­ungi í fyrra. „Fjöldi aðfluttra í heild er nokkuð áþekkur því sem sást á öðrum árs­fjórð­ungi 2019 áður en heims­far­ald­ur­inn braust út. Sam­setn­ing aðfluttra hefur þó tekið breyt­ingum þar sem íslenskir rík­is­borg­arar eru hlut­falls­lega fleiri en áður,“ segir í Hag­sjánni.

Þar kemur fram að brott­fluttum hafi fjölgað nokkuð eftir að heims­far­aldur braust út og enn mæl­ast brott­fluttir fleiri en á sama tíma árið 2019. Helst eru það erlendir rík­is­borg­arar sem hafa flutt af landi brott en færri íslenskir rík­is­borg­ara hafa flust búferlum til útlanda. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands fluttu 1.540 af landi brott á árs­fjórð­ungnum og því nam fjöldi aðfluttra umfram brott­flutta alls 950 á fjórð­ungnum.

Brottfluttir Íslendingar ekki verið færri síðan 1993

Far­ald­ur­inn olli því að mun færri Íslend­ingar fluttu af landi brott heldur en áður. Í fyrra fluttu alls 2.667 íslenskir rík­is­borg­arar til lands­ins sem er svip­aður fjöldi og á síð­ustu árum. „Einungis 2.161 fluttu hins vegar af landi brott og hafa þeir ekki verið færri síðan 1993. Sam­an­lagt fluttu 506 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar til lands­ins en frá því í fyrra og hefur sá fjöldi ekki verið meiri síðan 1987.“

Staðan er önnur þegar horft er til erlendra rík­is­borg­ara. Í fyrra fluttu alls 5.828 erlendir rík­is­borg­arar af landi brott. Sú tala hefur ekki mælst jafn há síðan árið 2008. Þá hefur fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem hingað flytja einnig dreg­ist saman. Í fyrra fluttu hingað 7.562 erlendir rík­is­borg­arar en að jafn­aði fluttu um 11 þús­und erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins á ári á árunum 2017 til 2019.

Rúmlega helmingur fólksfjölgunar á fjórðungnum vegna aðfluttra

Í hag­sjánni segir að mann­fjölda­aukn­ing á Íslandi á síð­ustu árum hafi verið drifin áfram á aðflutn­ingi fólks. Á árunum 2016 til 2019 hafi til að mynda verið hægt að rekja um 70 til 80 pró­sent af mann­fjölda­aukn­ingu á hverju ár til fólks­flutn­inga. Nú sé um helm­ingur mann­fjölda­aukn­ingar til­kom­inn vegna fólks­flutn­inga. „Hægt hefur á þeirri þróun og í fyrra var um 50% af mann­fjölda­aukn­ing­unni vegna fólks­flutn­inga sem er engu að síður nokkuð hátt hlut­fall og til marks um að Íslandi sé enn, og verði áfram, ákjós­an­legur staður til þess að búa og starfa.“

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar var mann­fjöldi hér á landi við lok ann­ars árs­fjórð­ungs 371.580. Fjöldinn jókst um 1.700 á milli fjórð­unga en líkt og áður segir var fjöldi aðfluttra umfram brott­flutta á fjórð­ungnum 950. Þar af leið­andi var hlutur fólks­flutn­inga í mann­fjölda­aukn­ing­unni á fjórð­ungnum tæp 56 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár