Pólverjar á Íslandi orðnir um 17 þúsund

Fyrir 20 árum bjuggu 820 Pól­verjar á Íslandi. Þeir eru nú um 17 þús­und tals­ins. Það eru fleiri en heildar­í­búa­fjöldi Reykja­nes­bæjar eða Garða­bæjar.

Tæp­lega helm­ingur félags­manna Efl­ingar stétt­ar­fé­lags er fólk af erlendum upp­runa þar af helm­ing­ur­inn Pól­verj­ar
Tæp­lega helm­ingur félags­manna Efl­ingar stétt­ar­fé­lags er fólk af erlendum upp­runa þar af helm­ing­ur­inn Pól­verj­ar Mynd: Bára Huld Beck

Þann 1. jan­úar 1998 bjuggu 820 ein­stak­lingar sem fæddir voru í Póllandi á Íslandi. Í byrjun árs 2017 voru þeir 13.811 og þegar það ár var liðið höfðu 3.191 erlendir rík­is­borg­arar frá Póllandi bæst við hér­lendis og heild­ar­fjöldi þeirra þar með orð­inn rúm­lega 17 þús­und. Fjöldi þeirra sem annað hvort eru fæddir í Póllandi eða eru pólskir rík­is­borg­arar en búa á Íslandi hefur því 21fald­ast á 20 árum. Þetta má lesa út úr nýjum tölum Hagstofu Íslands um flutn­inga til lands­ins.

[links]Á árinu 2017 fluttu alls 4.549 ein­stak­lingar með pólskt rík­is­fang en 1.315 slíkir fluttu frá því. Þeim fjölg­aði því um 3.234 í fyrra. Samtals bjuggu þar af leið­andi 17.045 ein­stak­lingar á Íslandi um síð­ustu ára­mót sem annað hvort fædd­ust í Póllandi eða eru með pólskt rík­is­fang.

Til að setja þá tölu í sam­hengi þá eru níu af 72 sveit­ar­fé­lögum lands­ins með íbúa­fjölda yfir fimm þús­und. Allir íbúar Reykja­nes­bæjar voru 16.350 um síð­ustu ára­mót og í Garðabæ bjuggu 15.709 manns.

Nýtt met í fjölda aðfluttra í fyrra

Alls flutt­ust 8.240 manns til Ísland í fyrra umfram þá sem fluttu af landi brott. Lang­flestir þeirra voru erlendir rík­is­borg­ar­ar, en 7.888 fleiri slíkir fluttu til Íslands en frá land­inu á árinu 2017. Alls flutt­ust 14.929 til lands­ins en 6.689 frá því. Það er lang­mesti fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem hingað hefur flutt á einu ári í sögu lands­ins. Fyrra metið var sett árið 2007 þegar 12.546 fluttu hing­að. Fjöldi aðfluttra í fyrra var því 19 pró­sent meiri en á fyrra metári.

[adspot]Á tveimur árum, 2016 og 2017, fluttu 12.103 fleiri erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins en frá því. Til sam­an­burðar má nefna að átta árin þar á undan var sam­an­lagður fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem flutti til Íslands umfram þá sem fluttu burt 5.568. Fjöld­inn sem hingað hefur flutt á síð­ustu tveimur árum er auk þess meiri en hann var á góð­ær­is­ár­unum 2006 og 2007. Þá fluttu sam­tals 10.834 erlendir rík­is­borg­arar til Íslands umfram þá sem fluttu á brott. Aukn­ingin á síð­ustu tveimur árum er því um tólf pró­sent umfram þann aðflutn­ing sem átti sér stað þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár