Danmörk helsti áfangastaður brottfluttra Íslendinga

Á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins flutt­ust 880 Íslend­ingar til Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar. Á sama árs­fjórð­ungi flutt­ust 1.560 ein­stak­lingar til lands­ins umfram brott­flutta.

Nørrebro í Kaupmannahöfn
Nørrebro í Kaup­manna­höfn Mynd: Wiki Commons

Meiri­hluti íslenskra rík­is­borg­ara sem fluttu frá land­inu á þriðja árs­fjórð­ungi 2019 flutti til Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar eða alls 880 Íslend­ingar. Þá var Danmörk helsti áfanga­stað­ur­inn en þangað flutt­ust alls 500 manns. Flestir aðfluttir íslenskir rík­is­borg­ara komu jafn­framt frá þessum þremur löndum eða alls 670 manns. Frá þessu er greint á vef Hagstofu Íslands.

Fleiri flytja til Íslands en af landi brott

Í lok þriðja árs­fjórð­ungs þessa árs bjuggu 362.860 manns á Íslandi, 186.220 karlar og 176.640 konur. Lands­mönnum fjölg­aði um 2.470 á árs­fjórð­ungnum. Alls fædd­ust 1.250 börn en 540 ein­stak­lingar lét­ust.

Á sama tíma flutt­ust 1.560 ein­stak­lingar til lands­ins umfram brott­flutta. Brott­fluttir ein­stak­lingar með íslenskt rík­is­fang voru 210 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar voru 1.770 fleiri en þeir sem flutt­ust frá land­inu.

Af þeim 1.280 erlendu rík­is­borg­urum sem flutt­ust frá land­inu fóru flestir til Póllands, eða 370 manns. Pólland var jafn­framt upp­runa­land flestra erlendra rík­is­borg­ara, en þaðan flutt­ust 790 til lands­ins af alls 3.050 erlendum inn­flytj­endum. Litháen kom næst, en þaðan flutt­ust 250 erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins.

Í heild­ina bjuggu í lok ann­ars árs­fjórð­ungs 48.640 erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi, eða 13,4 pró­sent af heild­ar­mann­fjölda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár