Fleiri komu heim í fyrsta sinn frá hruni

Fleiri Íslend­ingar fluttu heim í fyrra frá Noregi, Danmörku og Svíþjóð sam­an­lagt en fluttu til þess­ara landa. Þetta er í fyrsta sinn frá hruni sem fleiri koma heim frá þessum ríkjum en fara til þeirra. Í heild­ina fluttu samt fleiri burt en heim.

Tíu fleiri Íslend­ingar fluttu til Íslands frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð í fyrra heldur en fluttu til þess­ara landa. Þetta er í fyrsta sinn frá hruni sem fleiri flytj­ast heim frá þessum löndum en flytja til þeirra, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar.

Hag­stofan tekur saman tölur um brott­flutn­ing og aðflutn­ing, en töl­urnar fyrir árið 2016 hafa ekki verið birtar í heild sinni. Hins vegar hafa þær verið birtar að hluta fyrir hvern árs­fjórð­ung og því er hægt að reikna út töl­urnar fyrir árið.

Miðað við það fluttu 2.130 Íslend­ingar til Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar á árinu 2016. Á sama tíma fluttu 2.140 Íslend­ingar til lands­ins frá þessum þremur löndum, en meiri­hluti flutn­inga Íslend­inga milli landa er til og frá þessum þremur nágranna­ríkjum Íslands.

Danmörk var vin­sæl­asti áfanga­staður Íslend­inga sem fluttu utan í fyrra, en 990 Íslend­ingar flutt­ust búferlum til Dan­merkur af þeim 3.250 sem alls fluttu burt frá Íslandi. Hins vegar komu flestir Íslend­ingar heim frá Noregi í fyrra, 850 tals­ins af þeim 3.080 sem fluttu heim á árinu. 820 Íslend­ingar komu einnig heim frá Danmörku í fyrra, svo ekki mun­aði mjög miklu á lönd­unum tveimur.

Samkvæmt töl­unum var árið í fyrra einnig það ár frá hruni sem fæstir Íslend­ingar ákváðu að flytja burt frá Íslandi til þess­ara þriggja landa. Flestir Íslend­ingar fluttu burt árið 2009, 3.546 tals­ins. 

Fleiri fóru en komu á heildina litið

Þegar litið er á heild­ar­brott­flutn­ing og -aðflutn­ing Íslend­inga kemur hins vegar í ljós að fleiri fluttu frá land­inu en aftur heim í fyrra. Brott­fluttir Íslend­ingar voru 190 fleiri en aðfluttir, sam­kvæmt tölum frá Hag­stofu Íslands.

Mun­ur­inn á milli þeirra sem flytja burt og heim var mun minni en árið 2015, sem var eitt mesta brott­flutn­ingsár frá því að mæl­ingar hófust. Þá fluttu 1265 fleiri Íslend­ingar úr landi en til lands­ins. Aðeins fimm sinnum áður frá árinu 1961 höfðu mark­tækt fleiri brott­­fluttir verið umfram aðflutta. Í öll þau skipti var það í kjöl­far kreppu­ára hér á landi, meðal ann­ars árin 2009-2011. Árið 2015 skar sig tölu­vert úr af því að ekki ríkti kreppa það ár.

Sam­kvæmt töl­unum fluttu 3080 íslenskir rík­is­borg­arar til lands­ins á árinu 2016 en 3250 fluttu burt. Allt árið 2015 fluttu hins vegar 2380 Íslend­ingar heim á meðan 3875 fluttu burt. Hag­stofan hefur spáð því í mann­fjölda­spá sinni að þróun mann­fjöld­ans verði áfram með þessum hætti, það er að fleiri flytji burt en heim, á hverju ári fram til árs­ins 2065.

Bjugg­ust við meiri aðflutn­ingi en brott­flutn­ingi

Mikið hefur verið rætt um aðflutn­ing og brott­flutn­ing Íslend­inga und­an­farin miss­eri. Bjarni Bene­dikts­son, þá fjár­mála­ráð­herra en nú for­sæt­is­ráð­herra, sagði til að mynda í tvígang síð­ast­liðið haust að í fyrsta skipti í mörg ár væri útlit fyrir að á árinu 2016 myndu fleiri Íslend­ingar flytj­ast til lands­ins en frá land­in­u.

Þetta byggði Bjarni meðal ann­ars á gögnum frá Vinnu­mála­stofn­un, sem setti fram spá fyrir árið. Kjarn­inn hafði þá sam­band við Vinnu­mála­stofnun til að fá upp­lýs­ingar um það hvernig spáin hefði verið unn­in.

Í svari Vinn­u­­mála­­stofn­unar kom fram að tölur um brott­­flutta og aðflutta á fyrri helm­ingi árs­ins hafi verið upp­­­reikn­aðar til árs­loka út frá reynslu und­an­far­inna ára, það er að um það bil 40 pró­­sent búferla­­flutn­inga Íslend­inga komi fram á fyrri helm­ingi árs­ins og um 60 pró­­sent á þeim síð­­­ari. Það gildi bæði um brott­­flutta og aðflutta. Því var þess vegna spáð að um 136 fleiri Íslend­ingar myndu flytja til lands­ins en frá því. Það var ávallt tekið skýrt fram að aðeins væri um spá að ræða, sem byggði á því að um það bil 40 pró­­sent flytji til og frá land­inu á fyrri hluta árs en um það bil 60 pró­­sent á seinni hlut­an­­um.

Und­an­farin sex ár hefur þetta hlut­­fall verið á bil­inu 38 pró­­sent til tæp­­lega 44 pró­­sent á fyrri hluta árs hjá aðflutt­um, og sömu sögu má segja hjá brott­­flutt­­um. Þá gat verið tals­verður munur á hlut­­falli brott­­fluttra og aðfluttra innan hvers árs.

Að með­­al­tali hefur 41,5% aðfluttra komið til lands­ins á fyrri hluta árs­ins und­an­farin sex ár á meðan 39,8% brott­­fluttra hafa farið burt á fyrri hluta árs­ins. Ef upp­­­reiknað væri miðað við þessar tölur væri spáin öðru­­vísi, og myndi sýna örlítið fleiri brott­­flutta en aðflutta, eða um 11 manns. Þetta sýnir hversu erfitt er að spá fyrir um flutn­ings­­jöfn­uð­inn þegar mun­­ur­inn á milli aðfluttra og brott­­fluttra er orð­inn svona lít­ill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár