Pólverjar á Íslandi orðnir tæplega 20 þúsund

Fyrir 20 árum bjuggu um þús­und Pól­verjar á Íslandi en þeir eru nú um 20 þús­und tals­ins. Það eru fleiri en heildar­í­búa­fjöldi Reykja­nes­bæjar eða Garða­bæjar.

Frá árinu 1996 hafa flestir erlendir rík­is­borg­ara sem búsettar hafi verið hér á landi verið frá Póllandi. Þann 1. jan­úar bjuggu 1.038 ein­stak­lingar sem annað hvort fædd­ust í Pól­landi eða voru með pólskt rík­is­fang hér á landi en í júlí 2019 voru þeir orðnir 19.909. Fjöldi Pólverja hér á landi hefur því rúm­lega 19 fald­ast á 20 árum.

Fleiri en heildaríbúafjöldi Reykjanesbæjar eða Garðabæjar

Í nýj­ustu tölum Þjóð­skrár um fjölda íbúa eftir rík­is­fangi kemur fram að þann 1. júlí 2019 voru 46.717 erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi og að þeim hafi fjölgað um 5,8 pró­sent á síð­ustu sjö mán­uðum.

Þar af voru tæp­lega 20.000 rík­is­borg­arar frá Póllandi en þeim hefur fjölgað um 3,7 pró­sent frá síð­asta des­em­ber. Til að setja þá tölu í sam­hengi þá voru íbúar Reykja­nes­bæjar 18.922 í jan­úar 2019 og íbúar Garða­bæjar 16.299.

Ein­stak­lingar með pólskt rík­is­fang hafa verið fjöl­menn­astir erlendra rík­is­borg­ara frá árinu 1996. Á þessu var þó und­an­tekn­ing árið 2004, þegar ein­stak­lingar með portú­galskt rík­is­fang voru fjöl­menn­astir aðfluttra erlendra rík­is­borg­arar. Fyrir árið 1996 voru danskir rík­is­borg­ara oft­ast fjöl­menn­astir erlendra rík­is­borg­ara sem flutt­ust til lands­ins.

Í tölum Þjóð­skrár má einnig sjá að í byrjun júlí 2019 voru 4.388 ein­stak­lingar með lit­háískt rík­is­fang hér á land en þeim fjölg­aði um 7,2 pró­sent frá 1. des­em­ber 2018.

Flutningsjöfnuðurinn aldrei verið hærri en síðustu tvö ár

Árið 2018 flutt­ust 6.556 fleiri til Íslands en frá land­inu. Það eru nokkuð færri en metárið 2017 þegar aðfluttir umfram brott­flutta voru 8.240. Flutn­ings­jöfn­uður hefur aldrei verið hærri en síð­ustu tvö ár en næst þeim koma árin 2006 og 2007 þegar um 5.200 fleiri flutt­ust til lands­ins en frá því.

Í fyrra flutt­ust alls 3.897 ein­stak­lingar með pólskt rík­is­fang til lands­ins og Pól­verjar voru einnig fjöl­menn­astir þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem fluttu frá land­inu árið 2018 eða alls 1.707 ein­stak­lingar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár