Atvinnuþátttaka kvenna aldrei verið meiri

Fleiri konur en karlar eru með háskóla­próf, óleið­réttur launa­munur kynj­anna var 14% árið 2015 og atvinnu­þátt­taka kvenna hefur aldrei verið meiri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum Hag­stof­unnar.

Atvinnu­þátt­taka kvenna var tæp 80 pró­sent í fyrra, og hefur aldrei verið hærri. Atvinnu­þátt­taka karla var rúm 87 pró­sent. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands, sem gefur út bæk­ling­inn Konur og karlar á Íslandi 2017 í sam­starfi við Jafn­rétt­is­stofu og vel­ferð­ar­ráðu­neytið í til­efni af alþjóð­legum bar­áttu­degi kvenna.

Óleið­réttur launa­munur kynj­anna hjá full­vinn­andi laun­þegum var rúm­lega fjórtán pró­sent árið 2015. Tæplega helm­ingur kvenna á aldr­inum 25 til 64 ára var með háskóla­menntun í fyrra, sam­an­borið við þriðj­ung karla á sama aldri. Hlut­föllin eru öfug þegar kemur að starfs- og fram­halds­menntun, slíka menntun hafa 45% karla en 30% kvenna.

Þá eru konur nú 48 pró­sent alþing­is­manna eftir síð­ustu kosn­ingar, og 44 pró­sent kjör­inna sveit­ar­stjórn­ar­manna, en í mörgum áhrifa­stöðum er hlutur kvenna lægri.

Hlutfall kvenna í stöðu fram­kvæmda­stjóra er ólíkt eftir stærð fyr­ir­tækis. Konur voru 22% fram­kvæmda­stjóra í fyr­ir­tækjum með einn til 49 starfs­menn, en í fyr­ir­tækjum með 250 eða fleiri starfs­menn eru konur níu pró­sent fram­kvæmda­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjahlutföll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár