Konur standa frammi fyrir ýmsum hindrunum í íslensku atvinnulífi

Kvenkyns milli­stjórn­endur í íslenskum fyr­ir­tækjum standa frammi fyrir ýmsum óáþreif­an­legum hindr­unum, sam­kvæmt nýrri grein þriggja fræði­mannna við HÍ.

Margar hindranir bíða konum í stjórnendastöðum íslenskra fyrirtækja.
Margar hindr­anir bíða konum í stjórn­enda­stöðum íslenskra fyr­ir­tækja. Mynd: Flickr

Karllæg menn­ing og lang­lífar staðalí­myndir eru meðal hind­r­ana sem kven­kyns milli­stjórn­endur íslenskra fyr­ir­tækja standa frammi fyrir. Þetta er ein af nið­ur­stöðum greinar Unnar Dóru Ein­ars­dóttur, Erlu S. Krist­jáns­dóttur og Þóru H. Christiansen um upp­lifun kven­milli­stjórn­enda íslenskra fyr­ir­tækja. Greinin kom út í nýjasta tölu­blaði Tímarits um við­skipti og efna­hags­mál.

Greina má kynja­halla í íslensku við­skipta­lífi, en hlut­fall kvenna í efsta stjórn­un­ar­stigi fyr­ir­tækja var ein­ungis 21,9% árið 2015. Meðal milli­stjórn­enda var hlut­fall þeirra nokkru hærri, en í 30% fyr­ir­tækja var jafnt kynja­hlut­fall meðal þeirra.

Samkvæmt grein­ar­höf­undum sýna umræddar tölur að enn skorti tölu­vert á að kynja­hlut­föllum í efsta stjórn­un­ar­lagi fyr­ir­tækja hér­lendis verði jafnt, þrátt fyrir að Ísland komi mjög vel út í alþjóð­legum sam­an­burði. Hér á landi sé kynja­bilið minnst og landið ítrekað talið „það besta til að vera kona“.

Algengt við­horf meðal íslenskra stjórn­enda sé að kynja­jafn­rétti muni nást með eðli­legum hætti í stað inn­gripa sem flýta þróun mála. Við­horfið ber heitið lagna­kenn­ingin (pipeline the­ory), en í henni er vægi kynja­kvóta og ann­arra aðgerða er dregið í efa þar sem kynja­halli er aðeins tíma­bundið ástand og staða kvenna í atvinnu­líf­inu muni styrkj­ast að sjálfu sér.

Hins vegar virð­ist þró­unin í átt að jafn­rétti ganga óeðli­lega hægt, en kynja­halli eykst eftir því sem nær dregur toppnum.

Í grein­inni var tekið við­tal við 11 konur í milli­stjórn­enda­stöðum og þeirra upp­lifun dregin saman. Konurnar upp­lifa efsta stjórn­un­ar­lagið sem lok­aða karlaklíku, yfir­stjórn­enda­störfin sem sniðin að þörfum og aðstæðum karl­manna og að þær geti ekki bætt á sig frek­ari ábyrgð.

Flókinn vefur óáþreif­an­legra hind­r­ana sé til staðar, meðal ann­ars í formi karllægrar menn­ingar og lang­lífra staðalí­mynda. Einnig finnst þeim vinnu­semi og vand­virkni þeirra ekki vera metna að verð­leikum og finn­ast þær ekki falla að staðalí­mynd yfir­stjórn­anda.

Í sam­ein­ingu draga þessir þættir úr sjálfs­trausti kvenn­anna til að sækj­ast eftir hærri stöðum ásamt því að valda þeim álagi og um leið við­halda raun­veru­legum vanda ójafn­réttis kynj­anna í æðstu stjórn­enda­stöðum fyr­ir­tækj­anna.

Greinin birt­ist í nýjasta tölu­blaði Tímarits um við­skipti og efna­hags­mál. Tíma­ritið er gefið út í sam­vinnu við­skipta- og hag­fræði­deilda Háskóla Íslands, en því er ætlað að vera vett­vangur fyrir fræði­legar rit­gerðir í við­skipta- og hag­fræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjahlutföll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár