Konur víða í hættu að missa þingsæti

Vinstri græn, Viðreisn og Píratar virð­ast hafa hugað vel að því að hafa nægi­legt jafn­vægi á milli karla og kvenna á fram­boðs­listum sínum. Staðan er ekki jafn beysin hjá Fram­sókn­ar­flokki, Sam­fylk­ingu og auð­vitað Sjálf­stæð­is­flokki.

Á myndinni eru þrjár þingkonur. Katrín Júlíusdóttir hefur ákveðið að hætta á þingi, Elín Hirst galt afhroð í prófkjöri og líklegt er að Líneik Anna Sævarsdóttir verði í besta falli í baráttusæti í komandi kosningum.
Á mynd­inni eru þrjár þing­konur. Katrín Júl­í­us­dóttir hefur ákveðið að hætta á þingi, Elín Hirst galt afhroð í próf­kjöri og lík­legt er að Líneik Anna Sæv­ars­dóttir verði í besta falli í bar­áttu­sæti í kom­andi kosn­ingum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Margar konur sem nú sitja á þingi munu frá hverfa eftir næstu kosn­ingar. Sumar hafa tekið þá ákvörðun að hætta, aðrar eru fórn­ar­lömb fylg­is­hruns flokka sinna. En mörgum kvenn­anna sem höfðu hug á því að starfa áfram í stjórn­málum hefur verið hafnað af flokkum sínum. Prófkjör helg­ar­innar stað­festu það.

Í dag eru 34 þing­menn karlar en 29 þeirra eru konur. Hjá nokkrum fram­boðum er staða kvenna ofar­lega á fram­boðs­listum sterk og fái þau fram­boð braut­ar­gengi verður hátt hlut­fall þing­manna þeirra konur.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að fjórar af þeim sex konum í fram­boði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem eiga raun­hæfan mögu­leika á að ná þing­sæti miðað við stöðu flokks­ins í könn­unum sitji í bar­áttu­sætum í sínum kjör­dæmum og gætu því dottið út.

Og staða kvenna er víðar ekki í lagi.

Konur tapa á lélegu gengi

Hjá Sam­fylk­ing­unni munu fjórir karlar leiða lista flokks­ins en tvær konur, þær Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður flokks­ins, og Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, sem mun leiða í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Árni Páll Árnason mun leiða í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Guðjón Brjáns­son í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, Össur Skarp­héð­ins­son í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu og Logi Már Ein­ars­son, vara­for­maður flokks­ins, í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Athygli vekur að þrír núver­andi eða fyrr­ver­andi for­menn Sam­fylk­ing­ar­innar sitja í þremur af odd­vita­sæt­unum á listum flokks­ins.

Sam­fylk­ingin hefur í dag níu þing­menn, eftir að hafa goldið afhroð í kosn­ing­unum 2013 þegar flokk­ur­inn fékk 12,9 pró­sent atkvæða. Miðað við gengi flokks­ins í skoð­ana­könn­unum - hann mælist nú með 8,3 pró­sent- mun hann prísa sig sælan ef sami árangur næst í lok októ­ber.

Þegar er ljóst að Katrín Júl­í­us­dóttir hverfur af þingi, en hún hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í kom­andi kosn­ingum. Þá liggur fyrir að Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, sem kom inn á þing þegar Guð­bjartur Hann­es­son féll frá, mun ekki taka sæti á lista flokks­ins eftir að hafa lotið í lægra haldi í próf­kjöri helg­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Val­gerður Bjarna­dóttir mun síðan sitja í þriðja sæti á lista flokks­ins í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu sem verður að telj­ast afar ólík­legt til að skila henni inn á þing.

Nái Sam­fylk­ingin þeim þing­sætum sem flokk­ur­inn heldur á í dag munu tvær nýjar konur setj­ast á þing fyrir flokk­inn. Margrét Gauja Magn­ús­dóttir myndi þá ná inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og Eva Bald­urs­dóttir í Reykja­vík. Þær koma inn í stað Katrínar og Val­gerðar.

Staða flokks­ins yrði því sú sama hvað varðar kynja­skipt­ingu og hún var eftir kosn­ing­arnar 2013, fimm karlar og fjórar konur. Þær Margrét Gauja og Eva eru þó í bar­áttu­sætum og því gætu þær orðið fyrstu fórn­ar­lömb þess ef fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar fer ekki að hækka.

Konum hjá Framsókn mun fækka mikið

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur lokið flokksvali sínu í nokkrum kjör­dæmum. Allar líkur eru á því að fjórir karlar muni leiða lista flokks­ins í kjör­dæm­unum en tvær konur.

Miklar breyt­ingar verða á lista Fram­sóknar í Reykja­vík­. Karl Garð­ars­son og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir munu leiða flokk­inn í sitt­hvoru höf­uð­borg­ar­kjör­dæm­inu. Í næstu sætum fyrir neðan þau röð­uð­ust fimm karlar. Eft­ir­sókn kvenna eftir sæti á listum flokks­ins í kjör­dæm­unum var svo slök að aug­lýst var sér­stak­lega eftir þeim svo hægt yrði að upp­fylla settar reglur um fjölda kvenna.

Sú sem leiddi flokk­inn í Reykja­vík suður í kosn­­ing­unum í apríl 2013, Vig­­dís Hauks­dótt­ir, ákvað að gefa ekki kost á sér í kom­andi kosn­­ing­­um. ­Sig­rún Magn­ús­dóttir og Frosti Sig­­ur­jóns­­son leiddu flokk­inn í Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæmi norð­­ur, en þau ætla bæði að hætta eftir núver­andi þing.

Þá mun Gunn­ar Bragi Sveins­­son sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­að­ar­ráð­herra leiða lista Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins í Norð­vest­­ur­­kjör­­dæmi í þing­­kosn­­ing­un­um líkt og hann gerði 2013. Annað sæti list­ans skip­ar Elsa Lára Arn­­ar­dótt­ir þing­mað­ur.

Enn á eftir að klára fram­boðs­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins í þremur kjör­dæmum. Nokkuð ljóst þykir að Eygló Harð­ar­dóttir muni leiða lista flokks­ins áfram í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og þar verður Willum Þór Þórsson vænt­an­lega áfram í öðru sæti. Í Suð­ur­kjör­dæmi mun Sigurður Ingi Jóhanns­son án efa sitja í fyrsta sæti eftir að upp­still­ing­ar­nefnd hefur lokið störfum og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir er lík­leg í annað sætið. Mesta spennan er í Norð­aust­ur­kjör­dæmi þar sem fjórir þing­menn sækj­ast eftir fyrsta sæt­inu. Þeir eru flokks­for­mað­ur­inn Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Hösk­uldur Þór­halls­son, Þórunn Egils­dóttir og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir.

Miklar bolla­legg­ingar hafa verið um ástæður þess að Þórunn og Líneik bjóða sig fram í fyrsta sætið, þar sem mögu­leikar þeirra til að ná því þykja afar litlir. Ein kenn­ingin sem fer mjög hátt er sú að fram­boð þeirra sé til að styðja við Sigmund Davíð svo að atkvæða sem ann­ars gætu ratað til Hösk­uldar dreif­ist víðar. Mikil heift er í bar­átt­unni milli mann­anna tveggja og ljóst að staða Sig­mundar Davíðs sem for­manns er líka í mik­illi óvissu, eftir að Sigurður Ingi til­kynnti á mið­stjórn­ar­fundi á laug­ar­dag að hann ætl­aði ekki að sækj­ast áfram eftir vara­for­manns­emb­ætt­inu vegna sam­skipta­örð­ug­leika í for­ystu flokks­ins. Duldist engum á fund­inum að þar ætti hann við sam­skipti við Sigmund Davíð. Líkurnar á því að Sigurður Ingi bjóði sig fram til for­manns á flokks­þingi í byrjun októ­ber hafa því auk­ist veru­lega.

Haldi Sig­mundur Davíð og Hösk­uldur báðir áfram eftir tvö­falt kjör­dæma­þing, sem fer fram næst­kom­andi laug­ar­dag og mun ganga frá fram­boðs­lista flokks­ins, þá má telja afar lík­legt að þeir skipi tvö efstu sætin á list­anum, líkt og þeir gerðu fyrir síð­ustu kosn­ingar. Miðað við fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag verður að telj­ast ólík­legt að önnur, og hvað þá báðar, kon­urnar sem sækj­ast einnig eftir for­ystu­sætum á list­anum, kom­ist á þing.

Framsókn vann mik­inn kosn­inga­sigur 2013, fékk 24,4 pró­sent atkvæða og 19 þing­menn. Nú mælist fylgi flokks­ins tíu pró­sent og ljóst að rúm­lega helm­ingur þeirra þing­manna hið minnsta mun frá hverfa miðað verði það nið­ur­staða kosn­inga.

Hvernig sem fer er ljóst að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins mun breyt­ast mikið. Og þing­mönnum mun án efa fækka umtals­vert. Þrjár sitj­andi þing­konur hafa þegar ákveðið að hætta og margar hinna sitja í bar­áttu­sætum. Fjöldi „fórn­ar­lamba“ fylg­is­minnk­unar Fram­sóknar, verði hún nið­ur­staða kosn­ing­anna, verða því konur.

Jafnræði í oddvitasæti og fléttulistar

Hið nýja fram­boð Viðreisn á eftir að kynna sína end­an­legu lista en línur eru þó farnar að skýr­ast nokkuð mikið. Þar verður jafn­ræði á milli kynja í odd­vita­sætum á listum flokks­ins. En fremur stendur til að listar flokks­ins verði að öllu leyti fléttu­listar þar sem karl og kona rað­ist alltaf í sæti til skiptis.

Síðasta odd­vitapúslið var opin­berað í síð­ustu viku þegar Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, greindi frá því að hún muni leiða flokk­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hanna Katrín Frið­­riks­­son, fram­­kvæmd­­ar­­stjóri heil­brigð­is­sviðs Icepharma, sæk­ist eftir því að leiða annað Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæm­ið, og Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, vænt­an­lega leiða hitt. Þá ætla Þor­­­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, deild­­­ar­­­for­­­seti laga­­­deildar Háskól­ans á Bif­­­röst, og Pawel Bartoszek, stærð­fræð­ingur og pistla­höf­undur, einnig fram fyrir Við­reisn í Reykja­vík og búist er við að þau verði í næstu sætum fyrir neðan Hönnu Katrínu og Þor­stein.

Bene­dikt Jóhann­es­­­son, for­­­maður Við­reisn­­­­­ar, mun verða í fyrsta sæti á fram­­­boðs­lista flokks­ins í Norð­aust­­­ur­­­kjör­­­dæmi. Þá hefur verið greint frá því að Gylfi Ólafs­­­­son, heilsu­hag­fræð­ingur frá Ísa­­­­firði, muni leiða lista Við­reisnar í Norð­vest­­­­ur­­­­kjör­­­­dæmi. Jóna Sól­­­­veig Elín­­­­ar­dótt­ir, aðjunkt við stjórn­­­­­­­mála­fræð­i­­­­deild Háskóla Íslands, hefur til­­­­kynnt um fram­­­­boð og þykir lík­­­­­­­leg­ust til að vera í efsta sæti á lista flokks­ins í Suð­­­­ur­­­­kjör­­­­dæmi.

Konur í meirihluta hjá VG

Vinstri græn eru enn að ganga frá fram­boðs­listum sínum. Í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum er búist við því að Katrín Jak­obs­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir leiði sitt hvort Reykja­vík­ur­kjör­dæmið og að Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé og Steinunn Þóra Árna­dóttir sitji í næstu sætum fyrir neðan. Lilja Rafney Magn­ús­dóttir sæk­ist eftir fyrsta sæt­inu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi en etur þar kappi við þrjá karla sem vilja það líka. Um helg­ina var greint frá því að for­seta­fram­bjóð­and­inn fyrr­ver­andi Ari Trausti Guð­munds­son muni leiða flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi og þegar liggur fyrir að Stein­grímur J. Sig­fús­son verður í fyrsta sæti á lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir situr þar í öðru sæti og Björn Valur Gíslason, vara­for­maður Vinstri grænna, situr í því þriðja.

Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi verður flokksval hjá flokknum en þar hefur Ögmundur Jónasson ákveðið að víkja til hliðar. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks VG, var í öðru sæti þar fyrir síð­ustu kosn­ingar og þykir lík­leg til að taka odd­vita­sætið. Því gæti vel farið svo að fjórar konur leiði lista Vinstri grænna í kom­andi kosn­ingum en tveir karlar. Í dag sam­anstendur þing­flokkur flokks­ins af fimm konum og tveimur körlum og afar ólík­legt verður að telj­ast að karlar verði þar í meiri­hluta eftir kom­andi kosn­ingar.

Kannanir benda þó til þess að þing­flokkur Vinstri grænna geti stækkað umtals­vert eftir næstu kosn­ingar. Flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent atkvæða árið 2013 en mælist nú með 14,4 pró­sent.

Gott jafnvægi hjá Pírötum

Píratar, sem hafa mælst stærsti flokkur lands­ins mest allt þetta kjör­tíma­bil, hafa lokið frá­gangi fram­boðs­lista sinna.

Í fjórum efstu sætum á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og Suð­vest­ur­kjör­dæmi eru sjö konur og fimm karlar. Tvær konur, þing­menn­irnir Birgitta Jóns­dóttir og Ásta Guðrún Helga­dóttir, leiða í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og fyrr­ver­andi þing­mað­ur­inn Jón Þór Ólafsson í Kraganum. Í Suð­ur­kjör­dæmi er Smári McCarthy í fyrsta sæti en tvær konur eru í fjórum efstu sæt­unum. Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi er Einar Aðal­steinn Brynj­ólfs­son í odd­vita­sæt­inu en Guðrún Ágústa Þór­dís­ar­dóttir í öðru. Svo koma tveir karlar.

Píratar hafa verið í stök­ustu vand­ræðum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Þar var kosið í próf­kjöri í ágúst. Úrslit próf­kjörs­ins voru síðar kærð vegna ásak­ana um smölun til fylgis við ákveðna fram­bjóð­end­ur. Kæran hafði hins vegar engin áhrif vegna þess að hún átti ekki við. Úrslit­unum var samt sem áður hafnað í stað­fest­ing­ar­kosn­ingu og nýtt próf­kjör hald­ið. Þar end­aði Eva Pandora Bald­urs­dóttir í efsta sæti og Gunnar Ingiberg Guð­munds­son í öðru sæti. Þar á eftir koma tveir karlar.

Hjá Pírötum er kynja­staðan því sú að þrjá konur munu leiða kjör­dæmi þeirra og þrír karlar. Af efstu fjórum fram­bjóð­endum á öllum listum flokks­ins eru 11 konur og 13 karlar.

4-2 hjá Bjartri framtíð

Þá er ótalin Björt fram­tíð, sem er í dag með sex þing­menn. Flokk­ur­inn hefur ekki mælst lík­legur til að ná inn þing­manni í könn­unum um langt skeið og í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mælist fylgi þeirra 3,3 pró­sent. Þrír núver­andi þing­menn flokks­ins munu leiða lista, for­mað­ur­inn Ótt­arr Proppé í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Björt Ólafs­dóttir í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður og Páll Valur Björns­son í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hinir þrír sem nú sitja á þingi fyrir Bjarta fram­tíð, Guð­mundur Stein­gríms­son, Róbert Marshall og Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, ætla ekki fram.

Þá mun Nichole Leigh Mosty leik­skóla­stjóri leiða lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suð­ur, G. Valdi­mar Valde­mars­son fram­kvæmda­stjóri verður í fyrsta sæti á lista Bjartrar fram­tíðar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Preben Pét­urs­son mjólk­ur­tækni­fræð­ingur leiðir í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Fjórir karlar sitja því í efstu sætum á lista flokks­ins en tvær kon­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjahlutföll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár