Framsókn auglýsir eftir konum í framboð

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra er ein af tveimur konum sem lýst hefur yfir fram­boði á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík. Flokkinn vantar að minnsta kosti fjórar konur í við­bót til að upp­fylla eigin reglur.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra er ein af tveimur konur sem lýst hefur yfir framboði á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Flokknum vantar að minnsta kosti fjórar konur í viðbót til að uppfylla eigin reglur.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra er ein af tveimur konur sem lýst hefur yfir fram­boði á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík. Flokknum vantar að minnsta kosti fjórar konur í við­bót til að upp­fylla eigin reglur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kjör­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík hefur aug­lýst sér­stak­lega eftir fram­boðum frá konum til að sitja á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur í kom­andi kosn­ingum. Í aug­lýs­ing­unni, sem birt­ist á vef flokks­ins, segir að sam­kvæmt reglum Fram­sókn­ar­flokks­ins þurfi að lág­marki ein kona að skipa eitt af fjórum efstu sæt­unum og þrjú af efstu sjö sæt­unum í hverju kjör­dæmi fyrir sig. Þegar frestur til að skila inn fram­boðum fyrir lista flokks­ins í Reykja­vík rann út 12. ágúst síð­ast­lið­inn höfðu ein­ungis tvær konur skilað inn fram­boði. Þær eru Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands. Tíu karlar skil­uðu hins vegar inn fram­boði í Reykja­vík. Því vantar að minnsta kosti fjórar konur á lista flokks­ins í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum til að list­arnir séu í sam­ræmi við reglur Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Tvær konur buðu sig fram

Tvöfalt kjör­dæma­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins fer fram næsta laug­ar­dag, 27. ágúst. Þar verður valið á lista vegna kom­andi þing­kosn­inga. Kosið verður um fimm efstu sætin í hvoru kjör­dæmi fyrir sig og var fram­boðs­frestur til 12. ágúst 2016. Þegar frest­ur­inn var lið­inn lá ljóst fyrir að tólf buðu sig fram á lista flokks­ins í Reykja­vík.

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sæk­ist ein eftir efsta sæt­inu í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður en í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður sækj­ast þeir Karl Garð­ars­son alþing­is­maður, Þor­steinn Sæmunds­son alþing­is­maður og Haukur Logi Karlsson lög­fræð­ingur allir eftir efsta sæt­inu. Þá sæk­ist Lárus Sigurður Lárusson hér­aðs­dóms­lög­maður eftir 2. sæt­inu í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Aðrir sem sækj­ast eftir 2.-5. sæti eru: Alex Björn B. Stef­áns­son háskóla­nemi, Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands, Björn Ívar Björns­son háskóla­nemi, Gissur Guð­munds­son mat­reiðslu­maður, Gunnar Kristinn Þórð­ar­son stjórn­sýslu­fræð­ingur, Ingvar Mar Jónsson flug­stjóri og vara­borg­ar­full­trúi og Sævar Þór Jónsson hér­aðs­dóms­lög­maður.

Framboð kvenn­anna tveggja, Lilju og Ásgerðar Jóna, nægja til að reglu Fram­sókn­ar­flokks­ins um að ein kona sé á meðal þriggja efstu á lista sé fram­fylgt. Það vantar hins vegar að minnsta kosti fjórar konur í efstu sjö sætin á hvorum lista til að regla flokks­ins um að þrír af efstu sjö þurfi að vera konur sé upp­fyllt. Þær konur sem hafa áhuga á að bjóða sig fram fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík eru í aug­lýs­ingu á vef flokks­ins beðnar um að hafa sam­band við for­mann kjör­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir 25. ágúst næst­kom­andi.

Forystukonur ætla ekki aftur fram

Tvær konur voru í for­ystu­sveit Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík í þing­kosn­ing­unum 2013. Vigdís Hauks­dóttir, nú for­maður fjár­laga­nefndar, sat í efsta sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra sat í öðru sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Hvorug þeirra ætlar að gefa kost á sér í kom­andi kosn­ingum, sem fyr­ir­hug­aðar eru 29. októ­ber næst­kom­andi.

Þá sat Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir í þriðja sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir í því sjötta. Svein­björg Birna leiddi fram­boð Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014 og er nú borg­ar­full­trúi í Reykja­vík en Sunna er aðstoð­ar­maður Gunnars Braga Sveins­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Hvorug þeirra hefur lýst yfir fram­boði í kom­andi kosn­ingum.

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður sátu Fanný Gunn­ars­dóttir, kenn­ari og náms- og starfs­ráð­gjafi, og Snædís Karls­dóttir, þá laga­nemi, í fjórða og fimmta sæti á fram­boðs­lista Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hvorug þeirra hefur lýst yfir fram­boði í kom­andi kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár