Sjálfstæðisflokkurinn hafnar reyndum konum og lætur aðrar berjast

Konur sem sótt­ust eftir for­ystu­hlut­verki hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í próf­kjörum helg­ar­innar guldu afhroð. Fjórar konur sitja í bar­áttu­sætum á fram­boðs­listum flokks­ins. Einungis tvær eru með öruggt þing­sæti og ein leiðir fram­boðs­lista.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur ákveðið að taka ekki sæti á lista Sjálfstæðisflokks í komandi kosningum. Eftir að hafa leitt flokkinn í Suðurkjördæmi í tveimur kosningum tapaði hún í prófkjöri, fyrir þremur körlum.
Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, hefur ákveðið að taka ekki sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í kom­andi kosn­ingum. Eftir að hafa leitt flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi í tveimur kosn­ingum tap­aði hún í próf­kjöri, fyrir þremur körlum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Prófkjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vestur- og Suð­ur­kjör­dæmi um helg­ina reynd­ust konum í flokknum hörð lexía. Þar eru karlar, flestir um og yfir miðjum aldri, í öllum efstu sætum á fram­boðs­listum. Einu kon­urnar sem gætu átt mögu­leika á að kom­ast á þing sitja í bar­áttu­sætum. Enn á eftir að stað­festa fram­boðs­list­anna í mið­stjórn og þótt að lyk­il­fólk í for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins - þar á meðal flokks­for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son - hafi lýst yfir áhyggjum vegna þeirrar stöðu sem er komin upp er ljóst að and­staða við breyt­ingar á nið­ur­stöðum próf­kjara er einnig mikil. Í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins eru kynja- og ald­urskvótar í próf­kjörum til að mynda harð­lega gagn­rýndir og sagt að það sé „tíma­bært að hætta þessum kynja- og ald­urskvótum og treysta kjós­endum til að raða listum á lýð­ræð­is­legan hátt.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur í dag 19 þing­menn. Þá fékk hann 26,7 pró­sent atkvæða. Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mælist fylgi hans 26,3 pró­sent og því má ætla, hald­ist sú staða, að þing­manna­fjöldi flokks­ins verði svip­aður að loknum kosn­ingum í októ­ber. Ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi halda öllum sömu þing­sæt­unum og hann fékk árið 2013 yrði fjöldi kvenna í þing­manna­hópnum sá sami og hann var að loknum þeim kosn­ingum, þær yrðu sex en karl­arnir 13. Á kjör­tíma­bil­inu bætt­ist reyndar ein kona, Sigríður Á. Andersen, við þing­manna­hóp­inn þegar Pétur Blöndal lést. Því yrði staða kvenn­anna verri en hún er í dag ef allt færi á sama veg.

Það þarf þó lítið út af að bregða til að kynja­hlut­föll í þing­manna­hópi Sjálf­stæð­is­manna verði afleit. Fjórar þeirra kvenna sem eiga góðan mögu­leika á þing­sæti sitja nefni­lega í bar­áttu­sætum á listum í sínum kjör­dæmum, þ.e. síð­asta sæt­inu sem skil­aði Sjálf­stæð­is­flokknum manni á þing í kosn­ing­unum 2013. Tapi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þing­sætum í þeim fjórum kjör­dæmum fækkar kon­unum í þing­manna­lið­inu úr sex í tvær. En karl­arnir verða áfram 13.

Konurnar berjast, karlarnir öruggir

Þær konur sem eru í bar­áttu­sætum eru Bryndís Har­alds­dóttir (fimmta sæti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi), Sigríður Á. Andersen (þriðja sætið í öðru hvor Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu), Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir (vænt­an­lega í fjórða sæti í Suð­ur­kjör­dæmi) og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir (í öðru sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi).

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir er lík­ast til nokkuð örugg með þing­sæti þar sem hún mun sitja í öðru sæti í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu hjá Sjálf­stæð­is­flokknum. Fjórar konur sitja þar í efstu átta sæt­unum í höf­uð­borg­inni og þrjá þeirra eiga raun­hæfa mögu­leika á að ná inn á þing. Fram­boðs­listi flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum hefur samt sem áður legið undir gagn­rýni fyrir eins­leitni. Þannig eru nefni­lega sjö af átta efstu lög­fræð­ingar eða í lög­fræði­námi. Eina und­an­tekn­ingin er Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, sem er stjórn­mála­fræð­ingur og mun leiða annað Reykja­vík­ur­kjör­dæmið.

Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi var Elínu Hirst, sitj­andi þing­manni, ræki­lega hafnað og fjórum körlum raðað í efstu fjögur sætin á lista flokks­ins. En kvenna­leysið í efstu sætum á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins er ekki eina kyn­bundna áfallið sem flokk­ur­inn hefur orðið fyrir. hin þraut­reynda Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sem var vara­for­maður flokks­ins og ráð­herra fyrir hann, hefur nefni­lega ákveðið að bjóða sig fram í kjör­dæm­inu fyrir Viðreisn. Það gerir henni án efa auð­veld­ara að marka sér nýja stöðu með nýjum flokki að engin kona situr í efstu sæt­unum í hennar gamla flokki. Afstaða Þor­gerðar Katrínar til stöðu kvenna innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, áður en hún yfir­gaf hann, á ekki að hafa farið fram hjá neinum. Í við­tali við Frétta­blaðið í októ­ber í fyrra sagði hún:„Flokk­ur­inn, í ljósi sög­unnar, hefur alltaf látið sér nægja að hafa ein­hverja eina konu ein­hvers staðar sem ákveðna fjar­vist­ar­sönnun fyrir því að það sé bara allt í lagi.“

Ein kona leiðir

Þá liggur fyrir að ein­ungis ein kona mun leiða lista Sjálf­stæð­is­manna í kosn­ing­unum 2016, vara­for­mað­ur­inn Ólöf Nordal sem mun sitja í fyrsta sæti í öðru hvor Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Í hinum kjör­dæm­unum fimm verða odd­vit­arnir Bjarni Bene­dikts­son (Suð­vest­ur­kjör­dæmi), Páll Magn­ús­son (Suð­ur­kjör­dæmi), Haraldur Bene­dikts­son (Norð­vest­ur­kjör­dæmi) og Kristján Þór Júl­í­us­son (Norð­aust­ur­kjör­dæmi). Í kosn­ing­unum 2013 voru kon­urnar sem leiddu tvær: Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sat í fyrsta sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Suður og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir í Suð­ur­kjör­dæmi. Hanna Birna hefur þegar ákveðið að hætta í stjórn­málum og sömu sögu er að segja af Ragn­heiði Rík­harðs­dóttur, sem var í öðru sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Kraganum 2013.

Ragn­heiður Elín, sem setið hefur sem ráð­herra, galt afhroð í próf­kjöri flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi um helg­ina. Hún sótt­ist eftir fyrsta sæt­inu að nýja en lenti í því fjórða, á eftir þremur körlum. Í gær til­kynnti Ragn­heiður Elín svo að hún ætl­aði sér ekki að þiggja sætið og að hún muni stíga út úr stjórn­málum að loknum næstu kosn­ingum.

Tveimur öðrum þing­konum Sjálf­stæð­is­flokks var hafnað í nýlegum próf­kjörum og karlar settir í þau sæti á listum sem geta mögu­lega skilað þing­sætum. Það eru Val­gerður Gunn­ars­dóttir í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir í Suð­ur­kjör­dæmi.

Þegar er byrjað að ræða mögu­legt hægri­s­innað kvenna­fram­boð í kjöl­far þeirrar nið­ur­stöðu sem opin­beruð var um helg­ina. Helga Dögg Björg­vins­dóttir, for­maður Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna, sagði slíkt fram­boð hugs­an­legt í við­tali við morg­un­út­varp Rásar 2 í morgun. Elín Hirst tók undir með henni á sam­fé­lags­miðlum.

Eldra fólk kýs Sjálfstæðisflokk, yngra fólk síður

Þótt höfnun kvenna og gott gengi mið­aldra karla í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi komið mörgum í opna skjöldu þá kemur hún ekki að öllu leyti á óvart. Samkvæmt könnun MMR á fylgi flokka frá því í fyrra, þar sem fylgið var greint eftir aldri, kyni og ýmsu öðru, kom í ljós að færri konur styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn en karlar. Á þeim tíma, þegar fylgi flokks­ins mæld­ist aðeins lægra en það mælist í dag, sögð­ust um fjórð­ungur karla kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn en rúm­lega fimmt­ungur kvenna.

Þá kom í ljós að þorri fylgis Sjálf­stæð­is­flokks­ins kemur frá­ ­fólki yfir fimm­tugu. Þar sögð­ust um 60 pró­sent ætla að kjósa flokk­inn. Hann er hins vegar í greini­legum vand­ræðum við að ná til ungs fólks því að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hjá fólki á aldr­inum 18-29 ára mælist mæld­ist ein­ungis 12,5 pró­sent.

Fyrrverandi vonarstjarna reyndist sannspá

Margir innan flokks virð­ast hafa séð þá þróun sem varð í próf­kjörum helg­ar­innar fyrir. Einn þeirra er Ásdís Halla Braga­dóttir.

Hún var á sínum tíma mikil von­ar­stjarna í flokknum, var bæj­ar­stjóri í Garðabæ og oft­sinnis orðuð við for­ystu­hlut­verk á lands­vísu. Af því varð aldrei og fyrir ára­tug steig hún út úr póli­tík og ein­beitti sér að frama í við­skiptum.

Ásdís Halla tjáði sig um stöðu flokks síns í stöðu­upp­færslu á Facebook um helg­ina. Þar sagði hún að nú yrði fróð­legt að sjá hvort nið­ur­stöður í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem þá fóru fram yrðu í takti við þau sem er lokið, og þá sér­stak­lega með til­liti til árang­urs kvenna. „Spurn­ingin sem er efst í mínum huga er hvort að það verði stað­fest að flokk­ur­inn sé og verði alltaf bara ,einnar konu’ flokkur? Það eru flokkar sem velja til for­ystu eina reynda konu en inn á milli eru ungar og efni­legar konur til að ásýndin verði ekki eins karllæg. Um leið og efni­legu kon­urnar eru komnar með meiri reynslu og gera til­kall til frek­ari áhrifa eða emb­ætta er þeim ýtt til hliðar – og nýjar ungar konur valdar í þeirra stað. Ég geri alls ekki lítið úr efni­legu kon­unum – ég hef verið ein af þeim, bjart­sýn, kraft­mikil og kjörkuð. Ég hef mikla trú á þeim, ég styð þær og vona inni­lega að þær nái sem mestum árangri – en ótt­ast að fáar þeirra verði lang­lífar innan flokks­ins ef ekki verður breyt­ing á menn­ing­unni.“

Hún rakti svo nið­ur­stöður í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og Norð­vest­ur­kjör­dæmum, þar sem tvær ungar konur fengu braut­ar­gengi en reyndri stjórn­mála­konu var ýtt neðar á lista. Það hafi líka gerst í Norð­aust­ur­kjör­dæmi þar sem Val­gerður Gunn­ars­dóttir lenti í þriðja sæti, en karlar í tveimur sætum fyrir ofan hana, sem leiðir vænt­an­lega til þess að Val­gerður detti af þingi. Eina reynda þing­konan í þessum fjórum kjör­dæmum sem sé örugg með þing­sæti sé Ólöf Nordal. Hinar sem gætu kom­ist inn séu „ungar og efni­legar“.

Ásdís Halla spáði því svo fyrir að Elín Hirst myndi ekki ná öruggu þing­sæti í próf­kjöri um helg­ina og lýsti yfir áhyggjum sínum af stöðu tveggja reyndra þing­kvenna, Ragn­heiðar Elínar og Unnar Brá, í Suð­ur­kjör­dæmi. „Hart er sótt að Ragn­heiði og svo virð­ist vera sem í genum flokks­ins brjót­ist um það óþol að varla sé hægt að vera með of margar reyndar konur í áhrifa­stöðum. Miklu nær sé að velja til for­ystu karl, fjöl­miðla­mann, án reynslu af póli­tík, til að fækka hugs­an­legum kven­ráð­herrum.

Hvað ger­ist á laug­ar­dag verður fróð­legt að sjá.

Fá Ragn­heiður og Unnur Brá þá glæsi­legu kosn­ingu sem þær eiga skilið? Eða er ósýni­lega höndin svo sterk að ,einnar konu’ lög­málið verður enn og aftur ofan á?“

Nið­ur­staðan varð sú síð­ar­nefnda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár