Fleiri fluttu burt en heim í fyrra

Tæplega átta þús­und erlendir rík­is­borg­arar fluttu til lands­ins í fyrra, en þrjú þús­und Íslend­ingar. Aðfluttir útlend­ingar eru 4000 fleiri en brott­fluttir, en tæp­lega 200 fleiri Íslend­ingar fluttu burt en heim í fyrra.

Fleiri Íslend­ingar fluttu frá land­inu en aftur heim í fyrra. Brott­fluttir Íslend­ingar voru 190 fleiri en aðfluttir, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Hag­stofan birti í morgun tölur yfir mann­fjölda á Íslandi á fjórða árs­fjórð­ungi árs­ins 2016.

Munurinn á milli þeirra sem flytja burt og heim er mun minni en árið 2015, sem var eitt mesta brott­flutn­ingsár frá því að mæl­ingar hófust. Þá fluttu 1265 fleiri Íslend­ingar úr landi en til lands­ins. Aðeins fimm sinnum áður frá árinu 1961 höfðu mark­tækt fleiri brott­fluttir verið umfram aðflutta. Í öll þau skipti var það í kjöl­far kreppu­ára hér á landi, meðal ann­ars árin 2009-2011. Árið 2015 skar sig tölu­vert úr af því að ekki ríkti kreppa það ár. 

Samkvæmt töl­unum fluttu 3080 íslenskir rík­is­borg­arar til lands­ins á árinu en 3250 fluttu burt árið 2016. Allt árið 2015 fluttu hins vegar 2380 Íslend­ingar heim á meðan 3875 fluttu burt.

Hag­stofan hefur spáð því í mann­fjölda­spá sinni að þróun mann­fjöld­ans verði áfram með þessum hætti, það er að fleiri flytji burt en heim, á hverju ári fram til árs­ins 2065.

Tæplega átta þúsund útlendingar til landsins

Þegar skoð­aðar eru tölur yfir brott­flutn­ing og aðflutn­ing erlendra rík­is­borg­ara blasir við önnur mynd. Yfir fjögur þús­und fleiri erlendir rík­is­borg­arar fluttu til lands­ins en frá því í fyrra. 7930 erlendir rík­is­borg­arar fluttu til Íslands en 3830 fluttu frá land­inu.

Bjuggust við meiri aðflutningi en brottflutningi

Mikið hefur verið rætt um aðflutn­ing og brott­flutn­ing Íslend­inga und­an­farin miss­eri. Bjarni Bene­dikts­son, þá fjár­mála­ráð­herra en nú for­sæt­is­ráð­herra, sagði til að mynda í tvígang síð­ast­liðið haust að í fyrsta skipti í mörg ár væri útlit fyrir að á árinu 2016 myndu fleiri Íslend­ingar flytj­ast til lands­ins en frá land­inu.

Þetta byggði Bjarni meðal ann­ars á gögnum frá Vinnu­mála­stofnun, sem setti fram spá fyrir árið. Kjarninn hafði þá sam­band við Vinnu­mála­stofnun til að fá upp­lýs­ingar um það hvernig spáin hefði verið unnin.

Í svari Vinnu­mála­stofn­unar kom fram að tölur um brott­flutta og aðflutta á fyrri helm­ingi árs­ins hafi verið upp­reikn­aðar til árs­loka út frá reynslu und­an­far­inna ára, það er að um það bil 40 pró­sent búferla­flutn­inga Íslend­inga komi fram á fyrri helm­ingi árs­ins og um 60 pró­sent á þeim síð­ari. Það gildi bæði um brott­flutta og aðflutta. Því var þess vegna spáð að um 136 fleiri Íslend­ingar myndu flytja til lands­ins en frá því. Það var ávallt tekið skýrt fram að aðeins væri um spá að ræða, sem byggði á því að um það bil 40 pró­sent flytji til og frá land­inu á fyrri hluta árs en um það bil 60 pró­sent á seinni hlut­an­um.

Und­an­farin sex ár hefur þetta hlut­fall verið á bil­inu 38 pró­sent til tæp­lega 44 pró­sent á fyrri hluta árs hjá aðflutt­um, og sömu sögu má segja hjá brott­flutt­um. Þá gat verið tals­verður munur á hlut­falli brott­fluttra og aðfluttra innan hvers árs. 

Að með­al­tali hefur 41,5% aðfluttra komið til lands­ins á fyrri hluta árs­ins und­an­farin sex ár á meðan 39,8% brott­fluttra hafa farið burt á fyrri hluta árs­ins. Ef upp­reiknað væri miðað við þessar tölur væri spáin öðru­vísi, og myndi sýna örlítið fleiri brott­flutta en aðflutta, eða um 11 manns. Þetta sýnir hversu erfitt er að spá fyrir um flutn­ings­jöfn­uð­inn þegar mun­ur­inn á milli aðfluttra og brott­fluttra er orð­inn svona lít­ill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár