Fjarskipti skuldbinda sig til að reka miðla 365 í þrjú ár

Í drögum að skil­yrðum sem Fjar­skipti hafa sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna kaupa á flestum miðlum 365 kemur fram að félagið skuld­bindi sig til að reka þá í þrjú ár. Þar er einnig að finna skil­yrði sem á að tryggja sjálf­stæði rit­stjórna miðl­anna.

Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, skuld­bindur sig til að halda áfram rekstri þeirra fjöl­miðla sem félagið hefur samið um að kaupa af 365 miðlum í þrjú ár „nema að mark­verðar nei­kvæðar breyt­ingar eigi sér stað á mark­aðs­að­stæðum“. Fjöl­miðl­arnir sem um ræðir eru allar sjón­varps- og útvarps­stöðvar 365 miðla. Þar á meðal eru Stöð 2, allar íþrótt­ar­ás­ir, Bylgj­an, FM957 og X-ið. Til við­bótar var ákveðið á loka­spretti samn­inga­við­ræðna að frétta­vef­ur­inn Vísir.is og frétta­stofa ljós­vaka­miðla myndi fylgja með í kaup­un­um. Þetta kemur fram í drögum að skil­yrðum fyrir kaup­unum sem Fjar­skipti hafa sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

[links] Í drög­unum er einnig skil­yrði sem á að tryggja sjálf­stæði rit­stjórna, en frétta­stofa 365 er á meðal þeirra ein­inga sem seldar verða í við­skipt­unum. Samkvæmt því verður skipuð þriggja manna und­ir­nefnd stjórnar Fjar­skipta sem á að hafa það hlut­verk að standa vörð um sjálf­stæði rit­stjórna, fjöl­ræði og fjöl­breytni. Sú nefnd á einnig að taka við kvört­unum vegna frétta­flutn­ings og efn­istaka fjöl­miðla.

Drög að skilyrðum liggja fyrir

Fjar­skipti hafa óskað eftir við­ræðum við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um mögu­lega setn­ingu skil­yrða vegna kaupa félags­ins á flestum eignum 365 miðla. Fjar­skipti hafa vegna þessa lagt fyrir eft­ir­litið drög að skil­yrðum í þeim til­gangi að koma til móts við þá röskun á sam­keppni og fjöl­ræði sem sam­run­inn geti haft í för með sér.

Í bréfi sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur sent eft­ir­lits- og hags­muna­að­ilum – meðal ann­ars öllum skráðum fjöl­miðlum lands­ins – vegna þessa er óskað eftir því að þeir veiti umsögn um skil­yrði Fjar­skipta. Í bréf­inu segir enn fremur að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi ekki lokið rann­sókn sinni á sam­run­anum og hafi ekki tekið afstöðu til þess hvort skil­yrði Fjar­skipta dugi til að „leysa þau vanda­mál sem ella gætu stafað af sam­run­anum.“

[adspot] Í drögum að skil­yrðum sem Fjar­skipti eru til­búin að und­ir­gang­ast er að mestu fjallað um sjón­varps­rekstur og þann aðskilnað sem þurfi að vera á milli þess sem keypt er (Stöð2 og Stöð 2 Sport) og þess sjón­varps­rekstrar sem fyrir er í Fjar­skiptum. Til­gang­ur­inn er sá að tryggja að við­skipti milli ein­ing­anna fari fram á við­skipta­legum for­sendum og að sam­run­inn skapi ekki aðgangs­hindr­anir fyrir aðra inn á mark­að­inn.Þá eru Fjar­skipti til­búin að und­ir­gang­ast skil­yrði um að félag­inu verði óheim­ilt að gera það að skil­yrði fyrir kaupum á fjar­skipta­þjón­ustu þess að kaup á ein­hverri sjón­varps­þjón­ustu, t.d. Stöð 2, fylgi með í pakk­anum. Það þýðir samt sem áður ekki að Fjar­skipti geti ekki tvinnað saman sölu á t.d. inter­neti ann­ars vegar og sjón­varps­þjón­ustu hins vegar, líkt og Síminn gerir.

Leggja til leiðir til að tryggja sjálfstæði ritstjórna

Í drög­unum eru einnig tvær greinar sem snúa ann­ars vegar að sjálf­stæði rit­stjórna og hins vegar að fram­leiðslu á íslensku efni og áfram­hald­andi rekstri fjöl­miðla. Þeir miðlar sem seldir verða yfir frá 365 miðlum eru Stöð 2 og tengdar sjón­varps­stöðvar, útvarps­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins (t.d. Bylgjan, X-ið og FM957) og frétta­vef­ur­inn Vísir.is. Frétta­stofa 365 fylgir með í kaup­unum, en hún er ein stærsta frétta­stofa lands­ins og sú eina sem heldur úti dag­legum sjón­varps­frétta­tíma utan frétta­stofu RÚV.

Í skil­yrði um sjálf­stæði rit­stjórna þeirra fjöl­miðla sem Fjar­skipti vilja kaupa segir: „Í þvi skyni að standa vörð um sjálf­stæði rit­stjórna fjöl­miðla sem Fjar­skipti reka skal skipuð sér­stök und­ir­nefnd stjórnar Fjar­skipta hf. Í nefnd­inni skulu sitja þrír nefnd­ar­menn, þar af tveir óháðir sem eftir atvikum geta verið kosnir á hlut­hafa­fundi Fjar­skipta, en einn nefnd­ar­maður skal til­nefndur af stjórn Fjar­skipta. Skulu hinir óháðu nefnd­ar­menn hafa sér­þekk­ingu og reynslu af rekstri fjöl­miðla.[...]Skal nefndin hafa það hlut­verk að standa vörð um sjálf­stæði rit­stjórna, fjöl­ræði og fjöl­breytni og taka við kvört­unum vegna frétta­flutn­ings og efn­istaka fjöl­miðl­anna. Þess skal gætt að eig­endur, starfs­menn og stjórn­ar­menn Fjar­skipta hlut­ist ekki til um atriði sem geta raskað sjálf­stæði rit­stjórna fjöl­miðla sem Fjar­skipti reka eða dragi úr fjöl­ræði eða fjöl­breytni í rekstri fjöl­miðla Fjar­skipta.“

Ætla að tilnefna „óháðan kunnáttumann“

Í næstu grein skil­yrð­anna kemur fram að Fjar­skipti skuld­bindi sig til að halda áfram rekstri þeirra fjöl­miðla sem séu and­lag kaupanna næstu þrjú ár „nema mark­verðar breyt­ingar eigi sér stað á mark­aðs­að­stæðum“. Ekki er til­greint hvað felist í „mark­verðum breyt­ingum“.

Í þeirri grein segir einnig að Fjar­skipti skuld­bindi sig til að „halda áfram kaupum eða fram­leiðslu á íslensku efni að því gefnu að slík fram­leiðsla byggi á eðli­legum við­skipta­legum for­sendum“.

Fjar­skipti býðst einnig til að til­nefna „óháðan kunn­áttu­mann“ til að hafa eft­ir­lit með því að skil­yrð­unum sem félagið er til­búið að und­ir­gang­ast verði fram­fylgt. Kunn­áttu­mað­ur­inn má ekki vera starfs­maður eða stjórn­ar­maður félags­ins eða hjá tengdum aðilum, má ekki vera maki stjórn­ar­manns eða fram­kvæma­stjóra/for­stjóra eða skyldur þeim í beinan legg. Þá telj­ast þeir sem sinna reglu­bund­inni hags­muna­gæslu og/eða ráð­gjafa­störum fyrir ofan­greinda aðila og hafa meiri­hluta tekna sinna að slíkum við­skiptum ekki upp­fylla skil­yrði um óhæði.

Samstarf milli Fréttablaðsins og Vísir.is í tæp fjögur ár

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er von­ast til þess að sam­runi flestra miðla 365 og Fjar­skipta gangi í gegn í októ­ber. Kaup­verðið á miðl­unum og fjar­skipta­þjón­ustu 365 er 7.725-7.875 millj­­ónir króna. Það greið­ist í reið­u­­fé, með útgáfu nýrra hluta í Fjar­­skiptum og yfir­­­töku á 4,6 millj­­arða króna skuld­­um. 365 miðlar verða í kjöl­farið næst stærsti eig­andi Fjar­skipta.

Kjarninn greindi frá því í maí að alls sé gert ráð fyrir því að sam­run­inn skili kostn­að­ar­sam­legð upp á rúman millj­arð króna. Þar af gera áætl­anir ráð fyrir að sparn­aður í launum og starfs­manna­kostn­aði verði um 275 millj­ónir króna á ári og að stöðu­gildum þeirra ein­inga sem fær­ast yfir til Fjar­skipta frá 365 miðlum muni fækka um 41. Þetta kom fram í sam­runa­skrá vegna sam­runa Fjar­skipta og 365 miðla sem birt var á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 10. maí síð­ast­lið­inn. Fækkunin verður 365-megin. Fjar­skipti brugð­ust við frétt­inni með því að segja að fækk­unin muni vera gerð í gegnum starfs­manna­veltu á 12-18 mán­uðum.

Í fyrstu útgáf­unni af sam­runa­skránni sem eft­ir­litið birti voru trún­að­ar­upp­lýs­ingar úr skránni aðgengi­leg­ar, þar á meðal upp­lýs­ingar um hversu mörg stöðu­gildi myndu hverfa við sam­run­ann. Ný útgáfa án trún­að­ar­upp­lýs­ing­anna var sett á vef­inn í stað hinnar síðar sama dag. Kjarn­inn hefur upp­runa­legu útgáf­una undir hönd­um.

Í upp­runa­legu útgáf­unni birt­ust einnig trún­að­ar­upp­lýs­ingar um sam­starfs­samn­ing sem gerður var sam­hliða kaup­unum.

Í honum felst

að efni Frétta­blaðs­ins, sem er ekki hluti af kaup­un­um, muni áfram birt­ast á

Vísi.is

í 44 mán­uði eftir að kaupin ganga í gegn. Það þýðir að

Vísir.is

, sem verður þá í eigu Fjar­skipta, mun geta birt allt efni Frétta­blaðs­ins að morgni í tæp fjögur ár þrátt fyrir að fjöl­miðl­arnir verði ekki lengur í eigu sama aðila. Ekkert er fjallað um þetta sam­starf í bréfi Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár