Stöðugildum hjá 365 fækkar um 41 við samrunann við Fjarskipti

Gert er ráð fyrir að 275 millj­ónir króna sparist á ári vegna launa og starfs­manna­kostn­aðar þegar 365 miðlar renna saman við Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone. Lang­flestir sjón­varps­á­skrif­endur 365 eru með hinn svo­kall­aða Skemmti­pakka.

Alls er gert ráð fyrir að sam­runi 365 miðla og Fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Vodafone, skili kostn­að­ar­sam­legð upp á rúman millj­arð króna. Þar af gera áætl­anir ráð fyrir að sparn­aður í launum og starfs­manna­kostn­aði verði um 275 millj­ónir króna á ári og að stöðu­gildum þeirra ein­inga sem fær­ast yfir til Fjar­skipta frá 365 miðlum muni fækka um 41. Þetta kemur fram í sam­runa­skrá vegna sam­runa Fjar­skipta og 365 miðla sem birt var á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 10. maí síð­ast­lið­inn.

Orðrétt segir þar: „Vegna sam­legð­ar­á­hrifa er það mat Fjar­skipta að stöðu­gildum á ein­ingum sem fær­ast yfir til Fjar­skipta hf. frá 365 muni fækka um 41.“ Með sam­run­anum eykst velta Fjar­skipta um 8,5 millj­arða króna og stöðu­gildum á Íslandi fjölgar um 68 pró­sent, úr 305 stöðu­gildum í 512. Í skránni segir einnig að gera megi ráð fyrir ein­hverri tekju­sam­legð. „For­sendur Fjar­skipta gera ráð fyrir um 80 millj­ónum á ári í tekju­sam­legð sem kemur til m.a. vegna kross­sölu á stökum vörum milli við­skipta­vina­hópa og bættrar nýt­inga á aug­lýs­inga­sölu­teymi 365. Tekið skal fram að þrátt fyrir að áætl­anir geri ráð fyrir kross­sölu er jafn­framt áformað að við­skipta­vinum sam­ein­aðs fyr­ir­tækis standi til boða að kaupa umræddar vörur stakar.“

[links]

Í fyrstu útgáf­unni af sam­runa­skránni sem eft­ir­litið birti voru trún­að­ar­upp­lýs­ingar úr skránni aðgengi­legar, þar á meðal upp­lýs­ingar um hversu mörg stöðu­gildi myndu hverfa við sam­run­ann. Ný útgáfa án trún­að­ar­upp­lýs­ing­anna var sett á vef­inn í stað hinnar síðar sama dag. Kjarninn hefur upp­runa­legu útgáf­una undir höndum.

Fjar­skipti er að kaupa alla fjar­skipta­þjón­ustu sem 365 veitir. Auk þess fara allar sjón­varps- og útvarps­stöðvar 365 miðla yfir til Fjar­skipta. Þar á meðal eru Stöð 2, allar íþrótt­ar­ásir, Bylgjan, FM957 og X-ið. Til við­bótar var ákveðið á loka­sprett­inum, líkt og áður sagði, að frétta­vef­ur­inn Vísir.is og frétta­stofa ljós­vaka­miðla myndi fylgja með í kaup­unum. Ekki er til­tekið í skránni hvar á hvaða ein­ingum stöðu­gildum verði fækkað.

[adspot]

Kaup­verðið er 7.725-7.875 millj­ónir króna. Það greið­ist í reiðu­fé, með útgáfu nýrra hluta í Fjar­skiptum og yfir­töku á 4,6 millj­arða króna skuld­um. 365 miðlar verða í kjöl­farið næst stærsti eig­andi Fjar­skipta. 

Mikil tæknileg samlegð

Í sam­runa­skránni segir að til við­bótar við kostn­að­ar­sam­legð vegna fækk­unar á starfs­fólki eigi að nást fram 562 millj­óna króna í tækni­legri sam­legð. Sam­legðin felst í því að 365, sem á ekki eigin fjar­skipta­kerfi, hættir að kaupa þjón­ustu af Símanum og fer inn á kerfi Vodafone sem er þegar til staðar. Þrátt fyrir að reka fjar­skipta­þjón­ustu þá hefur 365 ekki rekið sitt eigið fjar­skipta­kerfi. Samkvæmt því sem fram kemur í sam­runa­skránni er það vegna þess að fyr­ir­tækið hefur ekki haft fjár­hags­lega getu til þess að byggja það upp, auk þess sem „vanda­mál í þjón­ustu s.s. reikn­inga­gerð og ferlum gert að verkum að fyr­ir­tækið hefur ekki náð þeim mark­miðum, sem að var stefnt með sam­runa félags­ins við Tal.. For­svars­mönnum 365 þykir ein­sýnt að ekki sé að verða breyt­ing á þessu.“

Vegna þessa hefur 365 gert samn­inga við Símann um „sjón­varps­dreif­ingu, umboðs­sölu á sjón­varps­þjón­ustu, heild­sölu á aðgangi að ein­staka íþrótta­kapp­leikjum þ.e. PPV, far­síma­þjón­ustu, gagna­flutn­ing um inter­netið, samn­ing við Gagna­veitu Reykja­víkur um gagna­flutn­ings­þjón­ustu yfir ljós­leið­ara, samn­ing við Mílu um bita­straums­að­gang og samn­ing við Síma­fé­lagið um fjar­skipta­þjón­ustu og við Vodafone um sjón­varps­dreif­ingu, umboðsölu á sjón­varps­þjón­ustu, heild­sölu á aðgangi að ein­staka íþrótta­kapp­leikjum þ.e. PPV.“ Í sam­runa­skránni kemur m.a. fram að 365 kaupir sem stendur um sex þús­und IPTV sjón­varps­teng­ingar af Símanum.

Langflestir áskrifendur með Skemmtipakkann

Kjarninn greindi frá því fyrr í vik­unni að inn­koma erlendra efn­isveita á borð við Netflix á íslenskan sjón­varps­markað og hröð fram­þróun í tækni og neyslu afþrey­ing­ar­efnis hefur gert það að verkum að mun færri heim­ili kaupa áskrift að Stöð 2 og öðrum sjón­varps­stöðvum 365 en gerðu það fyrir tveimur árum.

Í sam­runa­skránni segir að staða 365 miðla, sem á og rekur Stöð 2 og tengdar sjón­varps­stöðv­ar, hafi veikst á und­an­förnum árum. Þó nokkur fækkun hafi orðið á við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins. Í sam­runa­skránni seg­ir: „Staða 365 hefur þannig veikst, á sama tíma og keppi­nautar hafa styrkt stöðu sína. Þannig hefur tölu­verð fækkun orðið á fjölda heim­ila/­kennitalna sem eru í við­skiptum hjá 365 á sl. tveimur árum[...]Þessi fækkun í fjölda við­skipta­vina hefur átt sér stað þrátt fyrir að 365 hafi leit­ast við að svara kalli neyt­enda um nýjar áskrift­ar­leið­ir, og boðið upp á Mara­þon Now, sem gerir við­skipta­vinum kleift að ger­ast áskrif­endur að heilum þátta­röð­um, líkt og Netflix býður upp á.“ Alls eru 35.666 áskrif­endur að sjón­varps­þjón­ustu hjá 365 miðlum sam­kvæmt upp­gefnum upp­lýs­ingum og mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði 26 pró­sent.

Í upp­runa­legu sam­runa­skránni er hægt að sjá hvernig þessir áskrif­endur skipt­ast niður á mis­mun­andi áskrif­ar­leiðir og stöðvar. Þar kemur m.a. fram að rúmur helm­ingur áskrif­enda að sjón­varps­þjón­ustu 365 eru með hinn svo­kall­aða Skemmti­pakka, eða 18.993 manns. Hann kostar 9.990 krónur á mán­uði. Mun færri eru með stærstu og dýr­ustu pakk­anna sem 365 býður upp á. Þannig eru áskrif­endur að Stóra­pakk­anum, sem kostar 19.490 krónur á mán­uði, 5.368 og 1.363 eru með Risa­pakk­ann, sem kostar 22.990 krónur á mán­uði. Áskrif­endur að Sport­pakk­anum, sem veitir aðgang að Stöð 2 Sport, hlið­ar­stöðvum hennar og nokkrum erlendum íþrótta­stöðvum, eru nú 2.994 tals­ins. Þá eru 1.107 manns áskrif­endur að Golf­stöð­inni og 493 kaupa ódýrasta pakk­ann sem 365 býður upp á, hinn svo­kall­aða Fjöl­skyldu­pakka. Hann kostar 3.290 krónur á mán­uði. Áskrif­endur að Maraþon Now, nokk­urs konar Netflix þjón­ustu 365 miðla, eru ein­ungis 919 tals­ins sam­kvæmt sam­runa­skránni. Til sam­an­burðar má nefna að alls eru íslenskir áskrif­endur að Netflix 54.120 tals­ins, en sú áskrift kostar rúm­lega eitt þús­und krónur á mán­uði.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem Fjar­skipti héldu í kjöl­far þess að til­kynnt var um söl­una kom fram að tekjur þeirra ein­inga sem keyptar verða af 365 hafi verið 8,5 millj­arðar króna á árinu 2016. Þar af voru fjar­skipta­tekjur 1,7 millj­arðar króna og aug­lýs­inga­tekjur voru tæp­lega 1,8 millj­arðar króna. Uppi­staðan í tekju­flæð­inu voru áskrifta­tekjur sjón­varps. Þær voru 58 pró­sent allra tekna, eða tæpir fimm millj­arðar króna.

Það var líka til­tekið sem einn helst áhættu­þátt­ur­inn í við­skipt­unum að við­skipta­vinum í áskrift­ar­sjón­varpi muni fækka með auk­inni sam­keppni frá erlendum efn­isveitum. Þeim við­skipta­vinum hefur nú þegar fækkað mjög á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár