Skuld Reykjanesbæjar var 249% af eignum

Skulda­hlut­fall A og B- hluta Reykja­nes­bæjar var 249% árið 2015, hæst allra sveit­ar­fé­laga. Gerð var sér­stök grein fyrir stöðu þeirra í skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Reykjanesbær var skuldsettasta sveitarfélagið árið 2015.
Reykja­nes­bær var skuld­settasta sveit­ar­fé­lagið árið 2015.

Skulda­hlut­fall Reykja­nes­bæjar var hæst allra sveit­ar­fé­laga árið 2015, sam­kvæmt nýbirtri skýrslu eft­ir­lits­nefndar með fjár­málum sveit­ar­fé­laga. Skýrslan gerði sér­stak­lega grein fyrir sam­skipti nefnd­ar­innar við bæj­ar­fé­lagið á síð­ustu árum.

Í gær var árskýrsla eft­ir­lits­nefndar með fjár­málum sveit­ar­fé­laga fyrir 2016 birt, en hún til­heyrir Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Samkvæmt henni var rekstr­ar­nið­ur­staða árs­ins 2015 lak­ari en und­an­farin ár. Meg­in­skýr­ingin á lak­ari nið­ur­stöðu hafi verið gjald­færsla líf­eyr­is­skuld­bind­inga Reykja­vík­ur­borgar.

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að heild­ar­skuldir sveit­ar­fé­lag­ana sem hlut­fall af heild­ar­tekjum námu 171% árið 2015 og gert er ráð fyrir að þær séu 161% fyrir árið 2016.

[adspot]

Reykjanesbær tekinn fyrir

Eft­ir­lits­nefndin hefur sett sér við­mið um 150% skulda­hlut­fall sveit­ar­fé­lag­anna, en fjöl­mörg sveit­ar­fé­lög eru yfir því hlut­falli. Sér­stak­lega var fjallað um Reykja­nesbæ í því til­liti, en rakin voru sam­skipti nefnd­ar­innar við bæj­ar­fé­lagið frá árinu 2014.

[links]Samkvæmt nefnd­inni hafði sam­þykkt aðlög­un­ar­á­ætlun þess ekki verið í neinu sam­ræmi við slæma rekstr­ar­nið­ur­stöðu bæj­ar­fé­lags­ins. Enn fremur, þar sem bænum hafði ekki tek­ist að ná sam­komu­lagi við kröfu­hafa sína lagði nefndin til að skipuð yrði fjár­halds­stjórn fyrir Reykja­nesbæ í maí í fyrra.

Í fram­haldi af til­lögum eft­ir­lits­nefnd­ar­innar óskaði Reykja­nes­bær eftir frek­ari fresti þar sem bæj­ar­stjórnin taldi enn vera von um að ná frjálsum samn­ingum. Nefndin sam­þykkti rök­stuðn­ing bæj­ar­stjórn­ar­innar og gaf bæj­ar­fé­lag­inu frest til 30. sept­em­ber.

Frestur var fram­lengdur og Reykja­nes­bær vann að samn­ingum við kröfu­hafa út árið 2016. Þann 20. Desember síð­ast­lið­inn greindi svo bæj­ar­fé­lagið frá því að sátt hafi náðst við kröfu­hafa sína. Þann 18. apríl sam­þykkti svo Reykja­nes­bær aðlög­un­ar­á­ætlun sína fyrir árin 2017 til 2022, en sam­kvæmt henni mun skulda­hlut­fall bæj­ar­fé­lags­ins lækka niður í 164% á næstu fimm árum.

Í lok skýrsl­unnar voru árs­reikn­ingar sveita­fé­lag­anna fyrir 2015 birtir, en það kemur fram að skulda­hlut­fall Reykja­nes­bæjar hafi verið 249%. Heild­ar­skuldir bæj­ar­fé­lags­ins væru 43,6 millj­arðar, sem jafn­gilti nettó skuldum á hvern íbúa upp á 2,4 millj­ónir króna. Samkvæmt aðlög­un­ar­á­ætlun bæj­ar­fé­lags­ins er búist við því að skuldir bæj­ar­fé­lags­ins muni lækka niður í 39 millj­arða fyrir árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár