Blóðugur niðurskurður framundan hjá Reykjanesbæ

Samkvæmt svartri skýrslu end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG, um fjár­hags­stöðu og fram­tíð­ar­horfur bæj­ar­sjóðs og sam­stæðu Reykja­nes­bæjar, er sveit­ar­fé­lagið orðið skuldug­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Fram til þessa hefur Sand­gerð­is­bær setið í topp­sæti lista yfir skuldug­ustu sveit­ar­fé­laga lands­ins, en í árs­lok 2013 skuld­aði Sand­gerð­is­bær rúm 227 pró­sent af árlegum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt nýlegri úttekt grein­ing­ar­deildar Arion banka á skulda­stöðu sveit­ar­fé­lag­anna voru þrjú skuld­sett­ustu sveit­ar­fé­lögin Fljóts­dals­hérað, Reykja­nes­bær og Sand­gerð­is­bær, með skuldir yfir 200 pró­sent af árs­tekjum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans nemur hlut­fall skulda Reykja­nes­bæjar á móti tekjum um 240 til 250 pró­sentum.

[quote font="0" align="right"]Heim­ildir herma að bæj­ar­sjóð Reykja­nes­bæjar skorti um fimmtán millj­arða króna til að geta staðið við lög­bundnar skuld­bind­ingar sínar um að koma skuldum niður fyrir 150 pró­sent af árlegum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins.[/quote]

Skýrsla KPMG um alvar­lega fjár­hags­stöðu Reykja­nes­bæjar hefur enn ekki verið gerð opin­ber, en nið­ur­stöður hennar verða kynntar á opnum íbúa­fundi í Stapa í kvöld. Skýrslan var lögð fram á síð­asta bæj­ar­ráðs­fundi sveit­ar­fé­lags­ins, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans voru nið­ur­stöður hennar meðal ann­ars kynntar á fundi Sam­fylk­ing­ar­innar á laug­ar­dag­inn. Heim­ildir herma að bæj­ar­sjóð Reykja­nes­bæjar skorti um fimmtán millj­arða króna til að geta staðið við lög­bundnar skuld­bind­ingar sínar um að koma skuldum niður fyrir 150 pró­sent af árlegum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins.

KPMG tók "punktstöðu" á fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar


Samkvæmt heim­ildum Kjarnans tekur skýrsla KPMG mið af fjár­hags­stöðu Reykja­nes­bæjar í dag, óháð fyr­ir­hug­uðum atvinnu­verk­efnum í sveit­ar­fé­lag­inu. KPMG mat sem sagt fjár­mál sveit­ar­fé­lags­ins óháð því hvað verða vill.

Miðað við skulda­stöðu Reykja­nes­bæjar mun sveit­ar­fé­lagið að óbreyttu ekki geta snúið við fjár­hags­stöðu sinni fyrir árið 2022, sem eru tíma­mörkin sem eft­ir­lits­nefnd með fjár­málum sveit­ar­fé­laga gaf skuld­sett­ustu sveit­ar­fé­lögum lands­ins, til að ná skuldum sínum niður fyrir 150 pró­sent af árlegum tekjum.

Á áður­nefndum íbúa­fundi í kvöld, þar sem skýrsla KPMG verður kynnt, verður sömu­leiðis kynnt sér­stök aðgerð­ar­á­ætlun sem Reykja­nes­bær hyggst ráð­ast í í sam­ræmi við til­lögur skýrslu­höf­unda. Áætlunin hefur hlotið nafnið "Sóknin."

Blóðugur niðurskurður og sjö milljarða skuldir Helguvíkurhafnar


Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hyggst Reykja­nes­bær hækka álögur til að auka skatt­tekjur sveit­ar­fé­lags­ins, draga úr rekstr­ar­kostn­aði, selja frek­ari eignir sveit­ar­fé­lags­ins, og end­ur­semja við lána­drottna sína til að bregð­ast við alvar­legri stöðu bæj­ar­sjóðs Reykja­nes­bæjar. Til að bregð­ast við brýn­asta vand­anum er til athug­unar hjá Reykja­nesbæ að skera niður fjár­fram­lög til umhverfis- og skipu­lags­mála, æsku- og íþrótta­starfs og félags­þjón­ust­unnar, og þá verða fjár­fram­lög til fjár­hags­að­stoðar atvinnu­lausra og mál­efna fatl­aðra end­ur­skoð­uðu, enda vega kostn­að­ar­lið­irnir þungt á sveit­ar­fé­lag­inu. Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að Reykja­nes­bær muni sömu­leiðis fara fram á hærri arð­greiðslur frá HS Veitum vegna skulda­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. Þá hyggst sveit­ar­fé­lagið skera niður yfir­vinnu og end­ur­skoða kostn­að­ar­liði eins og bíla­styrki til starfs­fólks.

[quote font="0" align="right"]Heim­ildir Kjarnans herma að skuldir Helgu­vík­ur­hafnar vegi þyngst í fjár­málum Reykja­nes­bæjar, en skuldir hafn­ar­innar nema sjö millj­örðum króna.[/quote]

Heim­ildir Kjarnans herma að skuldir Helgu­vík­ur­hafnar vegi þyngst í fjár­málum Reykja­nes­bæjar, en skuldir hafn­ar­innar nema sjö millj­örðum króna. Tafir á upp­bygg­ingu hafn­sæk­innar atvinnu­starf­semi hefur sett strik sitt í reikn­ing­inn hjá Reykja­nesbæ, því á meðan lítið hefur gerst hefur fjár­magns­kostn­aður hafn­ar­innar hlað­ist upp. Rekstur hafn­ar­innar er mjög slæmur, og skilar sveit­ar­fé­lag­inu litlu.

Þess ber þó að geta að tölu­verð atvinnu­upp­bygg­ing hefur átt sér stað í sveit­ar­fé­lag­inu á und­an­förnum miss­erum. Fjögur gagna­ver eru komin í gagnið í Reykja­nesbæ, tvö kís­il­ver eru í upp­bygg­ingu í Helguvík, tvö líf­tækni­fyr­ir­tæki eru í píp­unum og alþjóða­flug­völl­ur­inn á Mið­nes­heiði skilar sínu, en fjöl­mörg flug­þjón­ustu­fyr­ir­tæki eru starf­rækt í sveit­ar­fé­lag­inu. Þá er sveit­ar­fé­lagið orðið ansi lang­eygt eftir að álver Norð­ur­áls í Helguvík kom­ist loks­ins á kopp­inn. Líkt og Kjarninn hefur greint frá virð­ast hins vegar litlar líkur á að af bygg­ingu álvers­ins verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár