Gríðarlegur og umfangsmikill vandi Reykjanesbæjar síast inn

Reykja­nes­bær er fimmta stærsta sveita­fé­lag lands­ins. Þar búa um 14.500 manns. Og Reykja­nes­bær er það sveit­ar­fé­lag sem glímir við mestan vanda allra á Íslandi í dag.

Stærsta vanda­málið eru skuldir. Reykja­nes­bær er skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess, rúmir 40 millj­arðar króna, eru um 250 pró­sent af reglu­legum tekjum. Samkvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­leiðis í and­stöðu við lög.

Atvinnu­leysi á svæð­inu hefur verið, og er, mun hærra en ann­ars staðar á land­inu. Í mars 2011 var það 14,5 pró­sent á meðan að það var 8,6 pró­sent á land­inu öllu. Í dag er það 5,8 pró­sent á Suð­ur­nesjum á meðan að það er 3,6 pró­sent að með­al­tali á land­inu öllu. Minna atvinnu­leysi er ekki að öllu leyti fjölgun starfa að þakka. Í tveimur skrefum hefur atvinnu­leys­is­bóta­tíma­bilið verið lækkað úr fjórum árum í tvö og hálft ár frá árs­lokum 2012.

[quote font="0" align="right"]Fjár­hags­að­stoð Reykja­nes­bæjar við íbúa sína sem þurfa á slíkri að halda fimm­fald­að­ist frá hruni og fram til loka árs­ins 2013. [/quote]

Því hafa margir lang­tíma­at­vinnu­lausir, en þeir eru hlut­falls­lega flestir í Reykja­nesbæ á land­inu, farið af atvinnu­leys­is­bótum og njóta nú fjár­hags­að­stoðar sveit­ar­fé­laga. Fjár­hags­að­stoð Reykja­nes­bæjar við íbúa sína sem þurfa á slíkri að halda fimm­fald­að­ist frá hruni og fram til loka árs­ins 2013. Á því ári var hún um 270 millj­ónir króna. Búist er við því að stytt­ing atvinnu­leys­is­bóta­tíma­bils­ins um síð­ustu ára­mót niður í tvö og hálft ár muni auka kostnað Reykja­nes­bæjar vegna fjár­hags­að­stoðar um 70 millj­ónir króna á þessu ári, sam­kvæmt því sem kom fram í máli Oddnýjar Harða­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á Alþingi í gær.

Af þessu ástandi leiðir að fleiri börn búa við fátækt í Reykja­nesbæ en ann­ars­staðar á land­inu.

Vítaverð fjármálastjórn


Þeir sem héldu á stjórn­ar­taumunum í Reykja­nesbæ á árunum 2002 til 2014, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn undir stjórn Árna Sig­fús­sonar, þurftu að takast á við stærsta áfall sem bær­inn hefur nokkru sinni þurft að takast á við, brott­hvarf Banda­ríkja­hers frá Mið­nes­heiði. Með hernum hvarf langstærsti vinnu­staður svæð­is­ins. Til að bregð­ast við þessu var ákveðið að ráð­ast í fjár­fest­ingar í atvinnu­upp­bygg­ingu, meðal ann­ars með því að fjár­magna iðn­að­ar­höfn í Helguvík og með því að fjölga íbúum hratt með ódýrum lóða­út­deil­ingum.

[caption id="attachment_20694" align="align­right" width="214"] Árni Sig­fús­son var bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ á árunum 2002 til 2014.[/caption]

Íbúum í Reykja­nesbæ fjölg­aði enda um 30 pró­sent á árunum 2005 til 2009. Það var líka ákveðið að selja allar verð­mæt­ustu eignir sveit­ar­fé­lags­ins, þar á meðal eign­ar­hlut­inn í HS Orku. Á þessu tíma­bili, 2003 til 2014, skil­aði var A-hluti Reykja­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Fjár­fest­ing­arnar skil­uðu hins vegar mun minna til baka er vonur stóðu til um. Skuldir vegna hafn­ar­upp­bygg­ing­ar­innar eru yfir 7,5 millj­arðar króna og aukast ár frá ári. Margir þeirra sem fengu lóðir í sveit­ar­fé­lag­inu stóðu ekki undir þeirri skuld­bind­ingu og Íbúða­lána­sjóður tók yfir húsin þeirra. Alls eru rúm­lega 40 pró­sent allra eigna sem Íbúða­lána­sjóður heldur á á Suð­ur­nesjum. Samtals eru þetta 780 íbúðir.

Vítahringur skapast


Þá eru 17 pró­sent íbúa 18 ára og eldri á svæð­inu í alvar­legum van­skilum, en það er hæsta hlut­fall van­skila á land­inu og næst flest hegn­ing­ar­laga­brot miðað við höfða­tölu voru til­kynnt til lög­reglu á Suð­ur­nesjum á árinu 2013. Einungis höf­uð­borg­ar­svæðið var með fleiri brot.

Það er því gríð­ar­legt fram­boð af hús­næði á Suð­ur­nesjum, sér­stak­lega þegar þær þús­undir íbúða sem her­inn skildi eftir á Mið­nes­heiði eru taldar með.

Sökum allra þess­arra þátta er leigu­verð á Suð­ur­nesjum allt að helm­ingi ódýr­ara en í dýr­ustu hverfum Reykja­víkur. Fyrir þá sem ætla að kaupa er fer­metra­verðið í Reykja­nesbæ (um 165 þús­und krónur) mun lægra en það er í höf­uð­borg­inni (315 þús­und krónur) þótt það taki ein­ungis um 40 mín­útur að keyra á milli.

Hið lága hús­næð­is­verð hefur leitt til þess að margt fólk sem þarf að sækja í ódýrt leigu­hús­næði, ein­fald­lega vegna þess að það hefur ekki efni á öðru, hefur flutt sig til Reykja­nes­bæjar. Þegar það fólk hefur lokið bóta­rétti sínum fær það síðan fjár­hags­að­stoð frá Reykja­nesbæ og eykur þar af leið­andi kostnað sveit­ar­fé­lags­ins vegna þessa. Börn þeirra sem eru á fjár­hags­legri fram­færslu eru lík­legri en önnur til að búa við fátækt og þannig ýkist það vanda­mál. Ákveðin víta­hringur hefur skap­ast.

Þörf á sársaukafullum aðgerðum


Eftir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar tóku ný öfl við stjórn­ar­taumunum í Reykja­nesbæ og fengu KPMG til að gera óháða úttekt á fjár­málum sveit­ar­fé­lags­ins. Á grunni þeirrar úttektar var ný aðgerð­ar­á­ætlun til átta ára kynnt til sög­unnar. Hún fékk nafnið „Sóknin“ og hafði það að mark­miði að ná skulda­hlut­fall­inu niður fyrir 150 pró­sent fyrir árið 2021. Í grófum dráttum er um fjór­þætta áætlun að ræða.

Í fyrsta lagi þarf að auka fram­legð að lág­marki um 900 millj­ónir króna með aðgerðum í rekstri. Það þýðir auknar tekjur, til dæmis í gegnum þjón­ustu­gjöld og hækkun á útsvari, og lækkun rekstr­ar­kostn­aðar, til dæmis með upp­sögnum á starfs­fólki.

[caption id="attachment_20693" align="alignnone" width="1024"] Skuldir vegna bygg­ingar Helgu­vík­ur­hafnar eru yfir 7,5 millj­arðar króna. Tekjur standa ekki undir fjár­magns­kostn­aði.[/caption]

Í öðru lagi á að stöðva fjár­flæði frá A-hluta sveit­ar­sjóðs yfir til starf­semi sem til­heyrir B-hluta. Með öðrum orðum á að hætta að nota tekjur sveita­fé­lags­ins, lán­tökur eða eigna­sölur til að borga fyrir þann hluta sem til­heyrir B-hluta sveita­sjóðs. Í þessu felst meðal ann­ars að HS Veitur verði látnar greiða hámarks­arð, um 900 millj­ónir króna á ári.

Í þriðja lagi á að tak­marka fjár­fest­ingar A-hluta sveit­ar­fé­lags­ins við 200 millj­ónir króna á ári þar til fjár­hags­mark­miðum verður náð.

Í fjórða lagi á að mæta auk­inni greiðsl­ur­byrði næstu ára með end­ur­fjár­mögnun skulda og skuld­binda og skoða mögu­leika á frek­ari sölu eigna eða sam­ein­ingu B-hluta stofn­ana. Þær B-hluta stofn­anir sem eru mest byrði á Reykja­nesbæ eru Reykja­nes­höfn og Fast­eignir Reykja­nes­bæjar. Hvorug þeirra getur rekið sig án pen­inga frá A-hluta sveita­sjóðs­ins eins og staðan er í dag.

Íbúarnir þolendur


Síðan var haf­ist handa við að taka til. Og íbúar Reykja­nes­bæjar hafa heldur betur fundið fyrir því.

Um síð­ustu ára­mót var til að mynda fengin heim­ild til að leggja auka­ála ofan á hámarks­út­svar. Á manna­máli þýðir það að íbúar Reykja­nes­bæjar, með öll sín íþyngj­andi vanda­mál, þurfa líka að greiða hærri skatta til sveit­ar­fé­lags­ins en nokk­urt annað sveit­ar­fé­lag á land­inu vegna afleitrar fjár­hags­stöðu. Þeir borga 15,05 pró­sent á meðan að hámarks­út­svar sam­kvæmt lögum er 14,52 pró­sent.

Til við­bótar hefur fast­eigna­skattur verið hækk­aður, fastri yfir­vinnu bæj­ar­starfs­manna sagt upp, föstum öku­tækja­styrkjum þeirra sagt upp, fagsviðum fækkað, öllum fram­kvæmda­stjórum sveit­ar­fé­lags­ins sagt upp. Í hálkunni á milli jóla og nýárs var íbúum boðið að koma og sækja sand til að dreifa á stétt­ina hjá sér. Það voru ekki til bæj­ar­starfs­menn til að sinna því við­viki.

Afneitun og fólk á villigötum


Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ, skrif­aði grein á vef Vík­ur­frétta í fyrra­dag þar sem hann lýsir þessum veru­leika sem við er að etja og hvernig íbú­arnir eru hægt og bít­andi að átta sig á honum.

Þar segir meðal ann­ars: „Fjár­hags­staða Reykja­nes­bæjar er graf alvar­leg. Sú stað­reynd hefur legið fyrir um nokk­urt skeið. Samt eru ótrú­lega margir sem halda ennþá að þetta sé bara póli­tískur skolla­leikur með það að mark­miði að láta stöð­una líta verr út en hún raun­veru­lega er. Það er fjarri lagi.[...]Samt hitti ég fólk af og til sem heldur hinu gagn­stæða fram og trúir því að þetta sé allt í plati. „Var nú nauð­syn­legt að hækka útsvarið? Var nauð­syn­legt að hækka fast­eigna­skatt­inn?

[caption id="attachment_20692" align="align­right" width="300"] Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ.[/caption]

Var nauð­syn­legt að draga saman og hag­ræða í rekstri? Var nú nauð­syn­legt að segja upp fastri yfir­vinnu? Var nú nauð­syn­legt að segja upp föstum akst­ur­styrkjum? Var nauð­syn­legt að fækka fagsviðum? Var nú nauð­syn­legt að segja upp öllum fram­kvæmda­stjór­unum? Var nú nauð­syn­legt að gera samn­ing við inn­an­rík­is­ráðu­neytið? Var nú nauð­syn­legt að …….“ Öllum spurn­ingum í þessum dúr er bara hægt að svara á einn veg; „Já, það var bráð­nauð­syn­legt að taka þessar ákvarð­anir þótt erf­iðar væru.“

Kjartan segir enn­fremur að komið sé að ögur­stundu og það hafi ein­fald­lega ekki verið hægt að bíða lengur og sjá hvort ástandið myndi lag­ast. Það þurfi að grípa til aðgerða og það hafi veirð gert. Skuldir Reykja­nes­bæjar séu allt of háar og að það þurfi að greiða þær niður.„Það gerum við ekki nema með því að eiga rekstr­ar­af­gang á hverju ári sem nota má til þess að greiða niður skuldir og því þurfum við að halda gríð­ar­lega vel á spil­unum á næstu 8 árum að minnsta kosti. Allir sem halda öðru fram eru í afneitun og á villi­götum.“

Þingheimur vaknar


Alvarleg staða Reykja­nes­bæjar virð­ist líka vera að ýta við alþing­is­mönnum þjóð­ar­innar. Í gær fór fram sér­stök umræða um stöð­una á Alþingi, að frum­kvæði Oddnýjar Harð­ar­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Oddný er af Suð­ur­nesj­unum.

Oddný fór yfir væg­ast sagt afleita stöðu Reykja­nes­bæjar í ítar­legu máli og beindi þeirri fyr­ir­spurn til Ólafar Nordal, ráð­herra sveit­ar­stjórn­ar­mála, hver ábyrgð eft­ir­lits­nefndar með fjár­málum sveit­ar­fé­laga, sem heim­il­aði Reykja­nesbæ að ráð­ast í stór­tækar fjár­fest­ingar og hina hamlausu skulda­söfnun, væri. Hefði hún ekki átt að grípa inní og gera skýrar kröfur á rekstri sveita­fé­lags sem var rekið með jafn miklum halla í jafn langan tíma og Reykja­nes­bær?

[caption id="attachment_20691" align="alignnone" width="625"] Í gær fór fram sér­stök umræða um stöð­una á Alþingi, að frum­kvæði Oddnýjar Harð­ar­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar.[/caption]

Fjöl­margir þing­menn, þvert á flokka, tóku þátt í umræð­unum og tóku undir með Oddnýju um að íbúar sveita­fé­lags­ins væru þolendur í mál­inu. Páll Valur Björns­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði að meiri­hluti íbúa á svæð­inu væri „í sjokki yfir þessu“, og átti þar við fjár­hags­stöðu bæj­ar­ins.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að eft­ir­lits­nefnd með fjár­málum sveit­ar­fé­laga hefði sam­þykkt „draum­kennd fjár­fest­ing­ar­á­form“ fyrri stjórn­enda sveit­ar­fé­lags­ins og spurði: „Af hverju var ekki gripið í taumanna fyrr, vegna þess að kostn­að­ur­inn fyrir íbúa í Reykja­nesbæ er hræði­legur.“

Ólöf Nordal tók undir að vand­inn væri meðal ann­ars til­kom­inn vegna fjár­fest­inga sem Reykja­nes­bær hefði ráð­ist í með þeim vænt­ingum að þær myndu skapa mikil tæki­færi. Þau tæki­færi hafi hins vegar ekki skilað sér og því hafi fjár­fest­ing­arnar orðið þungur baggi á bænum. Hún benti hins vegar rétti­lega á að sveita­fé­lög beri hins vegar sjálf ábyrgð á sínum fjár­málum. Og það þyrfti að vera verk­efni mun fleiri ráðu­neyta en hennar að grípa til aðgerða vegna stöð­unnar á Suð­ur­nesjum.

Lífsmark en margt eftir að gera


Þess ber að geta að það hefur átt sér stað atvinnu­upp­bygg­ing í Reykja­nes­bær á allra síð­ustu miss­erum. Fjögur gagna­ver eru komin í gagnið í Reykja­nesbæ, tvö kís­il­ver eru í upp­bygg­ingu í Helguvík, tvö líf­tækni­fyr­ir­tæki eru í píp­unum og alþjóða­flug­völl­ur­inn á Mið­nes­heiði skilar sínu, en fjöl­mörg flug­þjón­ustu­fyr­ir­tæki eru starf­rækt í sveit­ar­fé­lag­inu.

Stóra lausnin á atvinnu­málum Reykja­nes­bæjar, sem fyrri rík­is­stjórnir tóku þátt í að búa til óraun­hæfar vænt­ingar um að yrði að veru­leika, álver í Helguvík, mun þó lík­ast til aldrei rísa.

Því er ljóst að þótt byrjað sé að taka á vanda Reykja­nes­bæjar, er langt í land hjá sveit­ar­fé­lag­inu við að rétta sinn hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár