Staða Reykjanesbæjar mjög erfið og ráðast þarf í stórtækar aðgerðir

Reykja­nes­bær er skuld­settasta sveit­ar­fé­lag á Íslandi og rekstur þess und­an­farin ár hefur verið afleitur. Til að það upp­fylli skil­yrði laga um lög­lega skuld­setn­ingu þarf að skera mikið niður í rekstri sveit­ar­fé­lags­ins, auka tekjur þess, hætta að nota lán­tökur, eigna­sölu og tekjur sveita­fé­lags­ins til að nið­ur­greiða kostnað vegna Reykja­nes­hafnar og fast­eigna­fé­lags Reykja­nes­bæjar, auka arð­greiðslur til sveita­fé­lags­ins frá HS Veitum úr 450 millj­ónum króna í um 900 millj­ónir króna, end­ur­fjár­magna skuldir og selja eignir til að laga stöð­una. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tveimur skýrslum, grein­ingu KPMG á fjár­hags­stöðu Reykja­nes­bæjar, og úttektar Haraldar L. Har­alds­sonar hag­fræð­ings á rekstri Reykja­nes­bæjar, sem kynntar voru á opnum íbúa­fundi í Hljóma­höll­inni í kvöld.

Ráðast þarf í stórtækar aðgerðir


Samkvæmt grein­ingu KPMG er ljóst að skulda­hlut­fall Reykja­nes­bæjar af rekstar­tekjum, sem var 271,4 pró­sent í lok síð­asta árs, þarf að lækka veru­lega á næstu árum. Löglegt hámark er 150 pró­sent og sveit­ar­fé­lagið hefur til árs­ins 2021 að ná því mark­miði.

Til að það náist mun Reykja­nes­bær ráð­ast í aðgerð­ar­á­ætlun sem hefur fengið nafnið „Sóknin“ og byggir á til­lögum KPMG. Í grófum dráttum er áætl­unin fjór­þætt.

Í fyrsta lagi þarf að auka fram­legð að lág­marki um 900 millj­ónir króna með aðgerðum í rekstri. Það þýðir auknar tekjur, til dæmis í gegnum þjón­ustu­gjöld, og lækkun rekstr­ar­kostn­aðar, til dæmis með upp­sögnum á starfs­fólki.

Í öðru lagi á að stöðva fjár­flæði frá A hluta sveit­ar­sjóðs yfir til starf­semi sem til­heyrir B hluta. Með öðrum orðum á að hætta að nota tekjur sveita­fé­lags­ins, lán­tökur eða eigna­sölur til að borga fyrir þann hluta sem til­heyrir B hluta sveita­sjóðs. Í þessu felst meðal ann­ars að HS Veitur verði látnar greiða hámarks­arð, um 900 millj­ónir króna á ári.

Í þriðja lagi á að tak­marka fjár­fest­ingar A hluta sveit­ar­fé­lags­ins við 200 millj­ónir króna á ári þar til fjár­hags­mark­miðum verður náð.

Í fjórða lagi á að mæta auk­inni greiðsl­ur­byrði næstu ára með end­ur­fjár­mögnun skulda og skuld­binda og skoða mögu­leika á frek­ari sölu eigna eða sam­ein­ingu B hluta stofn­ana. Þær B hluta stofn­anir sem eru mest byrði á Reykja­nesbæ eru Reykja­nes­höfn og Fast­eignir Reykja­nes­bæjar. Hvorug þeirra getur rekið sig án pen­inga frá A hluta sveita­sjóðs­ins.

KPMG reiknar sig niður á að skulda­hlut­fall Reykja­nes­bæjar verði 188,8 pró­sent árið 2021 ef ekki verði ráð­ist í aðgerð­ar­á­ætl­un­ina „Sóknina“. Verði hún farin telur KPMG að skulda­við­miðið geti farið í 140,2 pró­sent árið 2021 og þar með upp­fyllt lög. Tekið er sér­stak­lega fram að ef stór, ný verk­efni koma upp í sveit­ar­fé­lag­inu, til dæmis með auk­inni stór­iðju, myndi það bæta stöð­una enn frekar.

[caption id="attachment_10869" align="aligncenter" width="740"] Reykja­nes­bær var rek­inn með halla í tólf af þrettán síð­ast­liðnum árum.[/caption]

Reykjanesbær rekinn með halla í tólf af þrettán árum


Úttekt Haraldar er af svip­uðu meiði og grein­ing KPMG. Hann rekur að skuldir A hluta Reykja­nes­bæjar hafi auk­ist úr 5.618 millj­ónum króna árið 2002 í 24.674 millj­ónir króna árið 2013, eða um 19 millj­arða króna. Það er hækkun um 339 pró­sent eða rúm­lega fjór­földun. Ákvæði laga segja að ekki megi reka sveita­sjóð með halla sam­tals þrjú ár í röð. Reykja­nes­bær var hins vegar rek­inn með halla af reglu­legri starf­semi öll árin á tíma­bil­inu 2003 til 2013, nema eitt, árið 2010. Til að mæta þess­ari stöðu voru eignir seldar og stór lán tekin. Hlutfall skulda Reykja­nes­bæjar af rekstr­ar­tekjum var 271 pró­sent í lok árs 2013. Og margar verð­mætar eignir, á borð við eign­ar­hlut sveit­ar­fé­lags­ins í HS Orku, seldar.

Í skýrslu Haraldar segri að í við­ræðum við starfs­menn sveit­ar­fé­lags­ins hafi komið fram hjá sumum þeirra að þeir líta á fjár­hags­á­ætlun sem áætlun og mark­mið, fremur en fjár­heim­ild. „Ef þetta er rétt er um alvar­legan mis­skiln­ing að ræða sem ber að leið­rétta,“ segir Haraldur. „Fari stofnun fram úr þeirri fjár­heim­ild, sem kveðið er á um í fjár­hags­á­ætlun stofn­un­ar­innar og sam­þykkt liggur ekki fyrir hjá bæj­ar­stjórn, er um brot á sveit­ar­stjórn­ar­lögum að ræða“.

Staðan krefst harðra aðahaldsaðgerða


Í úttekt hans er meðal ann­ars lagt til að kröfur aðal­sjóðs á B hluta­stofn­anir sem eru ekki taldar inn­heimt­an­legar verði afskrif­aðar í bókum sveit­ar­fé­lags­ins, kannað verði hvort hægt sé að end­ur­fjár­magna eldri lán með hag­stæð­ari kjörum, hvort hægt sé að greiða upp, og eftir atvikum lækka, leigu­skuld­bind­ingar, hvort hægt verði að taka HS Veitur úr úr sam­stæðu­reikn­ingi Reykja­nes­bæjar, að rekstur allra B-hluta stofn­ana verði sjálf­bær, að for­stöðu­mönnum verði gert óheim­ilt að fara fram úr fjár­heim­ildum, að sett verði yfir­vinnu­bann á starfs­fólk Reykja­nes­bæjar, að allir samn­ingar um bif­reið­ar­styrki verði end­ur­skoð­aðir, að við­vera starfs­manna í vakta­vinnu verði stytt, að öll inn­kaup á rekstr­ar­vörum og þjón­ustu verði boðin út, að dregið verði úr kaupum á örygg­is­gæslu og að for­stöðu­mönnum stofn­anna verði „falið að skrá mán­að­ar­lega alla raf­magns­notkun og hit­un­ar­kostnað“.

Hægt er að lesa skýrsl­urnar í heild sinni hér og hér. Kjarninn mun fjalla áfram um þær á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár