HS Orka vill losna undan orkusölu til Helguvíkur

Orku­fyr­ir­tækið HS Orka hefur hafið gerð­ar­dóms­ferli til að losna undan orku­sölu­samn­ingum sem fyr­ir­tækið und­ir­rit­aði við Norðurál í apríl 2007 vegna fyr­ir­hug­aðs álvers í Helguvík. Vinni HS Orka málið má telj­ast full­víst að álver Norð­ur­áls í Helguvík sé end­an­lega úr sög­unni.

Í hálfs­árs­upp­gjörum HS Orku og Century Aluminum, móð­ur­fé­lags Norð­ur­áls, kemur fram að HS Orka hafi stefnt Norð­ur­áli fyrir gerð­ar­dóm þann 10. júlí síð­ast­lið­inn. Málsrök eru þau að ákvæði orku­sölu­samn­ings­ins hafi ekki verið upp­fyllt og þar með sé hann ekki lengur í gildi. Norðurál telur þetta ekki rétt og ætlar að taka til varna. Búist er við því að mála­rekst­ur­inn gæti tekið allt að eitt og hálft ár. Nið­ur­staða gæti því legið fyrir undir lok árs­ins 2015.

Orku­sölu­samn­ing­ur­inn sem um ræðir er upp á 150 MW af orku. HS Orka getur ekki selt þá orku til ann­ars kaup­anda á meðan að hann er í gildi. Í dag, sjö árum eftir að samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður, er fyr­ir­tækið því bundið inni í sam­komu­lagi með þorra þeirrar orku sem það telur sig geta fram­leitt og selt í nán­ustu fram­tíð sem virð­ist ekk­ert vera að fara að verða að veru­leika. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa við­ræður staðið yfir milli HS Orku og Century í mörg ár til að reyna að höggva á hnút­inn. Þær við­ræður hafa meðal ann­ars staðið yfir af miklum krafti á þessu ári, en án árang­urs. Því ákvað HS Orka að grípa til þess ráðs að reyna að losna út úr orku­sölu­samn­ingnum á grund­velli þess að Norðurál væri ekki að standa við ákvæði í honum.

Hafa áður farið fyrir gerðardóm


Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Norðurál og HS Orka fara fyrir gerð­ar­dóm. Norðurál stefndi orku­fyr­ir­tæk­inu fyrir slíkan í Svíþjóð árið 2010. Nið­ur­staða hans, sem var kunn­gjörð í des­em­ber 2011, var sú að orku­sölu­samn­ing­ur­inn ætti að standa en að hann verði að skila HS Orku við­un­andi arð­semi, sem er sér­stak­lega skil­greind í nið­ur­stöð­unni. Þá hafn­aði gerð­ar­dóm­ur­inn skaða­bóta­kröfu Norð­ur­áls á hendur HS Orku vegna van­efnda á samn­ingnum.

Í raun gátu báðir deilu­að­ilar tekið eitt­hvað jákvætt út úr þeirri nið­ur­stöðu. HS Orka var ekki skuld­bundið til að selja orku á verði sem skil­aði fyr­ir­tæk­inu ekki arð­semi og Norðurál hélt þeim orku­sölu­samn­ing sem var því mik­il­vægastur til að halda von­inni um álver í Helguvík lif­andi.

Michael Bless vill Landsvirkjun í leiðtogahlutverk


Norðurál hefur hug á að byggja álver í Helguvík í fjórum áföngum. 150 MW af orku þarf í hvern áfanga og Norðurál hefur lýst því yfir að álverið verði ekki klárað nema að búið sé að tryggja orku fyrir tvo áfanga, alls 300 MW. Helm­ingur þess átti því að koma frá HS Orku. Ekki hefur tek­ist að tryggja þá við­bót­ar­orku sem til þarf og lágt heims­mark­aðs­verð á áli á und­an­förnum árum hefur ekki skapað mik­inn hvata til þess að ráð­ast í að klára Helgu­vík­ur­verk­efnið.

Michael Bless, for­stjóri Century Aluminum, var spurður út í Helgu­vík­ur­ál­verið á fundi með fjár­festum í til­efni af hálfs­árs­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins í júlí. Þar sagði hann að það væri engin breyt­ing á stöðu verk­efn­is­ins á milli árs­fjórð­unga. „Það sem við virki­lega þurfum er að rík­is­orku­fyr­ir­tækið, Lands­virkjun, standi upp í leið­toga­hlut­verk í þessu verk­efni ef við ætlum að koma hlut­unum í gang í náinni fram­tíð“.

Pólitískur þrýstingur á Landsvirkjun


Tölu­verður póli­tískur þrýst­ingur hefur verið á Lands­virkjun að koma að Helgu­vík­ur­verk­efn­inu. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­rá­herra sendi Herði Arn­ar­syni, for­stjóra Lands­virkj­unnar, til að mynda harð­orð skila­boð á haust­fundi fyr­ir­tæk­is­ins í nóv­em­ber í fyrra um að hún væri „orðin ansi óþreyju­full og ég vil fara að sjá árangur og að verk­efnin verði að veru­leika. Tæki­færin eru svo sann­ar­lega til staðar. Ég get nefnt álverið í Helguvík, fram­kvæmd sem ekki bara mun skipta Suð­ur­nesja­menn máli heldur lands­menn alla og hefur beðið allt of lengi“.

Hörður hefur svarað því til að Lands­virkjun geti ekki ann­ast orku­öflun fyrir álverið í Helguvík nema að litlu leyti. Sú orka sem Lands­virkjun hefur að bjóða í verk­efnið er ein­ungis á bil­inu 50 til 100 MW og því dropi í hafið af því sem til þarf. Í des­em­ber sagði Hörður í sam­tali við RÚV að álverð þyrfti að hækka um 30 til 40 pró­sent til að raun­hæft væri að ljúka samn­ingum. Það hefur ekki gerst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár