Mæla með skattaafslætti fyrir hlutabréfakaup einstaklinga

Í nýrri til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins er mælt með skatta­af­slætti til þess að ýta undir hluta­bréfa­kaup almenn­ings

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka Atvinnu­lífs­ins. Mynd: Aðsend mynd

Samtök atvinnu­lífs­ins telja skyn­sam­legt að skatta­af­slættir séu veittir ein­stak­lingum vegna hluta­bréfa­kaupa Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef sam­tak­anna.

Í til­kynn­ing­unni segir að aukin hluta­bréfa­kaup ein­stak­linga myndi efla atvinnu­lífið, leiða til ábata fyrir þá sem fjár­festa og vænka hag fyr­ir­tækja og rík­is­sjóðs. Líta megi til Sví­þjóðar sem fyr­ir­myndar, en þar fá svo­kall­aðir fjár­fest­inga­spari­reikn­ingar sér­stak­lega skatta­lega með­ferð sem sé bæði ein­föld og gagnsæ.

Minnst er á að ákveð­inn afsláttur frá tekju­skattur hefur nýlega verið settur á hér á landi til hluta­bréfa­kaupa, en hann þurfi að upp­fylla þröng skil­yrði og áhrif þess hafi því orðið tak­mörkuð. Því séu SA þess full­viss að stjórn­völd vilji bæta þar úr, enda um sam­eig­in­lega hags­muni fólks, fyr­ir­tækja og stjórn­valda að ræða.

Kjarninn greindi frá því á dög­unum að Magnús Harð­ar­son, for­stöðu­maður við­skipta­sviðs Kaup­hall­ar­innar, mældi einnig með auk­inni þátt­töku almenn­ings á íslenska hluta­bréfa­mark­að­inum. Magnús minnt­ist líka á Svíþjóð í því til­liti, en í sænskum fjár­fest­inga­spari­reikn­ingum þurfi ein­stak­lingar ein­ungis að greiða flatan skatt af með­al­stöðu fjár­magns, ekki af sölu­hagn­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár