Góð staða á íslenskum hlutabréfamarkaði

Magnús Harð­ar­son telur verð­bréfa­mark­að­inn sýna mörg heil­brigð­is­merki og segir stöð­una vera um margt betri en fyrir hrun.

Húsakynni Kauphallarinnar
Húsa­kynni Kaup­hall­ar­innar Mynd: NasdaqIceland

Magnús Harð­ar­son, for­stöðu­maður við­skipta­sviðs Nasdaq Iceland, segir stöð­una góða á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, en vill meina að hana megi bæta með aukna þátt­töku almenn­ings og leyf­is­veit­ingu á verð­bréfa­lánum.

Í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar segir Magnús mikla fram­þróun hafa verið á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði und­an­farin ár. Máli sínu til stuðn­ings vísar hann meðal ann­ars í fjölda skráðra fyr­ir­tækja, en þau eru orðin 20 nú sam­an­borið við 11 á árunum eftir efna­hags­hrunið. Einnig nefnir hann fjölda dag­legra við­skipta, en þau hafa þrjá­tíu­fald­ast frá 2010. Að sögn Magnúsar hefur vöxt­ur­inn „ekki átt sér stað með neinum látum heldur jafnt og þétt, eig­in­lega hægt og hljótt“.

Frá apríl 2009 hefur hækkun hluta­bréfa­verðs numið ríf­lega 250% eða sem sam­svarar að með­al­tali 18% á ári. Virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins nemur um 1.100 millj­örðum í dag, en það er um sex og hálfu sinnum meira en árið 2009. Stærstu fyr­ir­tækin á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum eru Marel og Össur, en sam­an­lagt mark­aðsvirði þeirra nemur um 43% af virði mark­aðs­ins. 

Samkvæmt Keldunni er sam­an­lagt bók­fært eigið fé fyr­ir­tækj­anna helm­ingi lægra en mark­aðsvirði þeirra, eða um 455 millj­arðar.

[adspot]Skattaafslættir og verðbréfalán

Í grein sinni bendir Magnús Harð­ar­son á að þrátt fyrir að vel hafi tek­ist til við end­ur­reisn hluta­bréfa­mark­aðar þá sé mik­il­vægt að nýta með­byr­inn og treysta umgjörð hluta­bréfa­mark­aðar enn frekar, en þátt­taka almenn­ings á honum er enn lítil. Beinn eigna­hlutur ein­stak­linga í mark­aðsvirði sé ein­ungis um 4% í ár, en á árunum 2002-2007 hafi hún verið á bil­inu 11-17%.

Samkvæmt Magnúsi er mik­il­vægt að efla þátt­töku almenn­ings til að stuðla að góðri sam­búð atvinnu­lífs og alls almenn­ings. Þetta hafi Svíar áttað sig á, en þeir hafa beitt skatta­legum hvötum til auk­innar fjár­fest­ingar almennra borg­ara. Þar þurfi ein­stak­lingar sem fjár­festa í gegnum svo­kall­aða fjár­fest­inga­sparn­að­ar­reikn­inga ekki að greiða skatt af sölu­hagn­aði, heldur aðeins flatan skatt af með­al­stöðu fjár­magns á reikn­ingum.

Enn fremur bendir grein­ar­höf­undur á mögu­leik­ann á verð­bréfa­lánum. Lánin séu mik­il­væg fyrir þróun mark­að­ar­ins, til dæmis flokki vísi­tölu­fyr­ir­tækið FTSE mark­aði ekki sem þró­aða nema að umrædd lán séu til staðar.

Að lokum segir Magnús að vel hafi tek­ist til við end­ur­reisn hluta­bréfa­mark­aðar. Með góðum vilja og sam­taka­mætti mark­aðs­að­ila og lög­gjafans mætti þannig gera hann að öllu leyti sam­bæri­legan við þá mark­aði sem standa fremstir á heims­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár