Markaðsvirði Kauphallarinnar eru rúmir 1.000 milljarðar

Sam­an­lagt mark­aðsvirði allra fyr­ir­tækja Kaup­hall­ar­innar námu 1.058 millj­örðum undir lok júní­mán­aðar.

Sam­an­lagt mark­aðsvirði eigin fjár skráðra fyr­ir­tækja í Kaup­höll­inni voru um 1.058 millj­arðar króna undir lok júní­mán­aðar, þar af 980 millj­arðar á OMX- mark­að­inum.

Bókfært eigið fé félag­anna á OMX-mark­aði frá fyrsta árs­fjórð­ungi 2017 var nokkru lægri en mark­aðsvirði, eða um 450 millj­arðar króna. Mikill munur er á mark­aðsvirði og bók­færðu virði milli félaga, en mun­ur­inn sést á svoköll­uðu P/B- hlut­falli þeirra.

P/B hlut­fallið er notað af fjár­festum til að finna út hvernig félög á mark­aði eru metin. Hæst er hlut­fallið 5,84 hjá Nýherja, en lægst er það 1,11 hjá Símanum. Ef hlut­fallið er mjög lágt gæti það bent til þess að félagið sé annað hvort und­ir­verð­lagt eða þá að það eigi í und­ir­liggj­andi rekstr­ar­erf­ið­leikum. Hafa ber þó í huga að ekki er hægt að að bera saman P/B- hlut­föll milli mis­mun­andi fyr­ir­tækja þar sem ásætt­an­legt skulda­hlut­fall er breyti­legt eftir rekstr­ar­um­hverfi.

[adspot]Stærstu fyr­ir­tækin í Kaup­höll­inni eru Marel og Össur, en sam­an­lagt mark­aðsvirði þeirra er um 44% af virði OMX-mark­að­ar­ins. Með­fylgj­andi er tafla þar sem bók­fært eigið fé fyr­ir­tækj­anna er sett upp ásamt mark­aðsvirði þeirra.

Markaðsvirði og bókfært eigið fé fyrirtækja á OMX-markaði í Kauphöllinni

Fyr­ir­tækiMark­aðsvirðiBókfært eigið fé
Marel236 ma.61 ma.
Össur198 ma.46 ma.
Icelandair70 ma.52 ma.
Reitir70 ma.47 ma.
Eimskip59 ma.28 ma.
HB Grandi59 ma.30 ma.
Hagar50 ma.18 ma.
Reginn50 ma.18 ma.
Eik40 ma.27 ma.
N130 ma.12 ma.
Sjóvá27 ma.15 ma.
Vís23 ma.16 ma.
TM21 ma.12 ma.
Voice16 ma.7 ma.
Nýherji15 ma.3 ma.
Skelj­ungur12 ma.7 ma.

Hræringar á markaði

[links]Nokkrar hrær­ingar hafa verið á mark­aðnum und­an­farna daga, en Kjarninn greindi frá því í að hluta­bréfa­vísi­talan lækk­aði um 1,5% í gær. Lækk­un­ina hefði mátt skýra með auknum erlendum fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­ina, en þeir eru stærstu eig­endur allra fyr­ir­tækj­anna.

Samhliða minnk­andi eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóða í fyr­ir­tækj­unum hafa aflandskrónu­eig­endur verið að bæta við eign­ar­hlut sinn í mörgum félögum, en þeir eru nú komnir í hóp stærstu eig­enda margra fyr­ir­tækj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

markaðir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár