Libor-vextir hverfa árið 2021

Libor-vaxta­kerfið mun líða undir lok eftir fjögur ár, að sögn yfir­manns breska fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Andrew Bailey, yfirmaður breska fjármálaeftirlitsins.
Andrew Bailey, yfir­maður breska fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Mynd: EPA

Milli­banka­vöxtum Eng­lands­banka, Libor, verður skipt út fyrir nýtt kerfi fyrir árs­lok 2021. Samkvæmt breska fjár­mála­eft­ir­lit­inu nýtur Libor-kerfið ekki lengur trausts, en nýja kerfið muni vera áreið­an­legra. Þetta kemur fram í frétt á vef Bloomberg.

Samkvæmt frétt­inni fylgja 350 trilljón Banda­ríkja­dala Libor-vöxtum, en hann er einnig not­aður til við­mið­unar víða um heim fyrir hvers kyns útlán. Vext­irnir er metið með­al­tal vaxta sem sér­fræð­ingar telja 20 valda banka geta lánað á milli sín í fimm mis­mun­andi gjald­miðlum og í sjö mis­mun­andi tíma­beltum.

Frægt var þegar upp komst um að Libor-vextir hefðu verið mis­not­aðir á síð­ustu árum, en hneykslið er talið hafa kostað banka­stofn­anir 14 millj­arða Banda­ríkja­dala. Margir sér­fræð­ingar telja Libor-mis­notk­unin vera stærsta hneyksli í sögu fjár­mála­mark­aða.

Hneyksl­is­málið er hins vegar ekki ástæða kerf­is­skipt­ing­ar­innar, en Andrew Bailey, yfir­maður breska fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sagði í gær að ekki væri hægt að við­halda Libor-vöxtum þar sem gögn vanti til að meta þá rétt.„Vöntun á virkum mörk­uðum sem styður við Libor-kerfið vekur upp spurn­ingar um sjálf­bærni Libor-við­mið­un­ar­vext­ina,“ segir Bailey. Sem dæmi um litla virkni segir hann að ein­ungis 15 færslur hefðu verið skráðar á einu lána­tíma­bili í einum gjald­miðli árið 2016.

Samkvæmt Bloomberg gæti leit að nýjum við­mið­un­ar­vöxtum leitt til þrengri skipta­mark­aða, lægri vaxta og auk­ins lög­fræði­kostn­aðar, þar sem und­ir­rita þarf nýja samn­inga og breyta gömlum ef losa á við Libor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

markaðir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár