41 árs samstarf McDonalds og Ólympíuleikanna óvænt lokið

Skyndi­bit­ar­is­inn McDonalds ákvað í gær að slíta samn­ingi sínum við Ólymp­íu­leik­ana, þremur árum á undan áætlun.

Skyndibitakeðjan McDonalds hefur verið styrktaraðili Ólympíuleikanna í 41 ár.
Skyndi­bita­keðjan McDonalds hefur verið styrkt­ar­að­ili Ólymp­íu­leik­anna í 41 ár. Mynd: JUSTIN LANE / EPA

MacDonalds sleit 41 árs gamla styrkt­ar­samn­ingnum sínum við Ólymp­íu­leik­anna, þremur árum á undan áætlun. Þetta kemur fram á vef Reuters. 

Í gær lýsti Alþjóða­ólymp­íu­nefndin því yfir að skyndi­bit­ar­is­inn hefði óvænt hætt sam­starfi við þá, þar sem samn­ingur þeirra náði til árs­ins 2020. Var ákvörð­unin hluti af end­ur­skoðun McDonalds á við­skipta­hátt­unum sínum, hækk­andi styrkt­ar­kostn­aði Ólymp­íu­leik­anna og lækk­andi áhorfs­tölur í sjón­varpi.

Samn­ing­ur­inn við Ólymp­íu­leik­anna hefði náð yfir næstu leika í Tókyó 2020, en lík­legt er að skyndi­bita­keðjan hafi sparað hund­ruð millj­óna dala í styrkt­ar­fram­lögum með að rifta samn­ingnum núna.

Miklar fjár­fest­ingar eru í gangi hjá McDonalds þessa stund­ina þar sem reynt er að bæta gæði hrá­efna, veit­inga­húsa­þjón­ustu og mat­ar­pöntun á vefnum til að bregð­ast við auk­inni sam­keppni. Til þess að standa straum af þessum fjár­fest­ingum hefur skyndi­bit­ar­is­inn ákveðið að lág­marka kostnað á öðrum sviðum, sér í lagi á aug­lýs­inga­mark­aði.

„Við erum að end­ur­meta við­skipti okkar frá öllum sjón­ar­miðum og höfum tekið þessa ákvörðun í sam­starfi við Ólymp­íu­nefnd­ina til þess að ein­beita okkur að öðrum for­gangs­at­riðum,“ segir alþjóða­mark­aðs­stjóri McDonalds, Silvia Lagnado.

Samn­ings­slitin marka enda­lok langs sam­starfs McDonalds við Ólymp­íu­leik­ana, en fyr­ir­tækið sem hefur verið við­rið­inn þá síðan 1968 og styrkt­ar­að­ili síðan 1976. Slitin taka gildi undir eins, en keðjan hefur þó ákveðið að vera styrkt­ar­að­ili á vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Pyeongchang á næsta ári.

Í kjöl­far ákvörð­unar fyr­ir­tæk­is­ins hækk­uðu hluta­bréf þess um 0,7% í kaup­höll­inni í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

markaðir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár