Eaton Vance bætir enn við sig í skráðum félögum

Sjóðir í stýr­ingu Eaton Vance Mana­gement hafa bætt við sig eigna­hlut í Símanum.

Aflandskrónueigendur hafa bætt við sig í ýmsum félögum í Kauphöllinni, nú síðast í Símanum.
Aflandskrónu­eig­endur hafa bætt við sig í ýmsum félögum í Kaup­höll­inni, nú síð­ast í Símanum.

Eign­ar­stýr­inga­fyr­ir­tækið Eaton Vance Mana­gement hefur keypt stóran eign­ar­hlut í Símanum og á nú 6,58% eign­ar­hlut. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Kaup­hall­ar­innar.

[links]Kjarninn fjall­aði um auk­inn hlut Eaton Vance í Högum í gær, en sam­kvæmt til­kynn­ingu eru sjóðir í stýr­ingu fyr­ir­tæk­is­ins eign­uð­ust orðnir 5,12% eig­endur í fyr­ir­tæk­inu. Umræddir sjóðir eru meðal stærstu aflandskrónu­eig­end­anna, en þeir hafa orðið umsvifa­miklir á hluta­bréfa­mark­aði á und­an­förnum miss­erum.

Í kjöl­far fjár­fest­inga­hreyf­inga síð­ustu mán­aða eru þeir nú orðnir meðal stærstu eig­enda meiri­hluta skráðra félaga Kaup­höll­inni. Stærstur er hlutur sjóð­anna í Vís, en hann er 8,7%.

Í flöggun sem birt­ist á vef Kaup­hall­ar­innar í gær kemur svo fram að eign­ar­hlutur sjóðs­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins hafi stækkað úr 4,46% upp í 6,58% þann 28. júní. Með breyt­ing­unni er Eaton Vance orð­inn stærri hlut­hafi en líf­eyr­is­sjóð­irnir Stefnir og Stapi.

Mark­aðsvirði Símans eru rúmir 39 millj­arðar íslenskra króna, en virði hluta­bréfa félags­ins hafa hækkað nokkuð það sem af er árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aflandskrónueigendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár