Bandarískir aflandskrónueigendur kaupa í íslenskum fyrirtækjum

Á meðal þeirra fyrirtækja sem sjóðir Eaton Vance hafa keypt í að undanförnu er smásölurisinn Hagar, sem á Bónuskeðjuna.
Á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem sjóðir Eaton Vance hafa keypt í að und­an­förnu er smá­söluris­inn Hagar, sem á Bónu­skeðj­una. Mynd: Anton Brink

Sjóðir í stýr­ingu banda­ríska sjóða­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Eaton Vance Mana­gement, sem er stór­tækur aflandskrónu­eig­andi, hafa á síð­ustu vikum og mán­uðum keypt hluta­bréf í mörgum af þekkt­ustu skráðu fyr­ir­tækjum Íslands. Nú er svo komið að tveir sjóðir á vegum þess - Global Macro Port­folio og Global Macro Absolute Return Advantage - eru sam­an­lagt komnir í hóp tíu stærstu hlut­hafa Eimskipa og Reita fast­eigna­fé­lags. Þá er annar sjóð­ur­inn einnig kom­inn á lista yfir 20 stærstu hlut­hafa Haga, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tækis á Íslandi. Þá hafa sjóð­irnir eign­ast 1,7 pró­sent hlut í HB Granda, eina skráða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins. Frá þessu er greint í DV í dag. Þar segir að sam­an­lagt virði eign­ar­hluta sjóð­anna í þessum fjórum fyr­ir­tækjum sé vel á fimmta millj­arð króna.

Eaton Vance er einnig á meðal stærstu eig­enda aflandskrónu­eig­enda á Íslandi. Sam­an­lagt var talið að sjóðir fyr­ir­tækj­anna ættu um 30 pró­sent af aflandskrónu­hengj­unni sem var til staðar í vor.

Seðla­banki Íslands hélt tvö aflandskrón­u­út­boð í júní þar sem eig­endum aflandskróna bauðst að skipta þeim yfir í evrur gegn afslætti. Fjöldi banda­rískra sjóða sem eiga slíkar ákváðu að taka ekki þátt í útboð­unum tveimur, en í því síð­ari bauðst bank­inn til að kaupa krónur þeirra fyrir 190 krónur á hverja evru. Fjár­hæð sam­þykktra til­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­arðar króna og hækk­aði ein­ungis um fimm millj­arða króna milli útboða. Alls voru 188 millj­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­ar­um­fang aflandskrónu­vand­ans var fyrir það um 319 millj­arðar króna. Sjóðir Eaton Vance voru á meðal þeirra sem tóku ekki þátt í útboð­unum.

Sjóð­irnir ætla heldur ekki að sætta sig við að eignir þeirra verði settar inn á nær vaxta­lausa reikn­inga í refs­ing­ar­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­unum á því gengi sem Seðla­bank­inn hefur boðið þeim. Þess í stað hafa sjóð­irnir falið lög­manni sínum að kanna grund­völl fyrir mögu­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­setn­ingar sem sam­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­ar­upp­töku og brot á jafn­ræð­is­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár