Stórir aflandskrónueigendur segja nei takk við Seðlabankann

Einungis tókst að selja evrur fyrir fimm millj­arða króna í fram­halds­út­boði Seðla­bank­ans til aflandskrónu­eig­enda. Ljóst er að stórir banda­rískir sjóðir tóku ekki þátt. Þeir eru að kanna grund­völl mál­sóknar á hendur rík­inu vegna þess aðstæðna sinna.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að síðustu stóru hindruninni hafi verið rutt úr vegi til þess að hægt sé að fara að losa höft á innlenda aðila.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri segir að síð­ustu stóru hindr­un­inni hafi verið rutt úr vegi til þess að hægt sé að fara að losa höft á inn­lenda aðila. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nánast eng­inn þeirra aflandskrónu­eig­enda sem tóku ekki þátt í útboði Seðla­banka Íslands þann 16. júní ákváðu að taka þátt í fram­halds­út­boði þar sem bank­inn bauðst til að kaupa krónur þeirra fyrir 190 krónur á hverja evru. Fjárhæð sam­þykktra til­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­arðar króna og hækk­aði ein­ungis um fimm millj­arða króna milli útboða. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands sem birt var rétt í þessu. Alls voru 188 millj­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­ar­um­fang aflandskrónu­vand­ans var fyrir það um 319 millj­arðar króna.

Ljóst er að stærstu eig­endur aflandskróna, nokkrir banda­rískir sjóðir, ætla sér ekki að taka þátt í þeim leiðum sem Seðla­bank­inn hefur boðið þeim út úr íslenskum höftum. Þeir ætla heldur ekki að sætta sig við að eignir þeirra verði settar inn á nær vaxta­lausa reikn­inga í refs­ing­ar­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­unum á því gengi sem Seðla­bank­inn hefur boðið þeim. Þess í stað hafa sjóð­irnir falið lög­manni sínum að kanna grund­völl fyrir mögu­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­setn­ingar sem sam­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­ar­upp­töku og brot á jafn­ræð­is­reglu.

Stórt skref í átt að losun hafta

Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum vegna nið­ur­stöðu útboðs­ins segir að útboðið hafi verið liður í áætlun rík­is­stjórnar Íslands og bank­ans um losun fjár­magns­hafta og stefnt sé að því að áætlun um losun fjár­magns­hafta á inn­lenda aðila liggi fyrir síðla sum­ars og að frum­vörp sem lúta að næstu skrefum verði lögð fram á þingi þegar það kemur saman í ágúst. „Í fram­hald­inu verður skoðað hvenær og með hvaða hætti losað verður um höft á aflandskrónu­eig­endur sem kusu að taka ekki þátt í útboð­inu. Ljóst er að þátt­takan í útboð­inu mun ein­falda það ferli veru­lega. Eftir standa færri og eins­leit­ari aðilar en áður og útistand­andi fjár­hæð hefur lækkað veru­lega.“

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri segir að með útboð­inu og nýlegum laga­breyt­ingum sé síð­ustu stóru hindr­un­inni rutt úr vegi þess að hægt verði að stíga stór skref til að losa um fjár­magns­höft gagn­vart inn­lendum aðilum án hættu á óstöð­ug­leika. „Aflandskróna­hengjan hefur minnkað úr rúm­lega þriðj­ungi af lands­fram­leiðslu árið 2009 í u.þ.b. 11% af lands­fram­leiðslu að útboði loknu. Þótt ekki hafi verið unnt að taka til­boðum í aflandskróna­eignir að and­virði 105 millj­arða króna auð­veldar það lausn þess vanda sem eftir stendur að eig­endum krafna hefur fækkað mjög. Þá hefur verið búið svo um hnút­ana að aflandskrónur sem eftir standa valdi ekki óstöð­ug­leika á meðan losun fjár­magn­hafta á inn­lenda aðila gengur yfir. Smit­un­ar­á­hrif ættu því að vera hverf­andi og hætta á óstöð­ug­leika lítil.“

Óhlýðnir áttu að lenda aft­ast í röð­inni

Frum­varp Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­un­um, einnig nefnt aflandskrónu­frum­varp­ið, var sam­þykkt á Alþingi sunnu­dag­inn 22. maí. Það var lagt fram eftir lokun mark­aða á föst­u­dag og höf­uð­á­hersla lögð á að frum­varpið yrði að lögum fyrir opn­um mark­aða á mán­u­dag. Þess vegna fékk það mjög hraða með­­­ferð í þing­inu og for­­set­i Ís­lands skrif­aði undir þau aðfara­nótt mán­u­­dags­ins 23. maí.

Í ein­­földu máli snú­ast lögin um að eig­endur „aflandskróna“ myndu fá tvo kost­i. Annar fólst í því að eig­end­­urnir sam­­þykki að selja krón­­urnar sínar á geng­inu 190-220 krónur á hverja evru í útboði sem fór fram 16. júní síð­ast­lið­inn. Þeir sem myndu ekki sam­­þykkja að taka þátt í þessu útboð­i myndi bjóð­ast að fjár­­­festa í sér­­­stök­um inn­­­stæð­u­bréfum útgefnum af Seðla­­banka Íslands sem bera 0,5 pró­­sent vexti en vextir á þeim eru end­­ur­­skoð­aðir árlega.

Ósam­vinn­u­þýðir aflandskrón­u­eig­end­­ur, sem myndu neita að taka þátt í aflandskrón­u­út­­­boð­inu, áttu reynd­ar fá annað tæki­­færi til að koma sér út úr íslensku hag­­kerfi á enn verri kjöru­m frá 1. sept­­em­ber til 1. nóv­­em­ber 2016. Þar verður við­mið­un­­ar­­gengið 220 krón­­ur. Stjórn­völd sögðu að fari þeir ekki út með pen­ing­anna sína þá sé alls óljóst hvenær þeir hafi aftur aðgang að ­eignum sín­­um. Már Guð­­munds­­son seðla­­banka­­stjóri sagði við Morg­un­­blaðið í lok maí að þeir myndu lenda aft­­ast í röð­inni við losun hafta.

Það vakti umtals­verða athygli að þegar nið­ur­stöður útboðs­ins sem fram fór 16. júní voru kynntar þá kom í ljós að stærstu eig­endur aflandskróna höfðu ekki tekið þátt í þeim. Í fram­hald­inu ákvað Seðla­bank­inn að leggja í fram­halds­út­boð þar sem boð­ist var til að kaupa allar aflandskrónu­eignir sem seld­ust ekki á 190 krónur á hverja evr­u. Nú liggur fyrir að fáir eft­ir­stand­andi eig­endur þeirra höfðu áhuga á að taka þátt.

Telja engar neyðaraðstæður vera uppi í íslensku hagkerfi

Nálægt 85 pró­­sent svo­­kall­aðra aflandsskróna eru í eigu banda­rískra eigna­­stýr­inga­­fyr­ir­tækja, sem stýra með­­al­ ann­­ars vog­un­­ar­­sjóð­­um. Pétur Örn Sverr­is­­son hæsta­rétt­­ar­lög­­maður og Magnús Árni Skúla­­son hag­fræð­ingur unnu umsögn um frum­varp stjórn­­­valda um losun fjár­­­magns­hafta fyrir hönd tveggja sjóða, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­­tal LP.

Í ein­­földu máli telja sjóð­irnir að aðgerðir stjórn­valda gangi gegn stjórn­­­ar­­skrár­vörðum eigna­rétti sjóð­anna með „bóta­­skyld­um“ hætti.

Sér­­­stak­­­lega var áhersla lögð á það að eng­ar ­neyð­­­ar­að­­­stæður séu uppi í hag­­­kerf­inu þessi mis­­s­er­in sem rétt­­­læti ­eigna­­­upp­­­­­töku af sjóð­un­­­um. Staða efna­hags­­­mála sé góð og óskuld­­­settur gjald­eyr­is­­­forð­i ­Seðla­­­bank­ans hafi fyrir útboð numið um 400 millj­­­örðum króna, eða sem nemur um 20 pró­­­sent af lands­fram­­­leiðslu. Kvik krón­u­­­eign sé minni en sem þessu nemur og því ógn­i hröð útganga ekki hag­­­kerf­inu.

Aflandskrón­u­eig­end­­urnir telja að ­eigna­skerð­ingin sem frum­varpið feli í sér geti á engan hátt talist í sam­ræmi við jafn­­ræð­is- og eign­­ar­rétt­­ar­á­­kvæði stjórn­­­ar­­skrá­­ar­inn­­ar. Í 72. grein stjórn­­­ar­­skráar Íslands seg­ir: „Eign­­ar­rétt­­ur­inn er frið­­helg­­ur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenn­ings­þörf krefji. Þarf til þess laga­­fyr­ir­­mæli og kom­i ­fullt verð fyr­ir“. Þá sé aug­­ljós­­lega sé ver­ið að mis­­muna þeim á grund­velli þjóð­ernis og búsetu, sem sé líka í and­stöðu við skuld­bind­ingar Íslands á grund­velli samn­ings­ins um Evr­ópska efna­hags­svæðið (EES).

Þrátt fyrir það telja ráða­­menn þjóð­­ar­inn­­ar, og Seðla­­banki Íslands, að þessi ráða­­gerð stand­ist eign­­ar­rétt­­ar­á­­kvæði stjórn­­­ar­­skráar Íslands. Davíð Þór Björg­vins­­­son laga­­­pró­­­fess­or tekur undir það, sam­­kvæmt umsögn hans sem hann skil­aði inn vegna frum­varps­ins sem varð að lokum seint í maí.

Á grund­velli þess­arra skoð­ana sinna hafa þeir falið lög­manni sínum að kanna grund­völl fyrir máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þá stöðu sem komin er upp í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár