Áætlunin sem virðist ekki vera að virka

Banda­rískir sjóðir neita að spila eftir áætlun stjórn­valda um losun hafta og skoða nú grund­völl mál­sóknar á hendur íslenskum stjórn­völdum. Síðasta skrefið í hafta­losun stjórn­valda virð­ist ætla að verða það erf­ið­asta. Og gæti haft póli­tískar afleið­ingar.

Þegar Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson tilkynntu um nýja ríkisstjórn og kosningar í haust voru ein helstu rök þeirra nauðsyn þess að klára áætlun um losun hafta. Svo virðist sem að sú áætlun sé í vanda.
Þegar Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son til­kynntu um nýja rík­is­stjórn og kosn­ingar í haust voru ein helstu rök þeirra nauð­syn þess að klára áætlun um losun hafta. Svo virð­ist sem að sú áætlun sé í vanda. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ljóst er að áætlun stjórn­valda um losun hafta er í vanda. Miklum vanda. Í aflandskrón­u­út­boði sem haldið var 16. júní síð­ast­lið­inn voru sam­þykkt til­boð upp á 72 millj­arða króna. Aflandskrónu­hengjan sem verið er að reyna að bræða er upp á 319 millj­arða króna. Stærstu eig­endur aflandskrón­anna, nokkrir banda­rískir vog­un­ar­sjóðir, neit­uðu að taka þátt. Og ætla heldur ekki að sætta sig við aðrar leiðir sem stjórn­völd buðu þeim ein­hliða.

Í gær greindi RÚV frá því að sjóð­irnir hafi farið þess á leit við hér­aðs­dóm Reykja­víkur að dóm­kvaddir verði tveir erlendir mats­menn til að leggja mat á ýmsar efna­hags­legar for­sendur sem tengj­ast álita­efnum um lög­mæti þeirra aðgerða sem stjórn­völd hafa til­kynnt að þau ætli að ráð­ast í, og byggja á lögum sem sam­þykkt voru á Alþingi aðfara­nótt 23. maí síð­ast­lið­inn. Til­gangur mats­ins er að kanna grund­völl fyrir mögu­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu. Sjóð­irnir hafa einnig kvartað til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna lag­anna.

Ástæðan er ein­föld. Áætlun stjórn­valda gerir ráð fyrir því að þeir aflandskrónu­eig­endur sem sam­þykkja ekki sjálf­vilj­ugir að gefa eftir hluta eigna sinna í umræddum útboðum, þar sem Seðla­banki Íslands býðst til að kaupa krón­urnar á mun verra gengi en skráð gengi hans sjálfs er, muni sjá eftir eignum sínum inn á sér­staka reikn­inga í Seðla­bank­anum sem bera nær enga vexti.

Sjóð­irnir telja að báða val­mögu­leik­ana íþyngj­andi og fela í sér eigna­upp­töku, sem sé í and­stöðu við íslenska stjórn­ar­skrá.

Pólitískt mikilvægt fyrir stjórnarflokkanna

Málið er ekki bara efna­hags­lega mik­il­vægt fyrir Ísland. Það er ekki síður póli­tískt mik­il­vægt fyrir sitj­andi rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, enda hefur hún tengt ætl­aðan árangur sinn mjög við aðgerðir við losun hafta. Auk þess var það ein af helstu ástæðum sem gefnar voru fyrir því að ekki væri hægt að kjósa í apríl í kjöl­far Wintris-hneyksl­is­ins, sem varð til þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hrökkl­að­ist úr starfi for­sæt­is­ráð­herra, að klára þyrfti fram­kvæmd áætl­unar um losun hafta. Þau áform eru nú í upp­námi.

Seðla­bank­inn brást við lélegri þátt­töku í útboð­inu 16. júní með því að boða fram­halds­út­boð þar boð­ist er að kaupa þær aflandskrónu­eignir sem ekki seld­ust þar á 190 krónur á hverja evru. Skráð gengi evru í dag er 137,9 krónur og því gengur til­boð Seðla­bank­ans út á að aflandskrónu­eig­end­urnir gefi eftir 27,4 pró­sent eigna sinna. Frestur til að skila inn til­boðum rann út í gær­morgun klukkan 10 og nið­ur­stöður við­skipt­anna verða birtar á morgun, mið­viku­dag.

Ein­hverjar samn­ings­við­ræður hafa átt sér stað milli stjórn­valda og stjórn­enda sjóð­anna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þær hafa raunar verið í gangi frá því fyrir útboðið 16. júní og fund­uðu full­trúar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Seðla­banka Íslands m.a.

með aðil­u­m frá þeim banda­rísku eigna­­stýr­ing­­ar­­fyr­ir­tækjum sem stýra vog­un­­ar­­sjóð­u­m ­sem halda utan um stærstan hluta af aflandskrón­u­­eign­un­um 23. maí síð­ast­lið­inn í New York. Þær samn­inga­við­ræður virð­ast hins vegar ekki hafa borið neinn árangur.

Óhlýðnir áttu að lenda aftast í röðinni

Frumvarp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum, einnig nefnt aflandskrónu­frum­varpið, var sam­þykkt á Alþingi sunnu­dag­inn 22. maí. Það var lagt fram eftir lokun mark­aða á föstu­dag og höf­uð­á­hersla lögð á að frum­varpið yrði að lögum fyrir opn­um mark­aða á mánu­dag. Þess vegna fékk það mjög hraða með­ferð í þing­inu og for­set­i Ís­lands skrif­aði undir þau aðfara­nótt mánu­dags­ins 23. maí.

Í ein­földu máli snú­ast lögin um að eig­endur „aflandskróna“ myndu fá tvo kost­i. Annar fólst í því að eig­end­urnir sam­þykki að selja krón­urnar sínar á geng­inu 190-220 krónur á hverja evru í útboði sem fór fram 16. júní síð­ast­lið­inn. Þeir sem myndu ekki sam­þykkja að taka þátt í þessu útboð­i myndi bjóð­ast að fjár­festa í sér­stök­um inn­stæðu­bréfum útgefnum af Seðla­banka Íslands sem bera 0,5 pró­sent vexti en vextir á þeim eru end­ur­skoð­aðir árlega.

Ósam­vinnu­þýðir aflandskrónu­eig­end­ur, sem myndu neita að taka þátt í aflandskrón­u­út­boð­inu, áttu reynd­ar fá annað tæki­færi til að koma sér út úr íslensku hag­kerfi á enn verri kjöru­m frá 1. sept­em­ber til 1. nóv­em­ber 2016. Þar verður við­mið­un­ar­gengið 220 krón­ur. Stjórn­völd sögðu að fari þeir ekki út með pen­ing­anna sína þá sé alls óljóst hvenær þeir hafi aftur aðgang að ­eignum sín­um. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði við Morg­un­blaðið í lok maí að þeir myndu lenda aft­ast í röð­inni við losun hafta.

Það vakti umtals­verða athygli að þegar nið­ur­stöður útboðs­ins sem fram fór 16. júní voru kynntar þá kom í ljós að stærstu eig­endur aflandskróna höfðu ekki tekið þátt í þeim. Í fram­hald­inu ákvað Seðla­bank­inn að leggja í fram­halds­út­boð þar sem boð­ist var til að kaupa allta aflandskrónu­eignir sem seld­ust ekki á 190 krónur á hverja evru.

Ætla að berjast

Ljóst hefur verið í nokkurn tíma að stærstu aflandskrónu­eig­end­urnir myndu ekki taka þessum afar­kostum þegj­andi og hljóð­ar­laust.

Nálægt 85 pró­sent svo­kall­aðra aflandsskróna eru í eigu banda­rískra eigna­stýr­inga­fyr­ir­tækja, sem stýra með­al­ ann­ars vog­un­ar­sjóð­um. Pétur Örn Sverr­is­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og Magnús Árni Skúla­son hag­fræð­ingur unnu umsögn um frum­varp stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta fyrir hönd tveggja sjóða, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­tal LP.

Í ein­földu máli telja sjóð­irnir að aðgerðir stjórn­valda gangi gegn stjórn­ar­skrár­vörðum eigna­rétti sjóð­anna með „bóta­skyld­um“ hætti.

Sér­­stak­­lega var áhersla lögð á það að eng­ar ­neyð­­ar­að­­stæður séu uppi í hag­­kerf­inu þessi mis­s­er­in sem rétt­­læti ­eigna­­upp­­­töku af sjóð­un­­um. Staða efna­hags­­mála sé góð og óskuld­­settur gjald­eyr­is­­forð­i ­Seðla­­bank­ans hafi fyrir útboð numið um 400 millj­­örðum króna, eða sem nemur um 20 pró­­sent af lands­fram­­leiðslu. Kvik krón­u­­eign sé minni en sem þessu nemur og því ógn­i hröð útganga ekki hag­­kerf­inu.

Aflandskrónu­eig­end­urnir telja að ­eigna­skerð­ingin sem frum­varpið feli í sér geti á engan hátt talist í sam­ræmi við jafn­ræð­is- og eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrá­ar­inn­ar. Í 72. grein stjórn­ar­skráar Íslands seg­ir: „Eign­ar­rétt­ur­inn er frið­helg­ur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenn­ings­þörf krefji. Þarf til þess laga­fyr­ir­mæli og kom­i ­fullt verð fyr­ir“. Þá sé aug­ljós­lega sé ver­ið að mis­muna þeim á grund­velli þjóð­ernis og búsetu, sem sé líka í and­stöðu við skuld­bind­ingar Íslands á grund­velli samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið (EES).

Þrátt fyrir það telja ráða­menn þjóð­ar­inn­ar, og Seðla­banki Íslands, að þessi ráða­gerð stand­ist eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skráar Íslands. Davíð Þór Björg­vins­­son laga­­pró­­fess­or tekur undir það, sam­kvæmt umsögn hans sem hann skil­aði inn vegna frum­varps­ins sem varð að lokum seint í maí.

Á grund­velli þess­arra skoð­ana sinna hafa þeir nú falið lög­manni sínum að kanna grund­völl fyrir máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár