Eaton Vance eignast yfir 5% í Högum

Banda­ríska eigna­stýr­inga­fyr­ir­tækið Eaton Vance Mana­gement er komið með meira en 5% eign­ar­hlut í Högum.

Eignastýringafyrirtækið Eaton Vance er orðið meðal stærstu hluthafa Haga.
Eigna­stýr­inga­fyr­ir­tækið Eaton Vance er orðið meðal stærstu hlut­hafa Haga. Mynd: wealthmanagement.com

Hlutur eigna­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Eaton Vance Mana­gement í Högum er orð­inn meiri 5%. Þetta kemur fram í flöggun hjá Kaup­höll­inni.

[links]Eaton Vance sér um eigna­stýr­ingu banda­rískra sjóða, en fyr­ir­tækið er meðal stærri eig­enda aflandskrónu­eigna. Umræddir sjóðir í stýr­ingu Eaton Vance hafa verið áber­andi á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði und­an­farin miss­eri. Til að mynda var greint frá því á Vísi fyrr í ár að umræddir sjóðir hafi orðið meðal stærstu hlut­hafa í átta félögum í Kaup­höll­inni og að mark­aðsvirði þess eign­ar­hlutar næmi um tíu millj­örðum króna.

[adspot]Sjóðir í stýr­ingu Eaton Vance eru eft­ir­far­andi:

  • Global Opportunities Port­folio 
  • Global Macro Port­folio 
  • Global Macro Absolute Return Advantage Port­folio
  • JNL/Eaton Vance Global Macro Absolute Return Advantage Fund 
  • Pacific: IGPACSEL/Pacific Select Fund Global Absolute Return Fund 
  • PF Global Absolute Return Fund 

Í dag birt­ist svo flöggun frá Kaup­höll­inni þar sem sjóðir í stýr­ingu Eaton Vance Mana­gement hafi farið yfir 5% eign­ar­hlut í Högum þann 19. Júní síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aflandskrónueigendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár