Sjóðir Eaton Vance orðnir næst stærstu eigendur VÍS

Félagið Grandier seldi hlut sinn í VÍS rúmu ári eftir að það keypti hann mestan hluta hans. Félagið, sem er skráð í Lúx­em­borg en er m.a. í íslenskri eigu, hagn­ast mjög á við­skipt­unum.

Höfuðstöðvar Vátryggingarfélags Íslands í Ármúla.
Höf­uð­stöðvar Vátrygg­ing­ar­fé­lags Íslands í Ármúla. Mynd: VÍS

Sjóðir á vegum banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Eaton Vance Mana­gement keyptu þorra þeirra bréfa í Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands (VÍS) sem Grandier ehf., félag í eigu Sigurðar Bolla­sonar, Þor­steins Gunnars Ólafs­sonar og Don McCarthy, seldu á fimmtu­dag í síð­ustu viku.

[links]Um var að ræða sam­tals 8,01 pró­sent hlut í félag­inu, en Grandier var næst stærsti eig­andi VÍS áður en eig­endur félags­ins ákváðu að selja allan hlut sinn. Sjóðir í stýr­ingu Eaton Vance eru nú sam­tals næst stærstu hlut­hafar VÍS með 8,76 pró­sent hlut. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa aðrir hlut­hafar fengið þær skýr­ingar á ákvörð­un­inni að Don McCharthy sé að losa um eignir á Íslandi vegna veik­inda.

Grandier hagnast vel á viðskiptunum

Tveir sjóðir í stýr­ingu hjá Eaton Vance, Global Macro Port­folio og Global Macro Absolute Return Advantage, hafa verið að kaupa upp hluti í VÍS af miklum móð á und­an­förnum miss­erum. Þeir komu inn á lista yfir 20 stærstu hlut­hafa trygg­inga­fé­lags­ins í mars síð­ast­liðnum og voru skráðir með sam­tals 3,53 pró­sent hlut í félag­inu fyrir við­skiptin á fimmtu­dag. Gera má ráð fyrir því að sjóðir í stýr­ingu Eaton Vance séu því orðnir á meðal allra stærstu eig­enda VÍS eftir við­skiptin í vik­unni, en Líf­eyr­i­s­jóður versl­un­ar­manna er stærsti eig­and­inn með 9,67 pró­sent. Heim­ild­ar­menn Kjarnans segja þó að Eaton Vance-sjóð­irnir hafi ekki keypt allan hlut Grandier, en verið langstærstir í þeim kaupum.

[adspot]

Miðað við gengi bréfa í VÍS í lok dags á mið­viku­dag þá hefur Grandier fengið um tvo millj­arða króna fyrir bréf sín. Grandier keypti bréfin sín í mars í fyrra, þegar gengið í VÍS var á bil­inu átta til níu krónur á hlut. Virði hlut­ar­ins var því á þeim tíma frá rúm­lega 1,4 millj­arði króna til 1,6 millj­arðs króna. Grandier er í eigu sam­nefnds félags í Lúx­em­borg. Því má ætla að fjár­mun­irnir sem feng­ust fyrir sölu bréf­anna muni fara til þess félags. frá því að Grandier keypti upp­haf­lega í VÍS hefur íslenska krónan styrkst um rúm­lega 20 pró­sent gagn­vart evru. Því fást mun fleiri evrur fyrir krón­urnar nú en þá. Gera má ráð fyrir að geng­is­hagn­aður Grandier sé um 400 millj­ónir króna. Því hafa fjár­fest­arnir hagn­ast ansi vel á fjár­fest­ingu sinni á því rúma ári sem þeir voru stórir eig­endur í VÍS.

Umfangsmiklir á Íslandi

Samkvæmt til­kynn­ingu sem barst Kauphöll í síð­ustu viku eiga fjár­fest­inga­sjóðir á veg­um Eaton Vance Mana­gement nú 8,76 pró­sent hlut í VÍS. um er að ræða sjö mis­mun­andi sjóði.

Þeir eru Global Opportunities Port­folio, Global Macro Port­folio, Global Macro Absolute Return Advantage Port­folio, Global Macro Capital Opportunities Port­folio, JNL/​Eaton Vance Global Macro Absolute Return Advantage Fund, Pacific: IGPACSEL/​Pacific Select Fund Global Absolute Return Fund og PF Global Absolute Return Fund.

Sjóðir í stýr­ingu Eaton Vance hafa verið að kaupa íslensk hluta­bréf frá því seint á árinu 2015. Þeir eiga hluti í Símanum, Reitum, Eim­skipum, Reginn, HB Granda, Sjóvá, Ni, Högum, Eimskip, Icelandair og Marel. Mark­aðsvirði þeirra hluta er vel á annað tug millj­arða króna. Eaton Vance sjóð­irnir hafa hagn­ast vel á þessu, bæði vegna þess að flest bréfin hafa hækkað umtals­vert í verði og vegna þess að íslenska krónan hefur styrkst um vel yfir 20 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal frá því að fjár­fest­ing þeirra hér­lendis hófst.

Sjóðir Eaton Vance eru líka á meðal stærstu aflandskrónu­eig­enda sem eftir eru hér­lendis. Fyrir um ári áttu þeir, ásamt sjóðum fyr­ir­tæk­is­ins Autonomy Capital LP, um 30 pró­sent af eft­ir­stand­andi aflandskrónu­hengju, sem hefur minnkað umtals­vert síðan. Eaton Vance var einnig mjög umfangs­mikið í vaxta­muna­við­skiptum hér­lendis á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár