Rauður dagur í kauphöllinni

Gengi bréfa í smá­söluris­anum Högum heldur áfram að lækka.

Öll félögin sem skráð eru í kaup­höll Íslands hafa fallið í verði í dag, en með­al­tals­lækkun hluta­bréfa­vísi­töl­unnar nemur nú 1,5 pró­sent. Mesta lækk­unin hefur verið á hluta­bréfum í Högum en hún nemur 2,5 pró­sent.

Öll félögin hafa lækkað, og flest á bil­inu 0,5 til 1,7 pró­sent.

Mesta velta hefur verið með bréf Icelandair, eða 194 millj­ónir, en gengi þess hefur lækkað um 1,7 pró­sent í dag.

Mark­aðsvirði Haga er nú 50,3 millj­arðar króna og hefur lækkað um meira en 10,5 millj­arða króna á und­an­förnum fimm vikum, en á sama tíma hefur vísi­tala mark­að­ar­ins hækkað.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa margir líf­eyr­is­sjóða lands­ins, sem eru stærstu fjár­fest­arnir á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, verið að auka við fjár­fest­ingar sínar erlendis að und­an­förnu. Það getur leitt til þess að eft­ir­spurn eftir hluta­bréfum á Íslandi minnkar, en sveiflur á mark­aðnum hafa verið þónokkrar að und­an­förnu.

[adspot]

Í síð­ustu birtu hag­tölum Seðla­banka Íslands, frá því í apríl, má sjá að erlend eign líf­eyr­is­sjóð­anna nemur 789 millj­örðum, en heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóð­anna nema ríf­lega 3.300 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár