Plastagnirnar úr þvottavélinni

Ógrynni míkróplastagna fer í hafið í gegnum úrgangs­vatnið okkar. Hluti af plast­inu sem við skolum út kemur úr snyrti­vörum, svo sem tann­kremum og hreinsikremum. En stór hluti skol­ast líka úr föt­unum okkar þegar við setjum þau í þvotta­vél.

Ein stærsta umhverf­isvá sem við þurfum að takast á við í dag er plast­mengun. Plast er því miður of mikið notað í heim­inum og of lítið end­ur­unnið. Mjög stór hluti af plast­inu sem er notað endar því í umhverf­inu okkar og þar á meðal haf­inu. Þar stafar líf­rík­inu mikil hætta af plast­inu þar sem sjáv­ar­dýr geta t.d. flækt sig í plast­inu og dáið eða étið það og kafnað (eins og á reyndar við um land­dýr líka).

Fyrir utan stóra plastið sem við missum í hafið fer þangað líka ógrynni af míkrópla­stögnum í gegnum úrgangs­vatnið okkar. Hluti af plast­inu sem við skolum út kemur úr snyrti­vörum, svo sem tann­kremum og hreinsikremum. En stór hluti skol­ast líka úr föt­unum okkar, sem eru gerð úr ákveðnum efnum, þegar við setjum þau í þvotta­vél­ina.

Í rann­sókn sem var birt í Environ­mental Science and Technology í síð­asta mán­uði, skoðar vís­inda­hópur frá Sviss hvernig plast­agnir losna úr flíkum og enda í haf­inu. Vís­inda­hóp­ur­inn skoð­aði m.a. hita­stig og lengd þvott­ar­ins, sem bæði virð­ast lík­legir áhrifa­þættir við losun plast­agna úr flíkum.

Það kom vís­inda­hópnum þess vegna á óvart þegar í ljós kom að sama magn plast­agna losn­aði úr flík­unum við mis­mun­andi hita­stig og magnið jókst ekki heldur þegar þvotta­hring­ur­inn var lengdur. Þrátt fyrir að rann­sóknin hafi sýnt þver­öf­uga nið­ur­stöðu við það sem vís­inda­hóp­ur­inn lagði af stað með í upp­hafi eru þessar nið­ur­stöður fyrsta skrefið í að kom­ast að því hvernig plast­agn­irnar losna og fara út í umhverfið.

Ef hægt er að skil­greina hvaða ferli valda losun plast­agna er mögu­lega hægt að breyta þvotta­vélum eða þvotta­efnum til að tak­marka þessa losun. Á meðan getur hinn almenni neyt­andi lagt sitt af mörkum með því að tak­marka notkun á fatn­aði sem gefur frá sér plast­agnir eins og t.d. pólý­ester-efnum.

Að lokum er rétt að minna á átakið plast­laus júlí sem allir geta tekið þátt í með lít­illi fyr­ir­höfn. Markmið átaks­ins er að nota eins lítið plast og við komumst upp með (helst ekk­ert) í heilan mánuð. Átök eins og plast­laus júlí geta hjálpað okkur að upp­götva hversu auð­veld­lega við getum minnkað plast­notkun inn á heim­il­inu, svo endi­lega takið þátt!

Fréttin birt­ist einnig á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár