Lýsir yfir stríði gegn skattsvikurum

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skar upp herör gegn skattsvikum á Íslandi á blaða­manna­fundi í ráðu­neyt­inu fyrr í dag.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra
Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Mynd: Skjáskot/RÚV

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði skattsvik­urum „stríð á hendur“ á blaða­manna­fundi á Arn­ar­hváli fyrr í dag. Voru þar einnig kynntar til­lögur tveggja starfs­hópa með þau mark­mið að lág­marka skatt­svik og milli­verð­lagn­ingu.

Benedikt skip­aði fyrr í ár tvo starfs­hópa, annan um umfang milli­verð­lagn­ingar og fakt­úru­föls­unar en hinn um umfang skattsvika og skattaund­an­skota. Á fund­inum voru til­lögur beggja starfs­hópanna kynntar, en þær stuðl­uðu allar að því að lág­marka skatt­svik á Íslandi. Fjöl­setið var á fund­inum, en þar voru meðal ann­arra toll­stjóri, rík­is­skatts­stjóri og skatt­rann­sókn­ar­stjóri.

Benedikt sagði mikla með­vit­und vera um skattaund­an­skot í þjóð­fé­lag­inu: „Það er víða verið að skera upp herör geggn skattsvikum. ASÍ og SA kynntu aðgerðir sínar gegn kenni­tölu­flakki, við höfum líka verið að kíkja í það. Einnig höfum við líka verið í sam­starfi við Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð, iðn­aðar-og nýsköp­un­ar­ráð­herra, í þeim efnum.“

Sam­fé­lags­legt tap hér á landi var metið á bil­inu 1-6 millj­arða íslenskra króna á hverju ári. Tillögur hópanna voru fjöl­margar, en þær fólu meðal ann­ars í sér aukið eft­ir­lit með óeðli­legri milli­verð­lagn­ingu og beita sektum ef þess þarf. Einnig var lagt til að 10.000 króna seð­ill­inn verði tek­inn úr umferð strax og 5.000 króna seð­ill­inn einnig í náinni fram­tíð. Til þess að vega á móti minnkun seðla í umferð var einnig lagt til að hver ein­stak­lingur hafi inn­láns­reikn­ing í Seðla­banka sem væri ígildi reiðu­fjár.

[links]Þorkell Sig­ur­laugs­son, fram­kvæmd­ar­stjóri nefnd­ar­innar um umfang skattsvika og skattaund­an­skota, lagði áherslu á hversu skað­leg skatt­svik eru og mik­il­vægi þess að beita for­virkum aðgerðum: „ Það verður að byrgja í brunn­inn áður en barnið er dottið í hann. Skatt­svik er fíkn, og þeir sem stunda þetta halda áfram á að gera það. “Einnig benti hann á að þessar til­lögur væru lagðar fram með því mark­miði að þeim yrði beitt. „Þetta má ekki verða ein­hver skúffu­skýrsla.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár