Starfshópur stofnaður um útgáfu rafræns reiðufjár

Settur hefur verið á fót starfs­hópur innan Seðla­banka Íslands um útgáfu raf­ræns reiðu­fjár.

Rafvæðing reiðufjár gæti verið skammt undan, að sögn Seðlabankans
Raf­væð­ing reiðu­fjár gæti verið skammt undan, að sögn Seðla­bank­ans

Settur hefur verið á fót starfs­hópur innan Seðla­bank­ans um útgáfu raf­ræns reiðu­fjár. Nefndar eru þrjár mögu­legar leiðir við fram­kvæmd þess, en tekið er sér­stak­lega fram að það þýði ekki enda­lok hefð­bund­ins reiðu­fjár. Þetta kemur fram í nýjasta riti Fjár­mála­inn­viða.

Samkvæmt Seðla­bank­anum hefur eng­inn seðla­banki tekið ákvörðun um að gefa út og veita almenn­ingi aðgang að seðla­bankaraf­eyri. Hins vegar er hugs­an­legt að af því geti orðið en með hvaða hætti sé erfitt að spá fyrir um.

[adspot]Í rit­inu er fjallað um þrjár mögu­legar leiðir þess að gefa út raf­eyri:

  • Í fyrsta lagi gæti hann verið gef­inn út með svip­uðum hætti og sýnd­ar­gjald­mið­ill­inn Bitcoin, eða með dreifða færslu­skrá (e. distri­buted led­ger technology). Seðla­bankar í Hong Kong, Kanada og Englandi hafa þegar farið af stað með til­rauna­verk­efni í þessum efnum.
  • Í öðru lagi gæti raf­eyrir verið geymdur í ein­hvers konar raf­rænum veskjum (e. E-wallets). Þar yrði raf­eyr­inn nafn­laus og myndi ekki bera neina vexti, þannig að það gegni sama hlut­verki og reiðufé. Talið er að þessi útfærsla muni raska sem minnst virkri pen­inga­stefnu
  • Í þriðja lagi gæti raf­eyrir verið geymdur á skráðum greiðslu­reikn­ingi sem yrði áhættu­laus og að fullu tryggður af Seðla­bank­anum. Þessi útfærsla felur í sér tals­verða áhættur af hálfu Seðla­bank­ans og vekur einnig spurn­ingar um hvort það ætti að vera hlut­verk hans að veita almenn­ingi láns­vexti

Enn á eftir að svara fjöl­mörgum spurn­ingum um áhrif þess m.a. á fram­kvæmd pen­inga­stefnu, fjár­mála­stöð­ug­leika, greiðslu­miðl­un­ar­kerfi, lagaum­hverfi, neyt­enda­vernd og efna­hags­reikn­ing seðla­banka. Settur hefur verið á fót starfs­hópur innan bank­ans til að meta áhrif áður­nefnda þátta og kosti og galla fyr­ir­komu­lags­ins.

Sýndargjaldmiðlar ekki það sama og rafeyrir

Seðla­bank­inn minn­ist á sér­stak­lega á sýnd­ar­gjald­miðla (e. Virtual currency), en þeir telj­ist ekki sem raf­eyrir í laga­legum skiln­ingi þar sem sýnd­ar­gjald­miðlar bera ekki með sér kröfu á hendur skil­greindum útgef­enda. Við­skipti með sýnd­ar­gjald­miðla eru í sjálfu sér ekki ólög­leg en þau njóta heldur ekki verndar gild­andi laga um greiðslu­þjón­ustu, útgáfu og með­ferð raf­eyris. Enn fremur segir Seðla­bank­inn að sýnd­ar­gjald­miðlar beri fremur ein­kenni áhættu­fjár­fest­ingar en gjald­mið­ils þar sem verð­gildi er alls ótryggt frá einum tíma til ann­ars.

Endalok reiðufjár?

Nokkur umræða skap­að­ist fyrr á þessu ári þegar Benedikt Jóhann­son, fjár­mála­ráð­herra, velti því fyrir sér á facebook-síðu sinni hvort banna ætti að greiða út laun með reiðufé. Í kjöl­farið skip­aði ráð­herra nefnd sem hefur það hlut­verk að kanna mögu­leika á því að draga úr notkun reiðu­fjár hér á landi. Samkvæmt seðla­bank­anum myndi útgáfa raf­eyris þó ekki leiða til enda­loka reiðu­fjár á Íslandi. Í skýrsl­unni segir: „Hver sem nið­ur­staðan verður mun hefð­bundið reiðufé (seðlar og mynt) lifa góðu lífi enn um sinn, eitt og sér eða í návist raf­eyris útgef­ins af seðla­banka.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár