Vilja að hægt sé að banna kennitöluflökkurum rekstur í þrjú ár

SA og ASÍ lögðu til þriggja ára rekstr­ar­banns­heim­ild fyrir meinta kenni­tölu­flakk­ara á blaða­manna­fundi sínum í dag.

Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, for­maður Samtaka Atvinnu­lífs­ins Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samtök Atvinnu­lífs­ins og Alþýðu­sam­band Íslands leggja til að heim­ilt verði að banna þeim sem verða upp­vísir að kenni­tölu­flakki að eiga og reka hluta­fé­lög og einka­hluta­fé­lög í allt að þrjú ár. Vís­bend­ingar séu á lofti um að kenni­tölu­flakk sé umsvifa­mikið á Íslandi, en á árunum 2008-2015 komu rúm­lega 200 fram­kvæmda­stjórar við sögu í þremur eða fleiri gjald­þrotum. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi sam­tak­anna tveggja í dag.

Í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna kemur fram að tjón sam­fé­lags­ins vegna kenni­tölu­flakks sé áætlað á marga millj­arða króna á hverju ári. Kenni­tölu­flakk feli í sér að rekstur gjald­þrota félags haldi áfram með nýrri kenni­tölu, meðal ann­ars til að kom­ast undan greiðslu skatta og líf­eyris.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, kall­aði kenni­tölu­flakk mein­semd í íslensku sam­fé­lagi á blaða­manna­fundi fyrr í dag. Sagði hann einnig mik­il­vægt að öll fyr­ir­tæki lands­ins sitji við sama borð í sam­keppn­is­legu til­liti og að þeir sem fara ekki eftir leik­reglum sam­fé­lags­ins búi ekki við for­skot.

Gylfi Arn­björns­son, for­maður Alþýðu­sam­bands Íslands, tók undir orð Halldórs Benja­míns og kall­aði kenni­tölu­flakk „ekk­ert annað en svindl.” Tjón­þolar kenni­tölu­flakks séu meðal ann­ars kröfu­hafar og starfs­menn fyr­ir­tækja, líf­eyr­is­sjóðir og stétt­ar­fé­lög. Verstar væru þó afleið­ing­arnar, sem lýsa sér fyrst og fremst í minna trausti til fyr­ir­tækja í sam­fé­lag­inu. Líklegt er að áhrifin séu tölu­verð, en fyrir meira en ára­tug síðan höfðu þrjú af hverjum fjórum fyr­ir­tækjum á Íslandi beðið tjóns af kenni­tölu­flakki.

Samtökin tvö lögðu fram til­lögur í átta liðum til þess að sporna við kenni­tölu­flakki. Meðal þeirra var tíma­bundin rekstr­ar­banns­heim­ild, en hún myndi meina aðilum að eiga og reka hluta­fé­lög og einka­hluta­fé­lög í allt það þrjú ár, leiki rök­studdur grunur um að þeir stundi kenni­tölu­flakk. Bannið yrði ekki lagt á í refsiskyni, heldur til þess að vernda kröfu­hafa og almenn­ing. Lagt var til að veit­ing rekstr­ar­banns­heim­ildar yrði í höndum Rík­is­skatts­stjóra, að fengnum úrskurði dóm­stóla.

Önnur til­laga sam­tak­anna er sú að gera meiri­háttar brot á lögum um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda refsi­verð. Þannig yrði líf­eyr­is­sjóðsið­gjöldum starfs­manna fyr­ir­tækja tryggð sam­bæri­leg rétt­ar­vernd og vörslu­skattar hafa nú. Einnig vildu sam­tökin að nefnd yrði stofnuð um hvort og hvernig megi styrkja stöðu kröfu­hafa þrota­búa með laga­breyt­ingum.

Halldór Benjamín bendir á að bæði atvinnu­hreyf­ingar og verka­lýðs­hreyf­ingar á Norð­ur­löndum og í Vestur-Evrópu hafa þegar farið í svip­aðar aðgerðir, en atvinnu­rekstr­ar­banns­heim­ild hafi verið lög­fest í Svíþjóð árið 1980, Noregi 1984, Bret­landi 1986 og í Danmörku 2014.

Á tíma­bil­inu 2008-2015 komu 202 fram­kvæmda­stjórar og 481 stjórn­ar­maður við sögu í þremur eða fleiri gjald­þrotum félaga með tak­mark­aða ábyrgð. Þótt gjald­þrot fyr­ir­tækja ein og sér séu full­kom­lega eðli­leg gefi þessi mikli fjöldi manna í mörgum gjald­þrotum ákveðna vís­bend­ingu um umfang kenni­tölu­flakks­ins, að sögn Halldórs Benja­míns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár