Kóralrifið mikla á ekki afturkvæmt

Óraun­hæft er, sam­kvæmt sér­fræð­ingum, að bjarga kór­al­rif­inu mikla sem er stað­sett norður af Queensland í Ástralíu.

Kór­al­rifið mikla, eða The Great Barrier Reef, sem stað­sett er norður af Queensland, Ástralíu, hefur lengi barist við afleið­ingar hlýn­unar jarðar. Rifið hefur verið undir smá­sjá vís­inda­manna og árið 2015 var áætlun hrint í fram­kvæmd af áströlskum yfir­völdum sem mið­aði að því að bjarga rif­inu og öllu líf­kerfi þess. Því miður virð­ist þessi metn­að­ar­fulla áætlun ekki ætla fram að ganga.

Samkvæmt sér­fræð­ingum áætl­un­ar­innar er óraun­hæft að stefna á að bjarga rif­inu. Nú þarf að líta á allar aðgerðir sem björg­un­ar­að­gerðir og bjarga því sem bjargað verður. Rifið hefur und­an­farið lent í hverju hvítt­unar-atvik­inu á fætur öðru, en slík atvik eiga sér stað þegar líf­verur innan rifs­ins lenda í miklu stressi, eins og t.d. hækkun hita­stigs eða breyt­ingu á seltu svo dæmi séu tekin.

Þessi tíðu hvítt­unar-atvik hafa sann­fært vís­inda­menn um að ef raun­veru­lega á að ná árangri við verndun rifs­ins þarf að beita kröft­unum í að standa vörð um líf­fræði­legt hlut­verk rifs­ins í líf­keðju hafs­ins. Líf­fræði­legt hlut­verk rifs­ins er að við­halda þeim ótal teg­undum sem í því, og allt um kring, lifa. Kór­al­rifið mun kannski ekki við­halda öllum sínum líf­fræði­lega fjöl­breyti­leika en hlut­verk þess við að við­halda aðstæðum á svæð­inu verður haldið á lofti.

Sér­fræð­ingar áætl­un­ar­innar benda á að í aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar var lítil áhersla lögð á að sporna við hlýnun jarðar og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Hnignun kór­al­rifja, alls staðar í heim­inum, mun því miður halda áfram meðan jörðin heldur áfram að hlýna.

Það má því segja að við séum komin á ákveð­inn vendi­punkt í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar með þess­ari ákvörðun ástr­al­skra yfir­valda og vís­inda­manna. Þegar björg­un­ar­á­ætl­anir snú­ast ekki lengur um að bjarga vist­kerf­inu heldur ein­ungis að reyna að tak­marka skað­ann erum við stödd á tíma­punkti sem kall­ast á slæmri íslensku „the point of no return“.

Enn of aftur erum við minnt á hversu ótrú­lega mik­il­vægt það er fyrir alla að taka höndum saman við að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og sporna við hlýnun jarðar með öllum ráðum. Vonandi verður þetta skref sem stíga á í Ástralíu eini „point of no return“ í aðgerðum okkar gegn hlýnun jarðar.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár